Vikan - 06.10.1977, Qupperneq 48
HÚN VAR MEÐ SKEGG
Kæri draumráðandi!
Þann6/91977dreymdi mig mjög
skýran draum, sem ég vona, að þú
ráðir fyrir mig. Ég var að passa fyrir
systur nr. 1 (sem ég er í rauninni að
gera). Þákomstrákur,semégþekki
og bað um að fá að fara í bað. Ég
sagði, að það væri alveg sjálfsagt,
en þá mundi ég, að það var ekkert
bað, svo ég sagði honum að fara til
systur minnar nr. 2 (ég á sko 3
systur). Og hann fór. Þá kom systir
nr. 1. Hún var mjög sóðaleg,
drullug kápa, og hárið stóð út í allar
áttir. Svovarhúnkomin með skegg
á hökuna og sagði, að maðurinn
hennar hefði beðið hana að safna
því. Svo var ég allt í einu á leið til
Reykjavíkurmeð krökkum, sem ég
þekki, enbróðirminnók. Svo fórég
í sjoppu og keypti mér ís með
súkkulaðibráð. Svo fór ég í
einhverja aðra og keypti mér annan
ís, en þá tók afgreiðslustúlkan
ísinn, sem ég hélt á, og bjó til annan
úr honum. En ég tautaði alltaf:
Hafðu hann lítinn. Svo vorum við
krakkarnir komnir í gamalt hús. Ég
fór að hengja út þvott og brjóta
hann saman. Svo fór ég ein í
leikhúsið, en þar hitti ég systur mina
nr. 1 og líka systur nr. 3. Ég settist
viðhliðinaá þeim. Svoskrappégtil
að kaupa mér gott, en skildi eftir
óopnaðan Winston-pakka í sætinu
til að merkja sætið. En það gerðu
allir. Svo þegar ég kom aftur inn,
var hann horfinn. Þá sá ég konu
veraaðreykjaúrhonum. Svovar ég
aftur komin í gamla húsið og fór þá
innáklósettog reyktiog reykti. Svo
fór ég aftur heim og fór á rúntinn
með pabba og vinkonu minni í
einhv. Willysjeppa, sem ekkert
þak vará. Á undan okkur var alveg
eins jeppi, en honum ók strákur,
semégerofsahrifinaf. Viðfærðum
okkur yfir í jeppann til hans. Pabbi
og vinkona mín sátu aftur í, en ég
sat frammi í og át upp úr sviðadós
og hann líka (sko gæinn). Svo
færðum við okkur alltaf nær hvort
öðru, þangað til við sátum fast
saman. Þá vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk fyrir
ráðninguna.
Fia.
Þú verður fyrir miklu hugarangri
og andstreymi, og mannorð systur
þinnar er i hættu. Hún verður fyrir
illu umtali, en það verður upprætt,
og hamingjusólin brosir við ykkur
báðum, áður en /angt um líður.
Mig
dreymdi
VAR AÐ BAKA BRAUÐ
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi svo sérkennilegan
og skýran draum, sem mig langar
að vita, hvernig þú ræður.
Mérfannst ég vera úti að ganga,
og þá fannst mér allt í einu ég verða
aðfara heim og baka brauð. Svo var
ég farin að baka og hafði mikið í
kringum mig, og ég bakaði þau
ósköp af brauði. Og þegar ég var
búin að baka og hálffylla öll borð af
brauði, þá kom mamma til mín og
var alveg undrandi á þessum
dugnaði og sagði: Ég þarf líklega
ekki að baka framar, þú ert orðin
svo dugleg að baka. Ég varð svo
glöð og fannst ég hafa afrekað
mikið. Svo settumst við niður og
brögðuðum á brauðinu, og það
komu fleiri og fengu sér brauð, og
allir hældu mér mikið fyrir
dugnaðinn. Svo sagði ég við
mömmu, að þetta væri svo mikið,
égætlaðiaðgefa eitthvaðaf þessu,
og svo pakkaði ég inn nokkrum
brauðum og lagði af stað með þau.
En þá vaknaði ég. Það skiptir
kannski ekki máli, en ég kann í
rauninni alls ekki að baka.
Vona, að þú viljir ráða þetta.
Rósa.
Ekkiernú draumurinn dónalegur
og boðar þér ekkert nema gott.
Sennilega ertu í þann veginn að
gifta þig, og þú verður mjög
hamingjusöm.
HANN VAR HALTUR
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að ráða
eftirfarandi draum:
Mérfannstég veraá gangi niðri í
bæ með vinkonu minni. Það var
ofsalega gott veður og margir í
bænum. Mér leið þó ekkert
sérstaklega vel, því mér fannst ég
hálf asnalega klædd. Ég var í mjög
skrautlegri kápu, sem mér fannst
þó ekki klæða mig vel, og með nýja
húfuáhöfðinu, sem mérfannst líka
hálf asnaleg. Og ekki bætti úrskák,
að stígvélin mín voru hálf sóðaleg.
Vinkona mín var ofsakát og kjaftaði
við alla, sem við hittum, en mér
fannstenginn viljatala við mig. Svo
sé ég, að strákur, sem ég er búin að
vera lengi með, kemur á móti
okkur, og hann er haltur. Vinkona
mínæpiráhannogspyr, hvaðséað
honum, en hann líturá mig ogsegir:
Ég meiddi mig bara. Þá vaknaðiég.
Hvað heldur þú, að þetta tákni?
Með fyrirfram þökk fyrir ráðn-
inguna.
Mússa.
Táknin í draumnum eru mjög
glögg. Þérhlotnastheiður, enhann
verður skammvinnur og þér til
litillar ánægju. Þú hættir við
strákinn og tekur saman við annan,
en þetta á eftir að valda vansæld
bæði stráksins og sjálfrar þin.
BLEIKUR HESTUR OG BROTIN
EGG
Kæri draumráðandi!
Mig langartil að biðja þig að ráða
eftirfarandi draum:
Mér fannst ég vera við hesthús
og vera að líta svona í kringum mig.
Sé ég þá vin minn B þeysandi á
bleikum hesti (sem hann á í
raunveruleikanum). Síðan fannst
mér ég vera stödd fyrir utan blokk
og vera að bíða eftir B., en hann
ætlaði að keyra mig heim. Fannst
mér ég vera búin að bíða lengi, og
var ég farin að tvístíga þarna fyrir
utan. Held ég þá á stórum
strigapoka, en mjög gisnum, og var
hanntæplega hálfuraf eggjum. Var
ég að virða fyrir mér eggin. Efstu
eggin voru brotin, rauðurnar voru
heilar, en auk þess voru egg innan
um, sem voru sprungin, en einnig
heil egg. Pokinn lak ekki. Var ég nú
orðin óróleg yfir því, hvað ég var
búin að biða lengi eftir B. Þá kom
hann loks og afsakaði sig og sagði,
að mamma hefði hringt og beðið
hann að koma með egg með sér, og
hélt hann á bréfpoka með eggjum í.
Ég vona innilega, að þú sjáir þér
fært að birta þennan draum, því ég
tel hann tákna eitthvað.
Með fyrirfram þökk.
S.I.Ú.
Þvímiðurberal/taðsama brunni,
þegar litið er á táknin I þessum
draumi. Bleikur hestur boðar
hættu. Brotin egg boða eignatjón,
mannorðsspjölleða svik. Ogjafn vel
bréfpokinn táknar yfirvofandi
erfiðleika.
BARNSFÆÐING
Elsku draumráðandi!
Fyrir stuttu dreymdi mig draum,
sem mér þætti vænt um að fá
ráðinn, því hann veldur mér svo
miklum áhyggjum.
Mérfannst ég veraólétt og að því
kominaðfæða. Svovarégalltíeinu
komin í einhverja stofu, þar sem
læknirstóðyfirmér. Mérfannst ég
sitja ístól fyrir framan bekkinn, sem
ég átti að liggja á og fæða. Ég hafði
svo miklar áhyggjur af því, að ég
myndi fæða, áður en ég yrði sett
upp á bekkinn. Svo allt í einu var ég
búin að ala sveinbarn.Ég var sett i
litla stofu með barnið á legubekk.
Þá fannst mér barnið detta niður á
gólf, en þegar ég tók það upp, var
allt í lagi með það. En þegar líða tók
á stundir, fannst mér það vera svo
skrítið og alls ekki eðlilegt. Og ég
var alveg frávita af áhyggjum út af
þessu og leið illa.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna. Kær kveðja,
S.S.
Giftum konum er það fyrir góðu
að dreyma, að þær a/i barn, en
ógiftum er það fyrir erfiðleikum I
ástamálum. Að fæða sveinbarn er
fyrir ve/ heppnuðum áformum. Ef
giftar konur dreymir, að þær
eignast barn, getur það hreinlega
verið þeim fyrir barnsfæðingu.
Einnigersagt', aðnýfættsveinbarn,
sem dreymandinn á sjátfur, sé
honum fyrir farsælli atvinnu.
Síðasti hluti draumsins getur
táknað smávægis erfiðleika.
48 VIKAN 40. TBL.