Vikan - 07.04.1977, Side 18
Osló, en sá þriöji er meö innrétt-
ingarnar J.P., Jón Pétursson.
— Enginn þeirra ( þessum
„bransa?"
— Jú, Daníel flugstjóri, sá elsti,
er útlærður hótelmaður. Hann
lærði það (fögur ár úti í Bandaríkj-
unum, þar var hann á háskóla í
Talahassee, en vildi svo heldur
stýra flugvél en hóteli, þegar á
reyndi. En hann byrjaði hér hjá
mér um tíma. Svo fór hann út til
Svíþjóöar og vann um tíma á
Grand Hotel ( Stokkhólmi hjá vini
mínum þar.
— Vini þtnum þar, segirðu. Átt
þú ekki vini í hótelum um allan
heim?
— Jú, það má víst segja, en
flestir eru þeir dánir nú. Ég
kynntist þeim fyrir löngu, og þeir
voru þá flestir á sínum besta aldri.
Þeir eru flestir farnir, en ég er
ennþá á besta aldri. Við höfum aö
sjálfsögðu verið á hinum ýmsu
mótum hótelmanna um allan
heim. Þau sambönd eru mjög
sterk, og kunningjarnir hafa verið
margir. Ég hefi verið í stjórn
Veitingasambands islands í 25 ár,
og við erum svo í Sambandi
norænna veitingamanna, sem kýs
nýjan forseta á hverju ári, og
fundur Sambandsins er haldinn í
hans heimalandi. Þaö lenti á mér
að verða fyrsti forsetinn og bjóða
öllum hingað heim, sem auðvitaö
varð til þess, að ég kynntist þeim
öllum strax í byrjun.
— Nú, hvernig stóð svo á því að
þá varðst eigandi hótelsins, þegar
Jóhannes hætti?
— Það stóð þannig á því, að
Jóhannes var farinn að eldast og
ákvaö að selja. Hann snéri sér
fyrst til ríkisstjórnarinnar í því:
sambandi, og dr. Kristinn Guð-
mundsson, sem þá var utan-
ríkisráðherra, bað mig svo að
koma til sín og tala við sig. Þá
sagði hann mér, hvað væri á seyði
og spuröi mig, hvort ég heföi
áhuga á málinu. Þaö hafði ég
vissulega og skýröi honum frá því.
Það varð svo úr, að stjórnin gekst í
ábyrgö fyrir láni, sem sem ég varð
að taka til að geta borgað fyrstu
útborgunina. Fyrst reyndi ég
auðvitað aö selja hótel Skjald-
breið, en fann engan kaupanda.
Þaö var á árunum 1958-9 og þá
var lítið um peninga. Þá gekkst ég
fyrir stofnun hlutafélags til að
kaupa Borgina — og þannig gekk
þaö fyrir sig.
— Er nokkur leynd yfir félögum
(þessu félagi?
— Nei, nei. Það mega allir vita.
Við erum fjórir, ég. Ragnar Guö-
laugsson, Aron Guðbrandsson og
Jón Fannberg erum í stjórn þess,
en aðrir hluthafar eru skráðir fólk
úr fjölskyldum okkar allra. Ég er
svo framkvæmdastjóri hluta-
félagsins, en hver á sinn fjórða
part.
— Og kaupverðiö var?
— Það var átján komma tvær
miljónir og borgaðar út sex. Það
voru miklir peningar fyrir 18 árum.
— En reksturinn hefur gengið
vel?
— Já, það má segja það. i
þessu sambandi vil ég eindregið
koma þakklæti til alls starfsfólks
sem verið hefur hér á hótelinu alla
tíö. Þú hefur aðallega talað um
eigendur, bæði Jóhannes stofn-
anda og mig, en ekkert hefði veriö
hægt að gera án trausts starfs-
fólks, og þar höfum við Jóhannes
verið mjög heppnir með alla.
Auðvitað hefur samkeppnin
harðnað með árunum, þv( að
margar hótelbyggingar haf risið
undafarin ár, og kakan hefur
tilhneigingu til að fletjast dálítiö
út. Ég vil nefna í þessu sambandi,
Hótel Sögu, sem kom 1962 eða 3,
Loftleiðahótelið 1966, síðan bætt-
ist Hótel Holt við og Hótel Esja,
svo að mikið hefur breyst á
undanförnum árum. En á sumrum
ersamtalltaf nóg að gera, en svona
upp og ofan á veturna . Ég hefi þó
það framyfir alla aðra, að stað-
setningin er ákaflega þægileg fyrir
ferðafólk, ef það þarf einhverra
erinda að gegna í bænum. Hér eru
allar skrifstofur þess opinbera,
bandar, og ýmislegt annað, sem
fólk á erindi við.
— Þú hlýtur að eiga þó nokkra
heiöurspeninga frá konungaheim-
sóknum og öðru slíku?
— Já, þaö er yfirleitt fastur vani
þjóðhöfðingja að rétta mönnum
minningapeninga til þakklætis
fyrir veitta þjónustu.
— Þú treystir þér kannski í
keppni við Idi Amin á því sviði?
— Maður er nú ekkert aö flíka
slíku. Ég vildi kannski helst líkja
mér við butlerinn í myndinni
„Húsbændur og hjú." Þannig
finnst mér ég helst vera. sg
— Stúdentarnir fengu sjálfir
áhuga á rekstri þeirra, og þeir
yfirtóku þá svo sjálfir.
— Og hér ertu samt sprækur og
hress. Finnst þér þetta ekki orðið
þreytandi?
— Ekki er því að neita, og það
fer aö líða að því, að ég dragi mig í
hlé.
— Ertu þá búinn aö ákveða,
hver tekur við rekstrinum?
— Neei, en það kemur alltaf
maöur í manns stað.
— Þú átt syni, Pjetur. Hvað
gera þeir?
— Éinn þeirra er flugstjóri,
annar stöðvarstjóri flugfélaganna í
P4IJ rÁST Í ÖLLLM VCRSLLNLM.
— AÍsjálfsögðu getur hann
ekki talað, kona, hann kemst
aldrei að!
18 VIKAN 14. TBL.