Vikan - 23.11.1978, Page 55
NY FRAMHALDSSAGA
EFTIR LOIS PAXTON
Týnda
handrrtið
Hún var um stund að safna í sig kjarki, en svo
stakk hún lyklinum í skrána og opnaði hurðina.
Það sat maður við skrifborðið hennar og hún
saup hveljur. Hingað til hafði henni fundist hann
svo ósköp meinleysislegur, en þar sem hann sat
þarna og hallaði mjóum öxlunum yfir borðið, var
eitthvað ógnvekjandi við hann.
„O, eins og þeir, sem maður hefur séð
koma og fara hjá Rosamond hingað til.
Þau eiga það öll sameiginlegt að vera
hávær, frjálsleg, ábyrgðarlaus og ung.
Mér, sem er orðinn þrjátíu og fimm ára,
finnst þau að minnsta kosti vera ung. Þú
verður að fyrirgefa, en það hefur ekkert
þessu líkt gerst hér fyrr, svo ég veit ekki
hvað ég á að halda um þig, Harriet
Lane.”
„Ég hafði ekki lent í neinu þessu líku,
fyrr en ég kom hingað. Og tvisvar
sinnum á tveimur kvöldum er nú einum
of mikið.”
„Tvisvar?”
Harriet kinkaði kolli og sagði honum
frá því, sem gerst hafði kvöldið áður, En
hún sleppti þó að geta þess, hvernig hún
hafði legið og hlustað á fótatak hans,
cftir að hún var komin í rúmið.
„Hefurðu sagt frú Mander frá þessu?”
spurði Bryn,
„Nei. Bæði vegna þess, að hún var
ekki heima i morgun — né i kvöld, Og
svo vegna þess...”
„Vegna þess, að hún gæti líka haldið,
að þú ættir hér sjálf hlut að máli?”
„Einmitt.”
„Við hvaðstarfar þú annars?”
„Hvaða óheiðarleg atvinna er það,
sem vcldur þcssu áttu við," sagði Harriet
og brosti litið eitt. „Ég stunda fullkom-
lega heiðarlega atvinnu. Ég vinn hjá
bókmenntaumboði.”
„Er það virkilcga Og selurðu þá
btekur til útgefenda?”
„Já. Og einnig greinar og smásögur til
dagblaða og timarita.”
„Þú ætlar þó ekki að segja mér, að litli
bjáninn hún Rosamond sé rithöfundur?
spurði Bryn.
„Það sagði ég ekki." Harriet gætti
þess að engin svipbrigði sæjust á andliti
hennar og hugsaði hve vel Rosamond
hafði tekist að láta fólk fá rangt álit á
sjálfri sér.
„Ég trúði því ekki heldur,” sagði hann
og var fljótur að draga rangar ályktanir,
eins og hún hafði líka vonað, þvi hún
vildi að svo stöddu ekki koma upp um
skjólstæðing sinn.
„Heyrðu mig, ég veit að mér kemur
það ekkert við, cn heldurðu að þcssi
innbrot gcti beinst að þér persónulega?”
spurði Bryn allt I einu. „Ég á við, áttu
skartgripi eða einhver önnur verðmæti,
sem til dæmis þeir, sem fluttu fyrir þig,
gætu hafa rekiðaugun í?”
„Nei, ekkert slíkt. Og það var meira
að segja maður, sem flutti fyrir mig, sem
benti mér á, að það hefði verið framið
hér innbrot.”
„Ertu viss um að hann sé
heiðarlegur?”
„Það er ég ekkert viss um. ” Harrict
brosti þurrlega. „En ég trúi því ekki að
hann færi að stela frá mér — við höfum
þekkst í óratima.”
Bryn kinkaði kolli og fékk sér cinn
sopa. það rétt rifaði i augu hans. Loks
sagði hann: „Ég held, að þú getir hætt
að hafa áhyggjur af þessu. Ég gæti trúað
að einhver kunningi Rosamond hafi
skilið eftir hass í íbúðinni — eða eitt-
hvað annað, sem gæti hugsanlega gert
hann sakhæfan, og að hann hafi viljað
ná þvi aftur. Sennilcga hcfur hann nú
fundið það, sem hann leitaði að, eða
Rosamond verið búin að henda þvi, svo
það er ekki hér lengur. Ef þetta er rétt til
getið hjá mér, þá er engin ástæða til að
vera að nefna þetta við frú Mander.”
Þetta varsvoeinföld og likleg skýring,
að Harriet hrópaði fcgin: „Af hvcrju
hafði mér nú ekki komið þetta i hug?”
Hann horfði hugsandi á hana, án þess
að endurgjalda bros hennar, og af
augnaráði hans var ógcrlegt að geta sér
til um hvað hann var að hugsa. Hann
virtist ætla að segja eitthvað flcira. en
hætti við það. 1 staðinn sagði hann um
leið og hann stóð á fætur: „Ég verð að
fara.”
Harriet stóð lika á fætur og var fegin
að finna að hné hennar voru hætt að
skjálfa. „Ég er þér afskaplega þakklát —
mér brá ónotalega við þetta" Hún
hleypti i brýrnar. „Það lítur út fyrir að
það sé auðvelt að hræða mig. Ég
skammast mín hreinlega. Ég verð að
reyna að hafa betri stjórn á mér.”
„Á nýjum stöðum vekja oft einkenni-
legir atburðir frekar hræðslu hjá manni
Hafðu engar áhyggjur, Venjulega er hér
ósköp rólegt og friðsælt.”
„Nema þegar vinir Rosamond koma i
heimsókn?”
„Nema þegar þcir koma. Þú sagðist
ekki vera ein af þeim, aðcins þekkja
hana lítillega, svo ég vona að ég sé ekki
dónalegur.”
Bryn gekk til dyra. en sneri sér svo við
ogsagði: „Er allt í lagi með þig?”
„Já. allt í lagi. Þakka þér fyrir
viskíið.” Hún tók flöskuna og rétti
honum hana.
„Það var ekkert að þakka.” Hann fór
inn i sína ibúð og þau lokuðu dyrunum
samtímis.
Nokkrum minútum síðar heyrði
Harriet fótatak hans fjarlægjast niður;
stigann. Hann hafði ekki verið lengi að
klæða sig.
Þegar hún var búin að kveikja á
útvarpinu, læsa hurðinni og áhrifin af
viskíinu hans Bryns voru farin að virka,
lcið henni ágætlega. Hún kveikti öll
Ijósin og fór í siðbuxur og pcysu og fór
i að taka til i íbúðinni.
Þegar því var lokið, opnaði hún
kampavínsflöskuna, og hellti sér í glas
og raðaði öllu góðgætinu, sem Connie
hafði keypt, á bakka.
Allt I cinu kom hcnni i hug, að hún
ætti að skrifa foreldrum sinum og láta
þau vita um breytt heimilisfang hennar.
Eftir að faðir hennar fékk hjartaslag
hafði hann látið af störfum og nú bjuggu
foreldrar hennar i Frakklandi, nálægt
(irasse.
Þegar Bryn Kester kont heim, bankaði
hann léttilega á hurðina hjá henni
og kallaði: „Er allt i lagi?"
„Allt í þessu fína, þakka þér fyrir. ’
svaraði hún.
„Jæja, góða nótt þá." Hún heyrði að
hann fór inn til sin og lokaði hurðinni.
Harriet geispaði, þvoði matardiskana
og tók siðan bók með sér í rúmið. Hún
las nokkra kafla, en fann að hún var of
þreytt til að geta einbeitt sér að efninu.
Það var ekki fyrr en hún teygði sig í átt
að Ijósinu til að slökkva, að henni varð
aftur hugsað til heimkomu sinnar um
kvöldið. Þá varð henni Ijóst. að núna
sáust heldur engin nierki þess. að lásinn
hefði verið snertur — það var atriði,
sem Ron hafði tekið eftir. en Bryn
Kesterekkert minnstá.
Bryn var greinilega vel kunnugur
íbúðinni, því hann hafði gengið beint að
rétta skápnum til að ná i viskiglösin.
Kannski voru kynni hans og Rosamond
nánari en hann lét i veðri vaka.
Einhvcr hlaut að hafa lykil að
ibúðinni, og sú tilgáta hans, að hinn
óboðni gestur hefði verið að leita að
hassi, sem hann hcfði einhvcrn tíma
skilið eftir, var of auðkeypt. Það hlaut
að vera eitthvað mikilvægara en það.
Harriet læddist yfir að dyrunum til að
fullvissa sig um, að öryggislásinn væri á.
Það var hann. En nú var henni orðið
kalt og það leið langur timi þangað til
hún sofnaði — til þess eins að vakna
nógu snemma til að þjóta út og færa
bilinn i löglegt stæði.
Þcgar Harriet var komin upp á stiga-
pallinn á annarri hæð. kom Bryn
hlaupandi niður. Hann var í Ijósum
buxum og gulri rúllukragapeysu alveg
cins og hún. „Eins," sagði hann og hló.
Um leið og hann hélt áfram niður stig-
ann, kallaði hann yfir öxl sér: „Ég sé þig
seinna, vona ég.”
Harriet sperrti upp augun yfir þessari
skyndilcgu vinsemd hans og hélt áfram
upp til sin. Hún skildi þessa athugascmd
Bryns þegar hún kom inn i ibúðina og sá
að undir hurðina hafði verið ýtt bréfi
skrifuðu nteð sterklcgri rithönd — „Ef
þú hcfur ckkert annað fyrir stafni, viltu
þá borða kvöldmat með mér i kvöld? Ég
vona að þú getir það, Bryn.”
Harriet bjó um rúmið, burstaði hárið
og setti á sig varalit. Hún sagði við sjálfa
sig, að hún ætlaði svo sannarlega ckki að
borða með honum kvöldntat. Hún
hvorki þckkti hann, né treysti honum.
og auk þess. . . Auk þess hvað? Hún
hafði enga ástæðu til að ncita boði hans.
Og cf hún borðaði með honum myndi
hún lika geta aflað sér meiri vitncskju
um hann og um Rosamond. ef hann.
eins og hana grunaði, þckkti hana betur.
en hann lét uppi.
Nokkrum mínútum seinna var barið
að dyrum hjá hcnni og fyrir utan stóð
Bryn og brosti með eggjakassa i annarri
hendi. Það var cinlægni í augum hans og
spurn í svip hans, þegar hann sagði:
„Hvaðsegirðu um þetta?”
Hann var hávaxinn og herðabrciður,
eins og hún hafði áður tekið eftir, og
ákaflega karlmannlegur, cn hún lét það
ekki hafa áhrif á sig. Kannski var það
vegna þess, að hann virtist svo viss um
að hún myndi segja já, að Harriet
afþakkaði boð hans kurteislega en
ákveðið — „Þakka þér samt fyrir boðið,
en ég er með heimaverkefni, sem ég verð
aðsinna.”
„Það er ekki einu sinni það, að það
hafi þegar vcrið búið að bjóða þér út?”
Svartar augabrúnir hans lyftust. „Hver
er hin raunvcrulega ástæða? Sjáðu nú
47- tbl. Vikan 55