Vikan - 07.04.1977, Síða 42
Vikan
fer í búöir
Verslunin GLER OG POST-
ULÍN, Hafnarstrœti 16, er eina
fyrirtœkiö hérlendis, sem brenn-
ir íslenskar skreytingar í gler- og
postulínsvörur. Þessi skemmti-
legu postulínsbollasett kosta kr.
990, en könnurnar, sem eru úr
eldföstu gleri, kosta kr. 585.
I versluninni THEA, Laugavegi
74, fást þessar fallegu, ítölsku
leðurtöskur frá JULIEN verk-
smiðjunum. Samkvæmisveskið
kostar kr. 11.204, en handtask-
an kr. 11.550. THEA selur
einnig ýmsar gerðir af skart-
gripum, hálsfestar frá kr. 1.285,
armbönd frá kr. 645 og eyrna-
lokka frá kr. 750.
G.B. Silfurbúðin, Laugavegi 55,
selur þennan handmálaða kera-
mik borðbúnað. Hnífaparasettið
kostar kr. 7.780, ávaxtaskeiðin
og tertuspaðinn kr. 3.500 stk.,
og rjómaskeiðin kr. 2.600. Það
er ekki nauðsynlegt að kaupa
allt settið í einu. G.B. Silfur-
búðin selur alla þessa hluti
staka.
Þessir skemmtilegu grisku
skartgripir fást í versluninni
SABINA, Laugavegi 53b.
Mynstrið á hálsmeninu og
armbandinu er það sama, en
menið kostar kr. 1.420, og
armbandið kr. 940. Krossinn,
sem er silfurhúðaður, kostar kr. ,
1.640, en í SABINU má finna
allar gerðir af skartgripum.
Verslunin BLÖM OG MYND-
IR, laugavegi 53, selur margar
tegundir af römmum, hillum,
málverkum o.fl. Þessi hilla
kostar kr. 7.500, en þær eru til
frá kr. 1.400. Rammar kosta frá
250 kr.
KAMILLA, Hafnarstræti 16, er
ný snyrtivöruverslun, sem selur
m.a. PHYRIS snyrtivörur, sem
eru fyrir allar húðgerðir, m.a.
viðkvæma, bólótta og exemhúð.
í PHYRIS má finna hvaða gerð
af kremum sem er, sápu og
shampoo, aUt sérunnið úr
blóma- og jurtaseyðum. Verð á
PHYRIS snyrtivörum er frá kr.
464 og upp í kr. 1.475.
úr sér sagði hann: ,,Ég fann þessa
núna snemma í morgun niðri á
klettunum.”
Hann hélt á skónum mínum, sem
ég hafði sparkað af mér í ofsa-
hræðslunni kvöldið áður.
Ég var neydd til þess að velja á
milli búralegrar þagnar og óviðeig-
andi uppljóstrunar. Ég tók við
skónum, sem ég hafði skilið við mig
á örvæntingarfullum flótta mínum
undan Harry Stark, og tróð þeim
ofan í töskuna mina. Ég þakkaði
Randal fyrir að skila mér þeim, en
gerði enga tilraun til þess að
útskýra hvers vegna ég hafði ekki
hirt um að taka þessa ágætis skó
heim með mér.
Þegar ég var lögð af stað út að
afskekktu bóndabýli föður mins, sá
ég furðulega sjón niðri við flóann.
Bátar voru þarna i tugatali uppi á
þurru landi. Þeir höfðu verið
dregnir á land vegna illviðrisins,
sem í vændum var og til öryggis
voru þeir bundnir saman. Sumir
voru meira að segja bundnir við tré
lika. Enginn bátur var úti á
flóanum og það var að kólna í veðri.
Er ég tók siðustu beygjuna inn í
bæinn Xlendi, ákvað ég að kaupa
hlýja peysu í búðinni hjá Rósu, þar
sem Randal hafði keypt handa mér
fallega knipplingablúsu.
,,Jæja, ertu að fara frá Gozo?”
spurði gamla konan um leið og hún
heilsaði mér. Hún hafði tekið eftir
farangrinum í bílnum og virtist hin
ánægðasta, en ég varð öskureið.
„Nei,” sagði ég stutt í spuna,
,,ég er ekki að fara.”
,,Já, en síðasta ferjan leggur af
stað rétt bráðum, eða áður en
óveðrið skellur á.” Hún leit upp i
himininn og sagði af hinni mestu
sannfæringu: ,,Á morgun verður
komið vitlaust veður.”
,,Þá er best að ég fái mér hlýja
peysu,” sagði ég.
Hún fór með mig inn i dimman
afkima búðarinnar og benti mér á
peysur, er lágu þar í einum bunka.
„Hafðirðu gaman af heimsókninni
til hr. Jarvis í gær?”
Ég fann til ónotakenndar. Ég fór
ekki svo spönn frá rassi, að aðrir
vissu ekki af því. Sjálfsagt virtist
ég vera full grunsemda og ég sagði;
„Hvernig vissirðu, að ég hefði farið
þangað?”
Rósa baðaði út höndunum og
svaraði: „Maria dóttir mín sagði
mér það. Þú hefur séð hana héma.
Hún og maðurinn hennar Alfio
Marcello, starfa hjá hr. Jarvis.
Alfio sá þig koma, er hann var að
bóna bíl fyrir utan húsið.”
Þegar ég var að troða mér í ljósgula
peysu, tók ég eftir því, að bílnum,
sem ég hafði haft á leigu undan-
fama þrjá daga, var ekið framhjá
opnum búðardyrunum. Bílstjórinn
var einn af aðstoðarmönnum hr.
Bartola, sem átti bilaleiguna. Á
eftir kom annar bíll og í honum var
Bartola sjálfur.
Þeir höfðu ekki látið á sér standa
að sækja bilinn, sem ég hafði skilið
eftir fyrir utan hótelið hjá Randal.
Ég sneri mér aftur að Rósu og
sagði: „Ég ætla að fá þessa gulu
peysu og ætla að vera í henni. Hvað
kostar hún?”
„Af því að það ert þú, þá kostar
hún 12 pund.”
Ég seildist eftir peningunum án
þess að reyna að prútta og var því
satt að segja fegnust að vera komin
í eitthvað hlýtt.
„Ætlarðu að ná ferjunni til
Möltu?” sagði Rósa og virtist ekki
vera á því að gefast upp. Því næst
leit hún í áttina að MG-bilnum aftur
og kom þá auga á sjónauka föður
míns.
„Nei, ég ætla að dydja á
bóndabýli föður míns.”
Hún hleypti brúnum og var
greinilega mikið niðri fyrir.^,,Ekki
fara á þann einmanalega stað,”
sagði hún. „Yfirgefðu Gozo.”
„Ýttirþú miðanum undir hurðina
hjá mér?” sagði ég og hafði það
sterklega á tilfinningunni, að svo
hefði v'itið.
„Hvaða miða? Hvert ertu eigin-
lega að fara?” muldraði hún
reiðilega og flýtti sér að dyrum, sem
voru innan í búðinni. Um Ieið og
hún opnaði stirðnaði hún af
hræðslu. I dyrunum stóð Alfio
Marcello. Hann hafði greinilega
legið á hleri. Án þess að mæla orð
rauk hann framhjá okkur báðum og
settist á árabát, sem lá á hvolfi rétt
fyrir utan búðina. Þaðan horfði
hann bölvandi og ragnandi á okkur.
Rósa kom út úr búðinni og
staðnæmdist við hliðina á mér
þarna á gangstéttinni. Hún setti
hendurnar á mjaðmir sér og öskraði
til Alfio eitthvað á maltnesku, sem
ég skildi ekki. Hann horfði illsku-
lega á hana, en sagði ekki orð.
Gamla konan sneri sér nú að mér
og sagði: „Hann er alltaf að
hnýsast eitthvað og njósna þessi
gaur.”
„Og hvers vegna?” spurði ég.
„Æ, fyrir Noni,” sagði hún og
fómaði höndum.
Alfio öskraði nú eitthvað, en hún
þóttist ekki heyra til hans og hallaði
sér í áttina til min. „Skrifaði hr.
Brent þér til London? Vill hann
kannski kaupa bóndabýlið?”
„Já, en handa einhverjum öðrum.”
„Fyrir sjálfan sig eða handa
einhverjum öðrum, hvaða máli
skiptir það? Hann kærir sig ekki um
að hafa þig neins staðar nærri. En
Noni sagði honum, að bréfið sem
hann skrifaði myndi verða til þess
að þú kæmir til Gozo. Hún segir að
hann sé asni.
Framhald í næsta blaði.
42 VIKAN14. TBL.