Vikan


Vikan - 13.01.1977, Side 48

Vikan - 13.01.1977, Side 48
SKRÍTIN ÖKUFERÐ. Kæri draumráðandi! I nótt dreymdi mig eftirfarandi draum: Mér fannst ég vera að bíða eftir flugvél, því að strákurinn, sem ég er með, ætlaði að koma með henni. Ég hljóp út á götu, og X vinkona mín var með mér. Við húkkuðum strax bíl, og ég settist settist aftur í. Eg hélt sætisbakinu fram fyrir X, en hún ýtti því aftur og settist í framsætið. Þá tók ég eftir því, að bílstjórinn var skóla- stjórinn á staðnum (en við erum báðar löngu hættar í skóla), og hann sagði, að því miður gæti hann ekki ekið okkur aftur til baka. Þá hikaði vinkona mín við að fara, en ég sagði, að við gætum örugglega fengið bíl til baka heim. Skólastjórinn ætlaði þá að aka af stað, en bíllinn var ekki í gír, svo að ég setti hann í fyrsta gír og við héldum af stað. Ferðin gekk ótrúlega vel, og það var eins og við svifum yfir veginum á ofsa- hraða. Það var einkennilega bjart yfir öllu og snjór. I. J. H. Þú munt taka þátt í djarftegum framkvæmdum, sem færa þér fjárhagslegan gróða. Sá gróði mun síðan standa undir efnahag þinum, og ef þú heldur rétt á spöðunum, færir hann þér auð- sæld og gæfu. Hinn draumurinn boðar þér meiri ánægju og gleði en þú hefur hingað tH verið aðnjótandi. Þú mátt treysta því, aö þegar þu giftist, verður þú elskuð heitt af eiginmanni þinum, og hann mur sjá vel fyrir heimilinu. Furðulegir atburðir á fjarlægum staö snerta þig og llf þitt talsvert mikiö. sennilega fer náinn vinur þinn I eitthvert ferðalag á næstunni. Á SJÚKRAHÚSI OG í SVEIT Kæri draumráðandi! Mig langar mjög mikið til þess að biðja þig að ráða fyrir mig draum. Mig dreymir mjög sjaldan, svo að þetta er eiginlega dálítið sérstakt. Mér fannst ég vera á sjúkrahúsi vegna fótaaðgerðar. Þar var allt svo óhugnanlega hvítt. Miklu hvítara en vanalega á sjúkrahús- um. Næst kom eitthvað ruglings- legt í sambandi við bókasöfn á þessu sjúkrahúsi, en svo kom til mín kvenmaður, sem ég kannaðist við (líka í vöku), en kom ekki almennilega fyrir mig. Sagði hún Mig dreymdi mér að fara inn í ákveðna sjúkra- stofu, og gerði ég það. Þá lá þar í rúmi gegnt dyrunum strákur, sem er minn besti vinur, og tók ég strax eftir því, að hann var ekki búinn að láta klippa sig og var með síðan topp (í rauninni var hann nýbúinn að láta klippa sig, þegar mig dreymdi þetta). Mér fannst ég fyllast gleði, þegar ég sá hann, og svífa fremur en ganga að rúminu hans. (Eitt enn: Hann var gleraugnalaus, en venjulega er honum illa við að taka þau ofan). Ég klifraði upp í rúmið til hans og hjúfraði mig að honum undir sænginni. Allt í einu var ég komin út í sveit. Ég var berfætt og tók eftir því, að það voru smá ör framarlega á jarkanum á hvorum fæti. Ég var í gallabuxum, sem ég nota yfirleitt aldrei, stórköflóttri skyrtu og með stráhatt á höfði. Gekk ég eftir moldarvegi, sem var aðeins um það bil ein bílbreidd. Svo kom ég að stað, þar sem vegavinnumenn voru að vinna. Þar var skúr á hægri hönd, brúnleitur og einna líkastur hlööu. Þvert á veginn var gaddavírsgirð- ing, en skurður og moldarflag voru samsíða henni hinum megin. Æfc/instri hönd var gamalt niðurnítt býli, sem stóð í litlum hvammi. Mér fannst ég segja alveg upp úr þurru: ,,Hérn»hefur einhverntíma verið fallegt". Þá svarar einn vegavinnumannanna, og var það eldri maður: Já, það var það". Mér fannst ég standa þarna litla stund, og kom þá í huga minn, að þetta væri Gil (bær í Skagafirði) og að ég hefði átt frænda, sem hefði búið þarna. Þá vaknaði ég. Ég vil taka það fram, að það er ómögulegt að komast að bænum Gili frá þessari hliö. Þetta var fyrsti draumurinn, sem mig dreymdi í nýju húsnæði og við breyttar lífsaðstæður. Svo vil ég þakka allt gott og gagnlegt efni, bæði í þínum þætti og annarsstaðar í Vikunni, sem ég kaupi vikulega. Með fyrirfram þökk. P —13. Draumurinn táknar betri stöðu / lifinu. Þú mátt gæta þín á ein- hverri persónu, sem vill hafa of mikil áhrif á líf þitt. Svo virðist, sem þú sért ekki i sem bestum fé/agsskap. Þú ættir að kynnast nýju fó/ki. Lánið leikur ekki alltaf við þig, og þú mátt eiga von á því að verða eitthvað lasin á næst- unni, þó ekkert alvarlega. Úvænt happ færir þér mikla hamingju. Varaðu þig á því að vera ekki móðgunargjörn I framtiðinni. GRÍMUDANSLEIKUR Kæri draumráðandi! Viltu ráða fyrir mig þennan draum, ef hann táknar eitthvað. Mig dreymdi, að ég væri stödd á dansleik, einhverskonar grímu- dansleik, en þó var enginn með grímu. Ég fann, að það var mjög gaman og ég var að dansa rokk við vinkonu mína. Svo kom hlé, en ég og vinkona mín héldum samt áfram að dansa. Viö döns- uðum á einhverjum planka, og skyndilega heyrðist hvæs. Þá sagði önnur okkar: ,,Þetta er bara rottan". Við sáum rottuna undir plankanum, og mér fannst hún koma hlaupandi til mín og bíta mig í hendina (hjá púlsinum). Getur þessi draumur táknað eitthvað? Dóra. Þessi draumur boðar þér mikla velgengni í ástum og störfum. Hins vegar máttu vera á varðbergi gagnvart baknagi, sem gæti leitt ti/ óhamingju fyrir þig. RUGLINGSLEG BARNSFÆÐING Kæri draumráðandi! Mig langar til þess að biðja þig að ráöa fyrir mig draum, sem mig dreymdi. Ég er ekki viss um, að þetta sé einn og sami draumurinn, en það var ekkert hlé á milli. Mér fannst ég vera einhvers- staðar í mjög fámennu þorpi. Þar var ég stödd í húsi og var að skoða myndir, sem voru í eigu stráks, sem ég þekki. (Ég var með þessum strák, en hef engan áhuga á honum lengur). Þarna voru margar myndir af mér og systur minni, og voru þær svolítið undar- legar. Þær voru teknar svo ná- lægt, að rétt sást I andlitin, og sumar voru teknar svo langt frá, að við sáumst varla. Þaö voru ekki bara myndir í albúminu, heldur voru þar líka sendibréf, sem voru skrifuð á umslög. Einnig var þarna saga, sem ég las og sagði svo: Semurðu sögur? Ég hef lesið þessa í Heimilis-Tímanum". ,,Já, þetta er sú eina, sem hefur verið prentuð i Kaðlinum", sagði hann, og mér skildist, áð það væri eitthvert blað. Allt I einu var ég svo komin upp á sjúkrahús og lá þar á ganginum uppi í rúmi, og mamma var líka í sama rúmi. Hún hélt á barni, og ég spurði: „Hvað átti ég?" ,,Þú áttir strák", sagði mamma. ,,Og mig, sem langaði svo að eignast stelpu", sagöi ég þá. ,,Já" sagði mamma, ,,en nú á ég eina stelpu og einn strák fyrir barnabörn". Svo fór hún fram úr rúminu, og ég gaf barninu brjóst. Þá fór ég að hugsa um, hvort það myndi líkjast föður sínum. ,,Þá myndi hann verða svo myndar- legur", hugsaði ég og fór skyndi- lega að hágráta, vegna þess að ég var svo ánægð með barnið. Svo vaknaði ég í draumnum og fannst ég fara inn í býtibúr á sjúkrahúsinu til þess að segja stelpunum þar drauminn (ég vinn á sjúkrahús- inu). Sagði ég þá við stelpurnar:,, Böl er að dreyma barn, nema sveinbarn sé og sjálfur eigi", og þá vaknaði ég. Kannski eru þetta tveir óskyldir draumar, en mig langar mjög mikiö til þess að fá þá ráðna. Kveðja. Helga. Sennilega eru þetta tveir sjálf- stæðir draumar. Sá fyrri boðar þér einhverskonar vandræði af völd- um fláráðra kunningja. Þú munt þó geta séð við þeim, ef þú gætir að þér tímanlega. Síðari draumur- inn er fyrir góðu. Áform þín munu heppnast mjög ve/, og innan skamms færðu einhver markverð tíðindi, sem munu gleðja þig. Að dreyma sjá/fan sig sofandi og dreymandi er fyrir afar góðu í flestum tilfellum, oftast fyrir ó- væntum g/eðitíðindum eða nýjum og góðum vinum. 48 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.