Vikan - 25.05.1978, Blaðsíða 51
— Heyrðu mig nú Sigríður, eru ekki þessir flóamarkaðir hér í
hverfinu farnir að ganga út í öfgar?
I NÆSTU lflKU
Dr. Alda Möller
Að undanförnu hefur mjög færst í
vöxt áhugi fólks á öllu, er lýtur að mat-
vælum, það vill gjarna tileinka sér holl-
ustuhætti og fræðslu um næringarefni
fæðunnar. Dr. Alda Möller er einn fárra
matvælafræðinga hér á landi, og Vikan
ræddi við hana um starf hennar og skoð-
anir hennar á þeim umræðum, sem ver-
ið hafa um fæðuval og hollustuhætti.
Viðtalið birtist i næstu Viku, en þar
kemur meðal annars fram, að Alda telur
fræðslu I þessum efnum mjög ábótavant
og vill láta flytja hana inn I grunnskól-
ana.
Ótrauðar textílkonur
Sýning Textilfélagsins í Norræna
Húsinu á dögunum vakti athygli fyrir
frumlegan hressileika, og i næsta blaði
má sjá myndir af nokkrum verkanna á
sýningunni, ef það mætti verða til að
vekja áhuga þeirra, sem ekki komust til
að sjá. Þar er einnig nokkur fróðleikur
um þetta ágæta félag, sem þær Sigurlaug
Jóhannsdóttir, Þorbjörg Þórðardóttir og
Ragna Róbertsdóttir létu blaðinu I té, en
þær og félagar þeirra I Textílfélaginu eru
ótrauðar að ryðja listgrein sinni braut.
Robert Burns
25. júlí 1796 var skoska skáldið Ro-
bert Burns jarðsunginn. Hann dó sem
fátækur maður, en þó fylgdu honum til
grafar yfir tiu þúsund manns, og yfir-
maður herdeildar héraðsins lét skjóta
heiðursskotum honum til sæmdar.
„Burns hefur endurvakið Skotland sem
þjóð”, sagði eitt sinn skoskur stjórnmála-
maður, og i dag eru styttur af Burns um
allt Skotland. Ástamál hans voru ekki
síður litrík en skáldskapur hans, og þau
eru einmitt til umræðu i grein, sem birt-
ist I næstu Viku.
VIKAN. Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn:
Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson, Anna Kristine Magnúsdóttir, Hrafnhildur
Sveinsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson.
Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn í
Síðumúla 12, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing I Þverholti 11. sími 27022.
Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 530. Áskriftarverð kr.- 2000 pr.
mánuð, kr. 6000 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 11.300 fyrir 26
blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram, gjalddagar: Nóvember,
febrúar, maí, ágúst. Áskrift I Reykjavík og Kópavogi greiðist mánaðarlega.
21. TBL.VIKAN 51