Vikan - 25.05.1978, Blaðsíða 7
Eitt
og annað
Halló Pðstur.
Þetta er ífyrsta sinn, sem ég
skrifa þér, Eg vona, að þú
hendir ekki bréfinu, því þetta
er fyrst og síðasta bréfið til blaðs
í landinu. Viltu koma hinu
bréfinu til skila? Þúsund
þakkir, héma koma sþurn-
ingarnar:
Hvað er allt happa mitt, fædd
13- mars? Viltu grafa upp
nokkrar blaðaaddressur fyrir
mig í Englandi, Hawaii og í
Perú eða Nýja Sjálandi. Hvenær •
eiga Sigurður Sigurjónssson
leikari og Þórbergur Þðrðarson
rithöfundur afmœli? Hvernig er
hægt að fita sig? (borða eins og
hestur). Hvað heita litlu
vœngirnir, sem eru settir niður
við lendingu flugvéla? Dóu allir
í áætlunarflugvélinni, sem fórst
utan við Vatnsleysuströnd árið
1952? Jæja, ekki birta nafnið
mitt. Hvað lestu úr skriftinni,
og hvað heldurðu, að ég sé
gömul? Eru margar staf-
setningarvillur? Hvaða merki á
best við fiskana? Blaðið er gott,
en slæm sendingarþjónusta.
Milljón þakkir.
Best að byrja að reyna að
svara! Happatölur þínar eru 3
og 4, happalitur blárauður, og
happadagur er fimmtudagur.
Þú ert mjög vingjarnleg per-
sóna, gestrisin og mannúðleg.
Hjónaband þitt verður
hamingjusamt, en ekki er
óiíklegt, að þú giftist tvisvar. Ég
hef engin heimilisföng á
blöðum í Perú, Nýja Sjálandi
eða á Hawaii, en þú getur reynt
að skrifa til „Woman's Own,
King's Reach Tower, London
SE1 GLS, England," Ég veit
ekki hvenær Sigurður
Sigurjónsson á afmæli, en
Þórbergur Þórðarson var
fæddur 12. mars 1888. Hvað
varðar fitunina, ' þá hefur þú
sjálf svarað því! Borðaðu eins
og hestur, og ég hef heyrt það
sé gott að byrja á fullum diski af
hafragrauti á morgnana.
Vængirnir á vélunum nefnast
„flapsar." Áætlunarflugvélin
Glitfaxi týndist út af Vatns-
leysuströnd í febrúar 1951 og
fannst síðar út af Álftanesi.
Með henni fórust 20 manns, 3ja
manna áhöfn og IV farþegar.
Skriftin ber vott um gott
skapferli, og þú ert 15-16 ára.
Það voru mjög fáar starf-
setningarvillur í bréfinu, og þú
þarft ekkert að hafa áhyggjur af
íslenskunni þinni. Krabbinn á
best við fiskana.
Skammar-
bréf frá
Englandi!
Háttvirti ,, hjálþarmaðurl''
Eg hef aldrei ritað þérlínu
áður og hef heldur ekki hugsað
mér að gera það í framtíðinni,
vegna þess að ég er EKKl vön
að leggja mín persónulegu
vandamál fyrir einhvern, sem
ég hef ekki hugmynd um hver
er, allra síst þegar ég þekki það
eina til hans, að hann snýr
ávallt út úr fyrir þeim, sem til
hans leita. Af hverju heldurðu,
að allir þessir krakkar skrifi þér?
F/est þessara bréfa ganga út á
eitthvað kynferðislegt.
Auðsjáanlegt er, að fræðslu
vantar á þessu sviði, og afhverju
ekkiráða einhvern sérmennt-
aðan mann á þessu sviði, gefa
uþp heimilisfang (þar sem hann
starjar) og lofa unglingum og
öllum að skrifa honum um sín
vandamál ? Það sýnir sig, að
Kynfræðsludeild Heilsuverndar-
stöðvarinnar þjónar ekki
fullkomlega til^angi sínum(öll
vitum við, að Islendingar eru
feimnir). Alla vega er ég viss
um að ,,Pðsturinn ’ ’ í Vikunni
hefur ekki verið hugsaður fyrst
sem slíkur þáttur, eins og hann
er í dag. Mér þykir fáránlegt,
hvernig unglingar og fleira fólk
skrifar til Póstsins, eins og hann
sé einhver ALVITUR (sem hann
er ALLS EKKI það getur nú
hver einn og einasti mennskur
maður séð á svörum hans).I
Vikunni, nánar tiltekið
,,Póstinum" 6. aþríl, 14. tbl.
40. árg., var bréf frá stúlku,
sem sagðist hafa komið að
systur sinni grátandi yfir
Vikunni, þar sem hún hafi
fengið þetta frekjulega svar
ykkar: ,,Að hún væri ekkert
ófrísk, ’ ’ og var skammandi
ykkur fyrir það. En . . .
hverju svöruðuð þið?
,,Pósturinn veit ekki allt, ” og
,,En auðvitað gat Pósturinn
ekki vitað, hvort systir þín væri
ófrísk eður ei . . . "Jæja, ef
þið vissuð það ekki, hvers vegna
svöruðuð þið þá, að hún vœri
EKKI ófrísk? Þið, . . ! Það
hefur engin áhrif á mig, þó að
þið svarið, að enginn sé
fullkominn og ekki Pósturinn
heldur, en . . . ég myndi telja
þetta langa vegalengd frá
fullkomnun . ... ! Einnig er
ég alls ekki ánægð með
,, Vikuna ’ ’ (tímaritið) íheild,
það væri hægt að vinna hana
mun betur. Er hún ekki
fjölskyldublað? Mér þykir hún
ansi innantóm. Af hverju hafið
þið ekki fleiri smásögur? (þær
hafa verið góðar hingað til). Og
af hverju ekki tískuþátt um
tískuna í París og London
o.s.frv. ? (Sá þáttur gæti verið
fyrir alla fjölskylduna, ef hann
væri sæmilega unninn). Þið
gætuð fengið efni úr tísku-
blöðum og meira að segja
dagblöðum (má ég benda á
breska dagblaðið The Daily
Telegraph og Vouge). Og ekki
væriafleitt aðhafa mótorhjóla-
þátt eða brlaþátt (einnig eitt-
hvað um vélaviðgerðir o.s.frv.)
Og þátt um tslenska náttúru,
ferðalög, ferðasögur, og svona
mætti lengi telja. Þegarþið
hafið bætt einhverju af þessu
við Vikuna, þá skal ég kauþa
hana strax, en ekki fyrr.'
P.S. Þið þurfið ekki að segja
mér, hvaðþið,, haldið að ég sé
gömul" (meðþví að leita í
sþjaldskránni), ég skal taka af
ykkur ómakið. Eg er 17 ára.
Einnig þurfið þið ekki heldur
að segja mér, hvað þið lesið úr
skriftinni, þ.e. hvernig persóna
ég er, vegna þess að ég þekki
sjálfa mig nógu mikið og þarf
ekki ykkar svar til að átta mig á
sjálfn mér.
3704-4938
Tarna er hressilega upp í sig
tekið, og vonandi hefurðu
fengið allgóða útrás, því ekki
sýnist þér veita af. Skrifaðu
bara aftur, þegar vont geð
þarfnast útrásar. Við getum
verið sammála um það, að
Vikuna mætti vinna betur, og í
sannnleika sagt, þá erum við
alltaf að reyna. Vonandi veröur
hún einhvern tíma nógu góð
handa þér!
Lóló.,
21. TBL.VIKAN 7