Vikan - 25.05.1978, Blaðsíða 46
STJÖRNUSPA
llniiurinn 2l.mars 20.ni'iril
Það er ekki of seint að
skipta um skoðun í
áriðandi máli, til að
forðast misskilning,
leiðindi og deilur. Vinur
þinn á eftir að angra þig
mjög. Vertu heima á
mánudagskvöld.
kr.'hhinii 22. jimi 2J. júli
Kunningi þinn reynir að
notfæra sér góðsemi
þína, og er reiði þín
réttlætanleg. Láttu ekki
traðka á tilfinningum
þínum og sýndu óhikað,
hvað I þér býr. Heilla-
litur er grænn.
Ráðagerð varðandi betr-
umbætur á heimili þínu
fær góðar undirtektir,
og þú færð góða hjálp
við að framkvæma
hlutina. Vinur þinn
krefst mikils af þér, en
reyndu að uppfylla óskir
hans.
Þú þarft að framkvæma
ákveðið, áríðandi verk-
efni, og kemur fyrri
reynsla þin þér að
góðum notum í þeim
málefnum. Þú munt
uppskera ríkulega laun
erfiðis þins.
N.iuliú 2l.;ipríl 2l.m;ii
Þú verður að leggja hart
að þér og gefa í engu
eftir, ef þú vilt ná
góðum árangri.
Kvöldunum ættirðu að
eyða sem mest heima
við og reyna að taka þvi
rólega. Heillatala er 7.
I.joniú 24. júlí 24. ijíú‘l
Eitthvað, sem þú hefur
ráðgert, fer út um þúfur
og veldur þér miklum
leiðindum. Þú kynnist
nýju fólki i þessari viku,
og munu þau kynni eiga
eftir að leiða margt
skemmtilegt af sér.
Þú verður að reyna að
temja þér meira hóf i
peningaeyðslunni. Allt
bendir til, að þú verðir
fyrir óvenju miklum
útgjöldum i þessari
viku. Láttu ekki bera
mikið á þér i
samkvæmi.
\alnshcrinn 2l. jan. lú.fchr.
Varastu að láta stjórn-
astaf tilfinningun-
um, og haltu athyglis-
gáfu þinni vel vakandi.
Vikan verðurskemmti-
leg og viðburðarrík, og
þú nýtur þin vel i góðra
vina hópi.
T\ihurarnir 22. mai 21. júní
Komdu hugntyndum
þinum á framfæri sem
fyrst, áður en einhver
annar verður til að
nætfæra sér það. sem
bú hefur ráðgert.
Breyting á áætlun veldur
þér miklum erfiðleikum.
\lc> jan 2l.:ii<úsl 2.\.scpi
Þú lendir i alvarlegri
rimmu við einn besta
vin þinn, og fær það
mikið á þig, Mundu þó,
að á meðan þú hefur
rétt fyrir þér, er alltaf
hægt að laga málin, og
vertu réttlátur.
Kotímaúiirinn 24.nó\. 21.dcs.
Tilraun þin til að vera
fyndinn og skemmti-
legur misheppnast, og
þú særir einhvern með
orðum þinum og
athöfnunt. Komdu i veg
fyrir allan misskilning
með því að skýra
tilgang þinn.
Fiskarnir 20. fchr. 20. m-irs
Það vill til, að þú ert vel
fyrirkallaður i þessari
viku. svo ekkert kemur
þér úr jafnvægi. Margt
einkennilegt mun henda
þig, en þó ekkert veru-
lega slæmt. Heillalitur
er blágrænn.
Og svo hafði Primer fulltrúi tekið
koníaksflöskuna og hann og læknir-
inn grandskoðað hana, og síðan
hafði Primer spurt Gwendu, hvenær
þau hefðu síðast fengið sér koníak
úrþessari flösku.
Gwenda sagði, að það væri senni-
lega nokkuð langt um liðið. Þau
hefðu verið i burtu — þau hefðu far-
ið norður í land og síðast þegar þau
fengu ser eitthvað, þá hefði það ver-
ið gin. ,,En ég var næstum því búin
að fá mér koníak í gær,” sagði
Gwenda. „En koníak minnir mig
bara alltaf á sjóveiki, svo Giles opn-
aði nýja viskíflösku.”
„Þar varstu heppin, frú Reed. Ef
þú hefðir drukkið koniakið I gær, þá
stórefa ég, að þú værir á lífi í dag."
„Giles ætlaði að fá sér koníak —
en hætti svo við, og fékk sér viskí,
eins og ég.”
Það fór hrollur um Gwendu.
Lögreglan var farin og Giles hafði
farið á eftir þeim, um leið og hann í
mestu fljótheitum hafði gleypt í sig
hádegisverðinn, sem var bara dósa-
matur Iþví frú Cocker hafði verið
flutt á spítala). Jafnvel núna, þegar
hún var orðin ein, þá gat Gwenda
varla trúað öllu því, sem gerst hafði
um morguninn.
En einu var ekki hægt að líta fram
hjá: Jackie Afflick og Walter Fane
höfðu báðir verið hér í gær. Þeir
gátu báðir hafa sett eitthvað í kon-
íakið, og hver gat tilgangurinn verið
með þessum simhringingum, nema
að skapa tækifæri til þess að setja
eitur í koníakið? Gwenda og Giles
höfðu verið komin of nálægt sann-
leikanum. Eða hafði einhver þriðji
aðili komið inn að utan, kannski inn
um borðstofugluggann, meðan hún
og Giles höfðu setið heima hjá
Kennedy og beðið eftir Lily Kimble?
Einhver þriðji aðili, sem notaði sím-
tölin til þess að grunur félli á hina
tvo?
En Gwenda sá ekkert vit í því. Ef
það hefði verið einhver þriðji aðili,
þá hefði hann áreiðanlega ekki
hringt nema I annan þessara manna.
Hann hefði viljað að grunur félli á
einhvern einn en ekki tvo. Og hver
gæti líka þriðji aðilinn verið? Það
var öruggt, að Erskine hafði verið I
Northumberland. Nei, Walter Fane
hlaut að hafa hringt í Afflick og látið
sem hringt hefði verið í hann sjálfan.
Eða öfugt. Það var annar hvor
þeirra, og lögreglan ætti hægara
með að komast að hvor þeirra það
var. A meðan væri fylgst með ferð-
um þeirra beggja. Þeir gætu ekki —
ekki reynt neitt slíkt aftur. Það fór
aftur hrollur um Gwendu Það var
dálitið erfitt, svo ekki sé meira sagt,
að átta sig á því, að það hafði ein-
hver reynt að drepa hana. „Hættu-
legt," hafði ungfrú Marple sagt I
upphafi. En hún og Giles höfðu ekki
tekið það alvarlega. Jafnvel eftir að
Lily Kimble hafði verið drepin hafði
ekki hvarflað að henni, að einhver
myndi reyna að drepa hana eða
Giles. Bara af því, að hún og Giles
voru að leiða fram í dagsljósið, það
sem gerst hafði fyrir átján árum síð-
an. Þau voru að reyna að komast að
því, hvað hafði átt sér stað — og
hverjum það væri að kenna.
Walter Fane og Jackie AffUck ?
Hvorþeirra?
Gwenda lokaði augunum og
reyndi að sjá þá fyrir sér, núna eftir
að máhð var orðið skýrara.
Hinn rósami Walter Fane, inni á
skrifstofunni sinni — köngulóin föla
í miðjum vefnum. Svo rólegur og
friðsamur í útUti. Hús með byrgða
glugga. Einhver dáinn í húsinu. Ein-
hver, sem hafði dáið fyrir átján ár-
um — en var samt þarna enn. En
hvað henni fannst Walter Fane núna
vera geigvænlegur! Walter Fane,
sem einu sinni hafði ætlað að drepa
bróður sinn. Walter Fane, sem Hel-
en hafði neitað að giftast, einu sinni
hér l.eima, og einu sinni I Indlandi.
Tvöfalt hrvggbrot. Tvöföld niður-
læging. Walter Fane, sem var svo
rólegur og litið tUfinninganæmur, —
kannski gat hann ekki tjáð sig,
nerna með morðum og ofbeldi —
þannig hafði kannski hin rólega
Lizzie Borden líka verið . . .
Gwenda opnaði augun. Var hún
ekki búin að sannfæra sjálfa sig um,
að Walter Fane væri rétti maður-
inn?
Það væri kannski hægt að gera
eins með Afflick. Með augu hans op-
in, en ekki lokuð.
Koflóttu fotin hans og áberandi
framkoma voru alger andstæða við
Walter Fane — það var hvorki hægt
að segja að hann væri bældur eða ró-
lyndur. En kannski stafaði þessi
framkoma hans af minnimáttar-
kennd. Sálfræðingar segja, að sUkt
lýsi sér oft þannig. Fólk, sem er ekki
oruggt með sjálft sig hefur sig oft
mest í frammi. Hann fékk ekki Hel-
en, af þvi hann þótti ekki nógu góð-
ur fyrir hana. Gevmt en ekki
gleymt. Akveðinn í að komast áfram
í heiminum. Ofsóttur. Allir á móti
honum. Rekinn úr vinnu, vegna þess
að einhver „óvinur” hans beitti
hahn svikráðum. Það sýndi best, að
Afflick var ekki alveg eins og geng-
ur og gerist. SUkum manni fvndist
han eflaust öðlast mikið vald, ef
hann dræpi einhvern. Góðlegt og
glaðlegt andUt hans var í rauninni
grimmdarlegt. Hann var grimmur
maður — föla, giannvaxna konan
hans vissi það og hún hræddist
hann. Liiy Kimble hafði ógnað hon-
um og Lily Kimble hafði dáið.
Gwenda og Giles trufluðu hann —
þess vegna urðu Gwenda og Giles
líka að devja, og hann ætlaði að láta
grun falla á Walter Fane, þvi hann
hafði rekið hann úr starfi einu sinni.
46VIKAN 21. TBL.