Vikan - 07.04.1977, Qupperneq 17
Þessi mynd var tekin áriO 1942 af
þjónunum, og i einni röó frá vinstri
eru: Óiafur Jóhannesson, Henry
Hansen, Sigurður Kristjánsson,
Sigurður Gröndai, Hjörtur Niei-
sen, G/s/i Stefánsson, Skafti
Stefánsson, Viihjáimur Schröder,
Pjetur Danielsson og Heigi Gísla-
son.
ég tók við rekstri þess. Ég tók við
Skjaldbreið 1. júní 1942 og rak það
í 18 ár. Ég tók einnig á leigu
Stúdentagarðana, sem ég rak í 10
ár, eða frá 1950 - 60 jafnframt
Skjaldbreið. Þar var mjög „inter-
essant" og skemmtilegt að vinna,
þarvoru lítil herbergi, en 150 rúm.
Síðan keypti hlutafélag, sem ég
var hluthafi í, llka hótel Valhöll, en
fyrsta veislan mín þar var á Full-
veldisdaginn 1944. Þar voru allir
alþingismennirnir, ráðherrar og
útlendir gestir. Það má segja, að
ég hafi séð um flestar veislur ríkis-
stjórnarinnar síðan. Fyrsta veislan,
sem ég sá um í ráðherrabústaðn-
um, var haldin þar sama ár fyrir
Vilhjálm Þór utanríkisráðherra.
herra.
— Það mætti þá kannski segja,
að þú sért „kongelig hofmester"
hér á landi.
Nú hló Pjetur — i vissum
skilningi mætti e.t.v. segja það.
— Hefir ríkisstjórnin kannski
einhverja samninga við þig um
þessi atriði?
— Nei, þetta er bara orðinn
fastu vani, og kunningjar mínir í
ráðuneytunum hringja bara til
mín, ef eitthvað stendur til. Þegar
maður er búinn að vinna með
ráðuneytisstjórunum í þetta lang-
an tíma og við orðnir góðir
kunningjar fyrir löngu, þá kemur
þetta meira og minna af sjálfu sér.
— Vinnutími þinn er vafalaust
nokkuð langur, Pjetur?
-- Já. Ég er ávallt kominn til
vinnu laust fyrir níu og fer ekki
heim fyrr en kvöldmat er lokið, og
þegar veislur eru, þá ekki fyrr en
að loknum veislumat. Maður er
ekki beint að hugsa um, hvort
vinnutíminn er 7 tímar eða 14.
— Hvernig fór svo með
Skjaldbreið?
— Ég hætti með Skjaldbreið og
leigði hótelið út um tíma, en nú
hefur ríkisstjórnin keypt það,
hefur þar fundarherbergi á vegum
alþingis og herbergi fyrir þing-
menn utan af landi.
- En Valhöll?
— Það hótel var selt þeim
félögum Ragnari H. Jónssyni í
Þórskaffi, Sigursæli Magnússyni
og Þorvaldi Guðmundssyni.
— Stúdentagarðarnir?