Vikan - 29.05.1980, Blaðsíða 50
Undarleg atvik — Ævar R. Kvaran
SVEPPURINN
IVIaður er nefndur Andrija Puharich
og er doktor i læknisfræði. Um hann
hefur hinn frægi rithöfundur og
gáfumaður Aldous Huxley haft þessi orð:
,,Dr. Puharich is one of the most
brilliant minds in parapsychology” eða:
,,Dr. Puharich er i hópi gáfuðustu
manna sem fást við rannsóknir í
dulsálarfræði.
Orðið parapsychology, sem á íslensku
heitir dulsálarfræði, er saman sett af
grísku orðunum para, sem þýðir eigin-
lega við hliðina á. og psyche. sem þýðir
sál.
Þetta táknar þvi þau fræði sem fjalla
um það sem frábrugðið hlýtur að teljast i
andlegum hæfileikum manna öllu venju-
legu, svo og fjalla þau um alls konar
umdeild fyrirbæri, eins og t.d. hugsana-
flutning. skyggni, fjarhrif, spádómsgáfu.
sem ýmsir merkir visindamenn eru nú
loksins að gefa fullan gaum og rannsaka
á visindalegan hátt. Þó erum við ekki
lengra komin I þessum efnum en það
að mikill meirihluti þessara lærðu
manna þorir hvergi nærri slíkum
rannsóknum að koma af ótta við að tapa
við það áliti starfsbræðra sinna og vera
kenndir við kukl.
En Andrija Puharich er ekki I þeirra
hópi. Hann er þvert á móti svo
áhugasamur um rannsóknir þessara
fyrirbæra að hann hefur komið á stofn
sérstakri rannsóknarstöð sem hann
rekur og stjórnar sjálfur í Maine-fylki í
Bandarikjunum þar sem hann á
heima. Hann hefur skrifað bók um
rannsóknir sínar sem vakið hefur mikla
athygli og hann nefnir The Sacred
Mushronm eða Sveppinn heli;a.
I þessari bók skýrir hann frá því
hvernig hann komst I kynni við ungan.
hollenskan myndhöggvara, Harry
Stone að nafni, sem varð fyrir furðuleg-
um skynjunum I transi eða miðilsdái. En
það var vinkona höfundar, Alice
Bouverie. sem fyrst vakti athygli hans á
þessum unga manni, en hún er auðug og
mikils metin kona i New York, listelsk
mjög. gestrisin. gjöful og mikill vinur
listamanna.
Kvöld nokkurt var Harry Stone I boði
hjá þessari konu og var hún að sýna
honum málverkasafn sitt. en hún á lista-
verk eftir ýmsa fræga nútímalistmálara.
Segir hún frá þvi að Stone hafði virst
þykja lítið til þessara listaverka koma
enda var hugur hans allur I höggmynda-
listinni. Þá datt henni i hug að sýna
honum egypska dýrgripi sem hún átti.
Meðal þeirra var hálsmen eitt sem sir
Wallis Budge, Egyptalandsfræðingur við
British Museum. hafði sagt tengda-
móður frú Bouverie að væri áletrað
HELGI
Við nánari rannsókn kom I Ijós að Ra
Ho Tep þessi er söguleg persóna þótt af
honum fari ekki miklar sögur og fátt sé
vitað með vissu um það tímabil sem
hann var uppi á.
En það sem dr. Puharich þótti einna
merkilegast af þvi sem Ra Ho Tep sagði
gegnum Harry Stone var það að dásvefn
sá eða trans, sem notaður er til þess að
losa sálina úr líkamanum, hefði verið
aðferð sem Egyptar beittu þegar hann
var uppi, en það var um 2700 árum f.
Kr. eða 2000 árum áður en slíkt þekktist
á Vesturlöndum.
Ennfremur virtist Ijóst að eitthvert
samband væri á milli þessa fyrirbæris og
sveppsins sem ýtnsir sértrúarflokkar viða
um heim hafa haft mikla helgi á, en
hingað til var ókunnugt um að slíkt
þekktist meðal Egypta.
Dr. Puharich sparaði sér sannarlega
ekki fyrirhöfnina til þess að komast að
hinu sanna i þessu niáli.
Það var eitt kvöld I rannsóknarstofu
dr. Puharichs í Maine að hann ákvað að
reyna dáleiðslu við Harry Stone.
Vinkona læknisins, frú Bouverie, var
viðstödd. En þá gerist hið furðulega. að
frú Bouverie dáleiðist og fellur i eins
konar trans en það hafði aldrei hent
hana áður.
Hún segir i leiðslunni að hún hafi
lifað áður og átt heima í Sýrlandi. En þvi
má skjóta hér inn að Harry hafði alltaf
haldið þvi fram þegar hann var i transi
að hún væri kona að nafni Antinea. Frú
Bouverie segir nú i transinum frá þvi
hvar hinn helgi sveppur. amanila
muscaria. sem er afar fágætur, geti
fundist þarna í nágrenninu.
Þegar hún vaknar úr transinum hefur
hún ekki hugmynd um hvað gerðist en
dr. Puharich segir henni að sjálfsögðu
frá því. Og tveim dögum siðar finnur
hún sveppinn á þeim stað sem hún hafði
lýst i transinum og reyndist ókleift að
finna fleiri jurtir þessarar tegundar
hvernig sem leitað var.
En þetta nægði vísindamanninum
vitanlega hvergi til þeirra víðtæku
rannsókna sem hann nú hugðist gera
með þessa merkilegu jurt og áhrif
hennar.
En það er skemmst frá því að segja að
með feiknalegri fyrirhöfn tókst dr.
Puharich að lokum að afla sér nægilegra
birgða. Nú er hann tilbúinn að hefja
rannsóknir sinar á verkunum amanita
muscaria á manninn. En hér verður að
gæta ýtrustu varúðar, þvi jurt þessi er
baneitruð. Aðalefnin i jurtinni, sem
áhrifum valda á neytanda, eru þrenn:
muscarine og atropine. sem bæði eru
banvæn en hafa andstæð áhrif hvort á
nafni frægrar drottningar Forn Egypta
og hefði það að öllum likindum verið
persónuleg eign hennar. En hér var átt
við Tii drottningu, móður hins fræga
faraós Amenhóteps IV eða Aknatons.
Frú Bouverie lýsti þessu i símtali frá
New York fyrir vini sinuni dr. Puharich.
sem þá var herlæknir staðsettur i
Marylandfylki. Frúin lýsti þessum
atburði með þessum orðum:..........hann
hafði ekki fyrr tekið við hálsmeninu en
liann tók allur að skjálfa og augnaráð
hans varð starandi, eins og í vitfirringi.
Hann reikaði um stund um stofuna en
hneig að lokum niður á stól. Ég varð
skelfingu lostin og óttaðist að hann væri
að fá flog. Betty, kona Harrys, sagðist
aldrei hafa séð hann í sliku ástandi. Ég
þaut fram til þess að sækja vatn handa
honum á meðan Betty studdi hann.
Þegar ég kom aftur sat hann teinréttur í
stólnum og starði með ofsafengnu augna-
ráði eitthvað út í buskann. Hann virtist
alls ekki sjá okkur en var að horfa á
eitthvað sem við gáturn ekki séð."
„Þetta hljómar líkast því að hann hafi
verið i miðilsdái." sagði Puharich.
læknir.
„Já. þetta virðist nijög forvitnilegt."
svaraði frúin. „Þegar það gerðist hafði
ég ekki hugmynd um hvað þetta gæti
verið. Þú hefðir vitanlega ekki óttast
þetta af þvi að þú ert læknir en ég hafði
aldrei fyrr séð mann falla I tans.”
„Nú. en hvað sannfærði þig þá um að
þetta væri miðilstrans?" spurði
læknirinn.
„Hann bara sat þarna og starði út i
tómið i um það bil fimm minútur. því
næst spratt hann upp og greip fast um
hönd mér, eins og i örvæntingu. Þetta
verkaði ákaflega óþægilega á mig. og
ekki síst vegna þess hvernig hann starði i
augu mér. Ég hef aldrei séð jafnsterkblá
augu á ævi minni. Hann endurtók i
sifellu: „Manstu ekki eftir mér, manstu
ekki eftir mér?" Þetta sagði hann hvað
eftir annað. Ég svaraði: „Vitanlega man
ég eftir þér, Harry!" En þetta hafði
engin áhrif á hann.
Þvi næst tók hann að tala á mjög
skýrri ensku um uppeldi sitt. En hann er
nýkominn frá Hollandi og ennþá mjög
stirður í enskunni. Mér varð ekki Ijóst að
neitt væri sérstaklega athyglisvert við
það sem hann sagði fyrr en hann bað urn
pappír og blýant og fór að teikna egypskt
myndletur.
Ég þóttist vita að þetta væri
hýroglýfur. þótt ég kunni ekki orð i
egypsku. Af þessu varð mér Ijóst að
hann væri i transi. Þá tók hann að segja
mér frá einhverju lyfi sem verkaði
hvetjandi á sálræna hæfileika manns.
Þess vegna hringdi ég til þin þvi þú ert
eini maðurinn sem ég þekki og kynni að
geta lesið eitthvert vit úr því sem Harry
sagði. Mér leikur nokkur forvitni á að
vita um hvað þetta snýst allt saman."
„Já, þetta virðist allforvitnilegt.”
svaraði dr. Puharich. „Sendu mér afrit
af því sem hann sagði og þá skal ég láta
skoðun mina i Ijós."
„Sem betur fer skrifuðum við niður."
sagði frúin. „Ég sendi þér það með hraði
þegar i stað. Vertu blessaður. nú ætla ég
að sleppa þér aftur til sjúklinganna
þinna.”
„Vertu blessuð. Þú munt heyra frá
mér strax og ég hef eitthvað urn þetta að
segja.”
Og með þessum orðum lauk þessu
kynlega samtali. sem jafnframt var
upphaf að ítarlegum rannsóknum dr.
Puharichs á sálrænum hæfileikum
hollenska myndhöggvarans Harrys
Stones.
Það sem Puharich lækni þótt einna
merkilegast af þvi sem Harry Stone
sagði i transinum var lýsing hans á jurt
nokkurri sem nota mætti til þess að
koma fólki i trans. Eftir viðtækar athug-
anir komst dr. Puharich að þvi að þetta
myndi vera sveppategund nokkur,
amanita muscaria.
En það er athyglisvert um þessa jurt
að þessara sveppa er víða getið i álfa
sögum og öðrum þjóðsögum. Læknirinn
komst einnig að því að sveppur þessi
væri notaður við hátíðleg tækifæri í
Siberiu til þess að shaman. eða æðsti
prestur, gæti farið sálförum, þ.e. losnað
úr likamanum.
En hvað egypska myndletrið snart
reyndist það við þýðingu bera með sér að
það væri skrifað gegnum Harry Stone af
Ra Ho Tep nokkrum sem hélt því fram
að hann væri prins, sonur faraós fjórðu
egypsku konungsættarinnar.
50 Vikan 22. tbl.