Vikan - 25.05.1978, Blaðsíða 17
komið afturhaldsbylgja í mörgum löndum í
kjölfar þessara umbrota.
Að búa sér til
kringumstæður
— Þú fékkst nýlega starfslaun til rit-
starfa. Hefurðu hugsað þér að leggja stund
á skáldsagnagerð?
— Ég hef nú ekki haft aðstöðu til að
byrja á neinu öðru. En þetta var alvöru-
tilraun, og mér finnst hún hafa komið
þannig út, að það væri rangt að hætta að
svo stöddu. Vandinn er að búa sér þannig
aðstöðu, að verulegur tími fáist til þessara
verka. Skáldsagnagerð getur enginn staðið í
nema hafa í hæsta lagi part af starfi með
því. Eitt, sem þarf að tryggja, er sífellt
upplýsingastreymi inn i hausinn á manni.
Það er alger forsenda þess að geta látið
nokkuð frá sér. Til þess eins þarf mikinn
tíma. Þá er sjálft aðalverkið ótalið. Finnst
þér ekki skrítið, að nokkur maður láti hafa
sig í þetta?
A.Á.S.
Til hægri:
„Mikið um hugmyndir i loftinu um hlutverka-
skiptingu kynjanna." Mynd tekin á Kvenna-
frídaginn, 24. okt 1975.
Til vinstri:
„Það á ekki að viðurkenna eigin tilfinningar, lita
á aðra karlmenn sem keppinauta og sýna aldrei
öðrum, að það sé mannleg vera undir hörund-
inu."
Að neðan:
„Ég hugsa mér samfélag, þar sem er miklu minni
sérhæfing og aðskilnaður eftir kynjum og aldrí."
21. TBL. VIKAN 17