Vikan


Vikan - 13.01.1977, Page 36

Vikan - 13.01.1977, Page 36
Ný framhaldssaga eftir ísknskan höfund Þau hafa komist vel af hér vestra. Hannes er kaupmaður í Winnipeg og hefur töluverð umsvif. Eldri synimir Gisli og Öli, sem komnir eru yfir tvítugt, eru honum dugandi aðstoðarmenn. Yngri bömin tvö eru faedd vestanhafs. Þau bera nöfn móðurforeldra sinna, en eru ætíð kölluð Alla og Benni. Þau eru nú tólf og tíu ára. öll fjölskyldan fagnar ferðalöng- unum vel. Og Alla segir strax við Gróu: ,,Þú mátt sofa í mínu herbergi”. En Gróa vill vera hjá ömmu. Hún hefur alltaf lúrt fyrir ofan ömmu, öðmvisi hefur aldrei komið til greina að hún sofnaði Hús Dóru og Hannesar er nr. 729 við Oakstreet. Það er timburhús á tveim hæðum og Gróu finnst það vera höll. Allt er svo stórfenglegt í þessu nýja landi. Og Gróa drekkur i sig nýjungamar, eins og þeir sem em sjö ára best geta. Það var komið fram í október þegar hún kom tU Ameríku og nú er nóvember hálfnaður, en enn hefur ekki fest snjó á jörðu og veðrið er hlýtt og milt. Gróu finnst mikið tU koma. hve allir em vel tU fara hér. Hannes fer á hverjum morgni spariklæddur tU vinnu sinnar í búðinni og Dóra frænka er aUtaf eins og drottning til fara svo og böm hennar. Sjálf hefur Gróa fengið mikið af nýjum fötum, þvi Alla hefur gefið henni það sem hún er vaxin upp úr, og svo hefur líka verið saumað nýtt á hana. Henni líður vel i nýja landinu, en þó er skuggi þar á. Hún vaknar stundum á nóttunni og heyrir að amma er að gráta. ömmu langar heim til ísl- ands. Hún er búin að gleyma þvi, að það hafi nokkurn tína verið kalt eða vont veður á íslandi. Henni finnst, að sumrin hafi verið löng og sólrík. Og á veturna hafi verið hlýtt og bjart inni. Hún er búin að gleyma kuldabólgnum höndum, votum fót-' um, haustrigningum og skammdeg- ismyrkri. Hún man aðeins lækjar- nið og fuglasöng, vinalegt baul í söddum og jógurfullum kúm og. jórtur ánægðs sauðfjár. Þannig er Islarid fjarlægðarinnar, iand þeirra sem farnir eru og munu ekki artur snúa. Heimþráin nagar þá i hjartastað og á nóttunni vakna þeir upp frá draumum sinum um landið í fjarska og gráta í hljóði. Slíkar eru raunir Aðalbjargar frá Gili. En hún reynir að leyna þeim. Og Gróu bað hún að tala ekki um við hitt fólkið að amma gréti á nóttunni, Dóru myndi leiðast að vita af þvi. Það má treysta Gróu, þótt ung sé. Hún þegir yfir því, sem hún er beðin fyrir. Vissulega á lika Aðalbjörg sinar gleðistundir. Hún hefur nú hitt Þorvald son sinn. þann er vestur fór með Dóru. Hann hefur einnig komist vel af og er bóndi í Albertafylki í Kanada. Hann kom í haust til Winnipeg til að selja hveiti og varð glaður að sjá móður sína eftir langan aðskilnað. Konu á hann af sænskum ættum, Louise að nafni, og þrjú börn. Hann gefur móður sinni myndir af fjölskyldu sinni og er þau kveðjast, segi^t hann koma í vor með alla fjölskyld- una til Winnipeg. Skömmu eftir að þær komu frá íslandi var farið með Gróu til læknis, sem athugaði líkamsbygg- ingu hennar og heilsufar. Hann kvað upp þann úrskurð, að vel mætti reyna að skera upp á henni bakið og fæturna til að það réttist úr henni allri og hún yrði fær um að ganga og gæti lifað eðlilegu lífi. Læknir þessi hafði síðan samráð við færan skurðlækni í New York, og ákváðu þeir í sameiningu, að Gróa skyldi koma til New York upp úr áramótum, svo reyna mætti að lækna hana. Það er ákveðið, að Hannes og Dóra fari bæði með henni, en amma verði eftir í Winnipeg og annist heimilið ásamt öllu. Þær sætta sig báðar við þetta, þótt það þýði að nú muni þær skilja í fyrsta sinn. En ekkert er óvinnandi í þessu landi furðuverkanna, þar sem stutt er á hnapp á veggnum og þá kviknar ljós i miðju lofti og hestlausir vagnar æða um göturnar með drunum og dynkjum. Þar er líka í hverju húsi kassi með tveim stútum á og sveif, sem snúið er. Síðan er annar stúturinn borinn að vörum og hinn að eyra og má þá tala við fólk óravegu í burtu. Þetta kallast telefón og það er ákveðið, að Hannes og Dóra fóneri heim og láti ömmu fylgjast nákvæmlega með líðan barnsins. I endaðan nóvember snjóar í fyrsta sinn. En þá er líka jafnfallinn þykkur snjór yfir öllu einn morgun- inn þegar þau vakna og orðið ófært með öllu fyrir vagna og.cars! Þeir sem eiga hesta spenna þá nú fyrir sleða, en hinir ferðast fótgangandi. Alla og Benni eru í skóla á hverjum degi og þau ásamt Gísla segja Gróu til í ensku og öðrum. námsgreinum á kvöldin. Stundum fara systkinin út að leika sér með sleða og þá taka þau Gróu með sér. í fyrstu fannst henni lítið gaman. Krakkarnir hópuðust í kringum hana og góndu á hana og sum gerðu sig líkleg til að kasta í hana snjó, en Alla og Benni ásamt tveim bræðrum úr næsta húsi vörðu hana dyggilega og áður en varði var hún orðin ein af hópnum. Henni fór óðfluga fram i ensku og samlagaðisti umhverfi sinu með ágætum. Það var bana einstöku sinnum, þegar hálfrokkið var og hún sat ein við glugga, að hún fann eins og sting við hjartað. Hvað skytdu þau nú vera að gera heima á Gili? Fyrir jólin kom bréf frá íslandi. Það var allt gott að frétta heiman úr sveitinni, skrifaði Stefán. Bærilegt tíðarfar og góður heyfengur. Svo voru fréttir af ýmsum i sveitinni. Merkilegast af öllu var að Þórey ætlaði að fara að gifta sig. Húr ætlaði að giftast Andrési syni sére Sveins. Svo voru auðvitað hjartan; kveðjur til allra og allt heimilisfólk- ið og dýrin söknuðu Gróu og ömmu og vonuðu að þær kæmu bráðum aftur. Gróa þá fleyg og fær á eigin fótum. Þetta kvöld situr Gróa í stiga- skoti og brynnir músum, þegar barið er að dyrum og síðan gengið inn. Þar eru komnir bræðurnir, vinir barnanna. Þeir Kjeld og Kaj Jensen. Þeir bræður búa i næsta húsi við hús Hannesar, það hús er nr. 232 við Elm-street. Þeir eru fæddir vestan hafs af dönskum foreldrum. 36 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.