Vikan - 06.10.1977, Blaðsíða 6
Hér er hún:
Frœgasti unglingur
Ný stjarna er fædd í Hollywood.
Ekki kynbomba eða Robert
Redford manngerð, heldur ung
stúlka, 14ára.Ástuttumtímahefur
hún lagt heiminn að fótum sér (sem
eru nú heldur litlir — skóstærð 36!)
og ýmist vakið furðu eða aðdáun.
Því Jodie Foster virðist þroskaðri
og reyndari en margir af hinum
fullorðnu samstarfsmönnum
hennar.
i þeim tíu kvikmyndum, sem hún
hefur leikið í, hefur hún fengið
næstum allar tegundir hlutverka,
sem hægt er að fá. Við sjáum hana
sem barnunga gleðikonu í ,,Taxi
Driver" og sem sætu, góðu
stúlkuna í ,,Tom Sawyer", i
kvikmyndinni „Alice doesn't live
hereany more" leikur hún af öryggi
hina vanræktu smástelpu Doris,
sem á nokkrum dögum kennir
Tom, ungum syni Alice, að drekka
áfengi, reykja hass og stela. Það
hlutverk, sem við eigum kannski
erfiðast með að sætta okkur við í
höndum þessarar 14ára stjörnu, er
sennilega hlutverk hennar sem
kaldrifjaðs morðingja í kvikmynd-
inni, ,The little girl down the road".
Samt sem áður — það hlutverk var
listaverk.
PRAKKARALEG OG FREKNÓTT
Hún hefur gert allt svo ótrúlega
vel. Örugg, ákveðin, svo eðlileg.
Andlit Jodie, sem er ekki beint
laglegt, en prakkaralegt, breiðleitt
og freknótt, getur, þrátt fyrir
smáskrítna brotna framtönn,
breyst ótrúlega í mismunandi
hlutverkum.
Það sem ruglar fólk í sambandi
við Jodie Foster er, að það er svo
erfitt að skilja, að hún er aðeins 14
ára. Hún virðist svo.... fullorðin. Ef
það er þá rétta orðið.
Hversdags lifir Jodie vissulega
hinu áhyggjulausa, ameríska tán-
ingalífi. Milli þess sem hún leikur í
kvikmyndum, gengur hún í skóla í
6 VIKAN 40.TBL.