Vikan


Vikan - 07.04.1977, Blaðsíða 20

Vikan - 07.04.1977, Blaðsíða 20
Framhaldssaga eftir h.Q.WELLS Copyright the Executors of the Estate of the late H. G. Wel/s. JF Hlébarðamaðurinn ruddi sér braut gegnum hávaxinn reyrinn, sem svignaði til hliðar, þegar hann fór í gegn, og straukst við andlit hans. Við hinir, sem á eftir fórum, fundum troðinn stig fyrir okkur, þegar við komum að þykkninti. Eltingarleikurinn fór fram í þykkn- inu á svo sem mílufjórðungs kafla, og svo tók við þykkur, lágmr skógur, sem tafði mjög fyrir okkur, þó að við færum gegnum hunn saman í hóp — laufblöð flækiust i andlit okkar. límkenndar skriðjurtir snertu okkur undir hökur.ni, eða vöfðust um ökkla okkar, og þyrnóttar plöntur kræktust í og rifu bæði föt og hold. ..Hann hefur farið hér yfir á fjórum fótum.” sagði Moreau másandi, en hann var nu rétt á undan mér. ..Kngir komast undan,” sagði úlfs-birnan og hló framan i mig i fagnandi veiðihug. Við komum aftur út á meðal klettanna og sáum veiðidýrið fram- undan, þar sem það hljóp léttilega á fjórum fótum og urraði að okkur yfir öxl sína. Við það- góluðu úlfsmennirnir af ánægju. Dýrið var enn í fötum, og álengdar virtist 20 VIKAN 14. TBL. EYJfi DR.MOREfiGS andlit þess enn vera mennskt, en það hreyfði útlimina eins og köttur, og hið laumulega sig axla þess var greinilega eins og hjá veiðidýri. Það stökk yfir nokkra þyrnótta runna með gulum blómum og hvarf. Þjónninn var kominn hálfa leið yfir svæðið. Flestir okkar höfðu nú misst hraðann, sem eltingarleikurinn hafði í fyrstu haft, og voru farnir að taka lengri og hægari skref. Þegar ég fór yfir opna svæðið, sá ég, að eltingarmennirnir, sem komið höfðu hver á eftir öðrum, voru nú að verða samsíða. Hýenu-- svinið hljóp enn nálægt mér, og horfði á mig á hlaupunum og fitjaði upp á trýnið og rak um leið upp urrandi hlátur. Við klettabrúnina skildist hlé- barðamanninum, að hann var á leið út á hinn framstæða höfða, þar sem hann hafði læðst að mér kvöldið sem ég kom, og hafði þess vegna snúið við i kjarrinu. En Montgom- ery hafði séð bragðið, og hrakti hann til baka aftur. Þannig hjálpaði ég til að elta hlébarðamanninn, sem hafði brotið Lögmálið. Ég var móður og másandi, hrasaði um steina og reif mig á brómberjarunnum, og reyr, en hýenu-svínið hljóp við hlið mér og hló tryllingslega. Ég skjögraði áfrain, mig svimaði, og ég hafði mikinn hjartslátt og var næstum örmagna af þreytu, en samt vogaði ég ekki að missa sjónar á eltingarleiknum, því að þá yrði ég skilinn eftir aleinn með þessum hræðilega félaga. Ég skjögraði áfram þrátt fyrir óendanlega þreytu og molluhita hitabeltissíðdegisins. Og að lokum dvínaði ákafi eltingarleiksins. Við höfðum króað vesalings skepnuna inni á einu horni eyjarinnar. Moreau, með svipuna í hendinni, skipaði okkur öllum i reglulega röð, og við héldum áfram, nú hægt, kölluðum hvert til annars á göngunni og þrengdum ■ hringinn um fórnarlamb okkar. Hann lá í leyni, hljóðlaus og ósýnilegur, milli runnanna, þar sem ég hafði hlaupið frá honum í miðnætur-eltingarleiknum. ,,Farið hægt!” hrópaði Moreau; ,,farið hægt!” þegar endar raðar- innar færðu sig í sveig kringum kjarrflækjuna og umkringdu skepn- una. , .Forðist óðagot!” heyrðist Montgomery segja handan við þykknið. Ég var í brekkunni fyrir ofan runnana. Montgomery og Moreau gengu eftir fjörunni fyrir neðan. Við þrengdum hringinn, þar sem var skrautlegt skrúð greina og lauf- blaða. Bráðin var þögul. ,,Aftur í Hús kvalanna, Hús kvalanna, Hús kvalanna!” gjamm- aði apamaðurinn, þar sem hann var í svo sem tuttugu metra fjarlægð til hægri. Þegar ég heyrði þetta, fyrirgaf ég
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.