Vikan


Vikan - 13.01.1977, Side 40

Vikan - 13.01.1977, Side 40
Er það heilmikil sviðsetning hjá þér þegar þú ætlar að borga drykkinn? Þegar þú ert búin að róta í töskunni fram og til baka, missa greiðuna og varalitinn á gólfið, stinga þér undir borðið að tína það upp, þá er vísast að félagar þinir eigi þá ósk heitasta, að þú hefðir ekki boðist til að borga. Taktu eftir hve karlmaðurinn er fljótur að opna veskið og draga fram seðlana. Ef þú ætlar að borga, þá gerðu það vafningalaust. I hvert skipti, sem hann segist ætla að borga næstu umferð, kemur þessi skrítni svipur á hana, og hún á það jafnvel til að spyrja hvað þessi peningasóun eigi að þýða. Ef ykkur á að líða vel á kranni þa er óhjákvæmilegt að greiða það nokkuð dýru verði. Nei, takk, hún snertir ekki bjór! Hún hefur einhvers staðar fengið þá flugu í kollinn, að kvenfólk drekki ekki bjór heldur einhverja fína drykki, sem tekur óralangan tíma að búa til og eru fjórum eða fimm sinnum dýrari en bjórglas. Dreptu ekki vini þína úr leiðindum, reyndu að minnsta kosti eina kollu af bjór. Enska kráarlifið hefur heillað margan landann, og þeir eru margir, sem frekar kysu að kíkja inn á krá sér til upplyftingar en á íslensku barina í þeirri mynd, sem þeir eru reknir. En nóg um það. Við rákumst nýlega á grein í ensku blaði, þar sem kráarlífið er til umræðu í einskonar myndasögu, þar sem veika kynið er gagnrýnt. é KRfÍNNI Nokkrar dálítið niðrandi athugasemdir, sem allir geta lært eitthvað af, þó gagnrýnin beinist að hinu veika kyni. Þegar þau fara á krána til að hitta kunningjana, þá sækist hún eftir því að sitja meðal kvennanna og hreyfa sig ekki úr skotinu sinu allt kvöldið. Þetta er slæm hegðan, en furðanlega algeng. Er ekki réttara að nota þessa stund til að tala um eitthvað annað en bömin, matinn og dýrtíðina? Þarf hún að undrast, ef eiginmaðurinn vill helst fara einn á krána? Hún segist vera orðin leið á þvi að hlusta á karlmennina tala um stjómmál og íþróttir — og hún er ekkert að fela armæðusvipinn. Þetta er mjög pínlegt fyrir hann, svo ekki sé meira sagt. Vissulega getur íþróttatal verið mjög þreytandi, en hún ætti samt að reyna að spyrja nokkurra spuminga og sýnast hafa agnar áhuga. Hvað snertir stjómmál, þá á hún vissulega að blanda sér í umræðumar. Hún á semsagt að forðast eins og heitan eldinn að vera svo súr á svipinn, að það hafi niðurdrepandi áhrif á allan hópinn. Þessi gagnrýni snéri nú mest að kvenþjóðinni, en vissulega geta konur á svipaðan máta gagnrýnt karlmenn fyrir leiðindaframkomu, einmitt þegar allir eiga að skemmta sér og gleyma allri armæðu.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.