Vikan - 23.11.1978, Side 22
hana. Hún barðist við að horfa áfram
beint í augu hans.
Hún beið eftir að hann héldi áfram.
„Finnstþérkalkún góður?”
„Á ég að segja já?”
„Þér finnst þaðekki.”
„Ef ég á að segja satt, nei. Ekkert
agalega.” Henni fannst strax að hún yrði
að gefa þessum indæla manni einhverja
ástæðu. „Fuglareru skriðdýr. Uppruna-
lega, líffræðilega séð. Vissirðu það?”
„Líklega ekki.” Hann setti aftur upp
baðhettu-einkennishúfuna. „Þá ætlarðu
ekki að fá neina happdrættismiða.”
„Þú átt við að ef faðir minn og ég
kaupum miða þá gætum við unnið
kalkún?”
„Það er alltaf möguleiki að þið vinnið
ekki.” Hann virtist afar hreinskilinn
varðandi þetta happdrætti. „Fyrir
þakkargjörðardaginn. Minnst tólf kíló.
Það er auðvitað heilmikið af kalkún, ef
manni þykir kalkún ekki góður.” Hann
var á leið til dyranna. Hann glotti.
„Þykir föður þínum góður kalkún?”
„Jafnvel enn minna en mér. Við
tökum tvomiða.”
„Já hérna,” sagði ungi maðurinn, tók
af sér húfuna og plægði gegnum svart
hárið með fingrunum. „Veistu það, að
ég hata beinlínis að gera þetta. Ég hefði
miklu frekar viljað fara á fótboltaleikirin
í dag. Mér finnst einhvern veginn alltaf
eins og ég sé að þvinga fólk til að kaupa
miða þegar ég er að þessu."
„Alls ekki,” sagði Rynn veraldarvön.
„Þetta er fyrir verðugan málstað. Þú
yrðir hissa ef þú vissir fyrir hverja
drottningin þarf að selja miða heima i
Englandi.”
Miglioriti horfði á stúlkuna. Stúlkan
horfði á hann og brot úr augnabliki
brosti hún nógu breitt til að það glitti í
brotnu tönnina.
„Hvað kosta þeir?”
„Fyrir tvo?Tvo dali.”
„Hinkraðu augnablik.”
Rynn gaf honum merki um að
fara ekki og hljóp upp stigann upp á
hæðina, sem var fyrir ofan lokaðar dyr
vinnuherbergisins.
Aleinn niðri flýtti Miglioriti sér út i
holið og að dyrunum á vinnuherberginu.
Hann barði létt á þær. Það kom ekkert
svar. Hann tók í húninn, en dyrnar voru
læstar. Efst úr stiganum kom rödd litlu
stúlkunnar.
„Einn. Tveir dalir.” Hún tók tvær
tröppur í einu og fletti sundur
seðlunum. Miglioriti dró upp hefti með
miðum og reif tvo úr.
„Og ef faðir minn og ég erum mjög
heppin," sagði Rynn brosandi, „þá
vinnum við tólf kilóa kalkún?”
Þau hlógu bæði.
Miglioriti geislaði. „Af hverju eru
ensk börn alltaf svona kurteis. Aldrei
myndu þau kalla mann svin.” Rynn
braut saman happdrættismiðana. Lög-
regluþjónninn brosti enn. „Ég vildi óska
að það væru fleiri eins og þú hérna. Það
myndi svo sannarlega gera mér vinnuna
auðveldari.” Hann stakk miðaheftinu
inn á sig aftur. „Jæja, ég verð víst að
fara og pranga út fleiri kalkúnsmiðum.
Þakka þér fyrir teið. Og samúðina.”
„Þau kímdu bæði. „Þakkaðu föður
þínum líka.” „Ég geri það.” Hún gekk til
dyranna með honum. „Sjáum við þig
aftur?"
„Komist ekki hjá þvi. Það er allt svo
smátt í sniðum hér á veturna.” Hann
opnaði dyrnar.
„Rignirenn.”
„Einsogheima.”
Miglioriti tók af sér húfuna og
athugaði hvort plasthettan væri
tryggilega á. Hann setti húfuna upp
aftur yfir svart hárið og gekk út.
Lögregluþjónninn sneri sér við undir
drjúpandi trjánum og kallaði til
stúlkunnar. „Þakka þér enn aftur,
ungfrú Jacobs. Og ég vona að þið vinnið
ekki kalkúninn.”
Rynn fann fyrir skyndilegum missi
þar sem hún horfði á eftir unga
dökkhærða manninum. Hún stóð enn
og horfði út i mistrið eftir að lögreglu-
billinn hafði runnið út trjágöngin.
Lengi stóð hún og andaði að sér köldu
loftinu, þrungnu ilmi af votu, deyjandi
laufi og hugsaði um liðna daga. Daga
eins og þennan í Hyde Park í London,
þegar nakin trén voru eins og penna-
teikningar í barnabók.
Annar bíll kom niður trjágöngin.
Dökkrauður bíll, sem stansaði fyrir
framan húsið. Málmhurð skelltist og
konan i tweedkápunni flýtti sér í átt til
hennar undir hvitri og rauðri brjóst-
sykursröndóttri regnhlíf.
Rynn beið þangað til konan í grófu
kápunni var komin nærri dyrunum.
„Halló, frú Hallet.”
Konan lét regnhlifina síga. Hörð blá
augun drógust saman í feitum
pokunum, þegar hún sá stúlkuna standa
i dyrunum. Rödd hennar var kuldaleg.
„Má ég koma inn?”
„Ég bauð þér.”
ÍCU&í.
Litla stúlkan við
endann á
trjágöngunum
Vl.kafli
Rynn kreisti hurðarhúninn þegar
bullandi skór frú Hallet sporuðu aur og
leðju í hverju skrefi yfir bónað eikar-
gólfið. Með því að rigsa gegnum húsið
og stilla sér upp við arininn gaf frú
Hallet sína yfirlýsingu — hvaða réttindi,
sem barnið hafði krafist við fyrri
heimsóknina, voru nú afturkölluð.
Konan barði stáloddi regnhlífarinnar
niður í flísarnar fyrir framan arininn til
að hrista vætuna af. Hún hnykkti
regnhlífinni upp og niður og til að ná
enn betur af henni og dropamir úðuðust
inn i eldinn.
„Aldrei að opna regnhlíf inni í húsi.”
Stúlkan mundi þessi orð eins nágranna
þeirra í London, eldgamallar tannlausrar
konu, sem lifði ei.tgöngu á dósamjólk,
og sem hafði á rigningardegi eins og
þessum skrækt þessa aðvörun. Af öllum
þeim möguleikum, sem maður hafði á
að kalla yfir sig óhamingju, þá var það
alversta að opna regnhlíf innan dyra.
Rynn mundi eftir aðvöruninni, en var
stolt af að hana skorti alla trú á
slikt. Hún varð að viðurkenna að frú
Hallet var ekki sú manntegund, sem
maður byggist við að óheppni myndi
voga sér að nálgast.
Rynn skildi dyrnar eftir upp á gátt
fyrir rigningunni til að sýna konunni, að
það væri ekki búist við að hún staldraði
við lengur en það tæki hana að sækja
sultukrukkurnar. Hún færði sig inn i
stofuna, dró fyrir gluggann og kveikti á
lampa. Það hafði verið hugdetta, eða
eðlishvöt, að undirbúa herbergið fyrir
kvöldið. Konan komst ekki hjá að sjá
breytinguna. Stúlkunni hafði tekist að fá
herbergið til að sýnast minna, hlýlegra,
og frekar en nokkru sinni fyrr, hennar
eigið herbergi.
Regnið barði þakið og gusaðist fyrir
utandyrnar.
Rynn vissi að frú Hallet beið eftir að
ná fullri athygli hennar áður en hún
hæfi mál sitt. Hún vissi líka að konan,
sem stóð þarna eins og skuggamynd á
móti birtu eldsins, yfirvegaði vandlega
það sem hún var um það bil að fara að
segja. Hvorug þeirra var alveg viðbúin,
þegar rödd konunnar barst út eins og
hvellt brothljóð trjágreinar.
„Ég ræddi við skólanefndina um þig i
morgun.”
Þetta var nóg til að byrja með. Hún
hafði látið Rynn vita að þótt þetta væri
heimili hennar, þá var hún aðeins barn.
Rynn hafði heitið því að ögra henni
ekki, en í reiði sinni yfir þessari árás varð
hún að berjast við að æpa ekki á þetta
bleika andlit að hún vissi að þetta var
22 Vikan 47- tbl.