Vikan


Vikan - 13.01.1977, Side 39

Vikan - 13.01.1977, Side 39
vændiskona. Einn af mönnum þeim er hún falaðist eftir vinnu hjá, kvaðst ekki hafa neitt starf handa henni, en vildi gjarna greiða henni fyrir að hátta hjá honum. Og af því að Kate var bæði svöng og vínlaus sló hún til. Hugsaði sem svo, að af einhverju yrðu þau að lifa, og forlögin hlytu að hafa ætlað henni þetta, annars hefði hún fengið einhverja vinnu. Og nú hefur hún lengi verið þeirrar skoðunar, að þetta sé ekki verra en hvað annað og í rauninni bráðnauðsynlegt í hverri borg. Aldrei komst Dick Holly að atvinnu dóttur sinnar. Þóttist hún þar heppin, því karlinn var strangur og siðavandur við börn sín, þótt hann þættist of góður til kvænast móður þeirra. Eftir að Kate kom heim og tók að stunda sína leyni- legu atvinnu, var karlinn orðinn gamall og heymasljór. Og til þess að vera alveg ömgg, blandaði dóttir hans honum svefnlyf á hverju kvöldi. Hann lifði og dó í þeirri góðu trú, að synir hans sæju fyrir þörfum þeirra feðginna með peningasend- ingum. Stundum er Kate vel hífuð og hátt uppi, þegar Gróa kemur til hennar. Þá syngur hún hásri röddu og hlær ægilega. Fyrst í stað varð Gróa hálfskelkuð að sjá hana þann- ig, en Kate vill engum illt og Gróu stendur enginn stuggur af henni lengur, sama i hvaða ástandi hún er. Dag einn, er Gróa röltir að húsi Kates heyrir hún háreysti mikla og köll. Hún ætlar að snúa við, en þá kemur Kate hlaupandi og biður hana að koma inn og sjá. Þar gefur heldur á að líta. Við eldhúsborðið sitja tveir tröllkarlar. Annar er nauðalíkur Kate og hún kynnir hann sem Danny bróður sinn, hinn er úfinn og rauðhærður íri og í Gróu augum voðaleg ófreskja. En Kate virðist á annarri skoðun, hún hring- snýst í kringum ofboðið og kallar hann elsku Stuart sinn. Gróa hefur aldrei séð hana svo glaða og hamingjusama. Brátt kemst hún að því, að þama er kominn hinn glataði kærasti Kates. Örlögin höfðu leitt þá saman á skipi, Danny Holly og Stuart O’Mallory. Með þeim hafði tekist kunningsskapur og Danny sagði vini sínum frá fjölskyldu sinni og er hann nefndi systur sína tók Stuart að leggja við hlustir. Nú em þeir hér komnir og Kate í sjöunda himni. Að nokkmm dögum liðnum em þau gefin saman í hjónaband Kate Holly og Stuart O’Mallory. Gróa getur ekki að sér gert, að leiða hugann að því, hvort viðskiptavinir Kates séu ekki vonsviknir yfir þessari breytingu á högum hennar. Sjálfri er Kate alveg sama. Hún er núna frú O’Mallory og enginn skal óvirða hana héreftir. Það er janúar 1915. f Evrópu er styrjöld og breska heimsveldið kall- ar þegna sína til þjónustu. öli Olson var meðal þeirra er fyrstir fóm austur um haf ásamt mörgum öðmm kunningjum, bæði íslending- um og ungum mönnum af öðm þjóðerni. Hann hefur skrifað frá Frakklandi og lætur sæmilega af sér. Núna em Jensens-bræðumir úr Elm-street að undirbúa brottför sina. Gróa er döpur. Hún elskar Kaj Jensen. Kaj er sá laglegi og káti, gjörólíkur Kjeld hinum alvöm- gefna. Gróa er viss um, að Kaj beri sömu tilfinningar tii hennar. Hann hefur verið tíður gestur í 729 Oak-street, allt siðastliðið ár og gefið sig mjög að Gróu og öllu. Alla er ári eldri en Kaj, hún er bráðum tuttugu og tveggja ára og einhver glæsilegasta stúlkan í borginni. Hún hlýtur að geta valið úr mönnum. Það hefur stundum hvarflað að Gróu, hvort Kaj sé nú ekki að sækjast eftir öllu, en hún bægir slíkum hugsunum frá sér. Hann hefur hvað eftir annað haldið um hendur hennar sjáífrar og horft djúpt í augu henni. Og á jólaballi í Youth-Club faðmaði hann hana að sér og sagði: „Litla Gróa, hvað þú ert orðin stór og lagleg.” Það hlýtur að vera, það verður að vera, að hann elski hana. Hún ætlar að vera dugleg og herða sig við námið meðan á stríðinu stendur, svo er aldrei að vita... Eitt kvöld skömmu áður en þeir leggja af stað kemur Kaj. Hann spjallar við fjölskylduna í stofunni, svo fara þeir Benni og hann upp á loft. Gróu er illt í höfðinu og hún fer að sofa fyrir allar aldir. Undir miðnætti vaknar hún upp og er þyrst. Hún læðist fram ganginn í átt að stiganum. Niðri í forstofunni er ljósglæta og hún heyrir hvísling- ar. Forvitni rekur hana til að teygja sig yfir handriðið og líta niður. Þar em Alla og Kaj í innilegum faðm- lögum, hvíslandi ástarorðum hvort að öðm. Heimur Gróu er í rústum. hún finnur til, eins og þeir einir, sem em á sautjánda ári, og elska i fyrsta sinn. Einhvem veginn tekst henni að skjögra aftur inn i rúm sitt. Þar liggur hún og grætur, uns svefninn liknar henni. Daginn eftir er hún með hálsbólgu og hita. Og þegar Jensensbræðumir koma að kveðja er hún sofandi, svo þeir biðja bara að heilsu „elsku Gróu litlu”. Framhald f næsta blaði. Myndrænar veggfóðursmyndir sem gera skemmtilega breytingu á heimilinu, rúmlega 4 metra breiðar, full lofthæð. Einnig fjöldi mynda á innihurðir. Skemmtileg nýjung. Grensásvegi 11 — sími 83500. Bankastræti 7 — sími 11496. Skemmtileg nýjung 2. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.