Vikan - 29.05.1980, Blaðsíða 6
Krabbamein
ÁRLEG TÍÐNI
BRJÓSTAKRABBAMEINS
Á ÍSLANDI
MIÐAÐ VIÐ 100.000 KONUR 62.4
1955-59 1960-64 1965-69 1970—74 75-77
KRABBA-
MEIN
IBRJÓSTI
þessum rannsóknaraðferðum sem við
höfum í dag til umráða veitir þó
fullkomið öryggi. Rannsókn með nálar-
stungu og frumurannsókn er aðallega
notuð í þeim tilvikum þar sem fundist
hefur eitthvað athugavert, annaðhvort
með læknisskoðun eða þá með brjósta-
mynd. Rannsóknin er fólgin i því að
stungið er með örfínni nál inn i æxlið
eða hið grunsamlega svæði og með
sprautu er soginn út örfinn vessi sem
strokinn er út á gler og þannig fæst
frumusýni. Þessi aðferð er talin mjög
örugg. Hin endanlega greining brjósta-
krabbameins er byggð á vefjasýni.
Þrenns konar tækni er beitt við
myndatökur. I fyrsta lagi er það
svonefnd „mammographia” (röntgen-
mynd), sem notuð er hér á landi og veitir
95% öryggi sem rannsóknaraðferð. Með
notkun sjálfvirkrar innstillingar og
mjög Ijósnæmra filma er hægt að ná
fullkomnum myndum af brjóstunum og
greina byrjandi illkynja breytingar sem
aðeins eru 2-3 millimetrar að stærð (með
þreifingu finnast hnútarair fyrst er þeir
eru orðnir yfir l sentimetri i þvermál). I
öðru lagi er sú aðferð sem nefnist
„thermographia" eða hitamynd. Þessi
rannsóknaraðferð er einföld og ekki um
að ræða skaðlega geislun. Sé æxli i
brjóstinu verður aukin útgeislun á
viðkomandi svæði og þessi útgeislun er
meiri sé þetta illkynja æxli. Eftir 10 til
15 mínútna kælingu af brjóstunum er
tekin hitamynd 1 litrófi.
„Thermographian” hefur hins vegar
ekki verið talin nægilega örugg þvi með
henni greinast aðeins um 70% af
illkynja æxlum. Þá er það
„xeroradiographia” eða rafeindamynda-
taka sem er tiltölulega ný aðferð við
greiningu brjóstakrabbameins. Röntgen-
geislum er hleypt í gegnum segulsvið. I
stað venjulegrar röntgenfilmu er notuð
selenplata sem eftir geislun er fram-
kölluð í sérstakri framköllunarvél þar
sem ekki eru notuð kemisk efni. Selen-
einingarnar safnast misjafnlega saman
eftir því hvað vefurinn tekur mikið i sig
af geislunum. Við sjálfa myndatökuna
er aftur á móti notað venjulegt röntgen-
tæki. Á um 90 sekúndum fæst fram
mynd á pappír sem sýnir greinilega alla
æðateikningu og bandvefsuppbyggingu
brjóstavefsins. Þessi rannsóknaraðferð
hefur marga kosti fram yfir þær sem
áður eru nefndar en tækin eru geysilega
dýr. Kosturinn við þessa tækni er sá að
mun fljótlegra er að lesa úr filmunum en
sjálf rannsóknaraðferðin er ekki talin
öruggari en „mammographian”.
Góðkynja — illkynja æxli
Hvaða munur er á góðkynja og
illkynja æxli í brjósti?
Það sem einkum skilur á milli
góðkynja og illkynja æxla er sú
staðreynd að góðkynja æxli vaxa stað-
bundið. þ.e.a.s. þau vaxa ekki inn í nær-
liggjandi vefi heldur ýta þeim frá sér en
illkynja æxli vaxa inn i nærliggjandi
vefi. Annar reginmunurinn er sá að
góðkynja æxli senda ekki útsæði út um
líkamann á seinni stigum eins og
illkynja æxli gera. Auk þess má nefna að
mikill munur er á frumuskiptingu og
vefjabreytingu góðkynja og illkynja
æxla en varla ástæða til að fara nánar út
i það hér.
Líflö hefur fallið í sinn
eðlilega farveg
í kringum árið 1952 var
stofnaður félagsskapur í Banda-
ríkjunum sem hafði það að
markmiði að aðstoða konur sem
gengu í gegnum þá reynslu að
fjarlægja varð brjóst þeirra
vegna krabbameins. Meðlimir
þessa félagsskapar höfðu eitt sér-
staklega sameiginlegt en það
var, að þeir höfðu sjálfir gengist
undir slíkar aðgerðir og höfðu
því þá reynslu sem gat orðið
öðrum að liði undir sömu
kringumstæðum. Á Norður-
löndunum voru konur í Noregi
fyrstar til að stofna slíka starf-
semi og hér á landi starfar nú
Samhjálp kvenna eins og þær
kalla sig. Hópurinn starfar í
tengslum við krabbameins-
félögin og hafa konur úr þessum
hópi m.a. verið sendar á Evrópu-
þing lækna til að kynna starf-
semi sína.
Tveir forsvarsmanna þessa
hóps, þær Erla Einarsdóttir og
Elín Finnbogadóttir, sögðu að
starfsenii þessi hefði hafist sl.
haust og að þær konur sem
starfa í þessum hópi telji sig
þegar hafa komist yfir andleg og
likamleg óþægindi í sambandi
við veikindin og vilji nú að aðrar
konur, sem gengist hafa undir
samskonar aðgerð, njóti góðs af
reynslu þeirra. Þessi hópur er
reiðubúinn til að koma í
heimsóknir á sjúkrahúsin og tala
við þær konur sem þess óska,
bæði fyrir og eftir aðgerð, og
hefur það oftsinnis reynst til
mikillar hjálpar. Hópurinn hefur
sett sér starfsreglur sem hann
vinnur eftir og er bundinn
þagnarheiti. Töldu þær Erla og
Elín að þegar hefði sýnt sig
greinilega að þörf var á slíkum
félagsskap því ekki skorti
verkefnin.
Meðal þess sem Samhjálp
kvenna aðstoðar sjúklinginn við,
er notkun gervibrjósta og þeirra
sérstöku brjóstahaldara sem eru
til á markaðnum hér.
Sjúkrahúsin í Reykjavík og á
Akranesi gefa konum ákveðna
gerð af brjóstahöldurum eftir
aðgerð og hafa þeir reynst vel.
Þeir eru léttir og í þá fer létt
fylling sem sett er í þar til gerðan
vaxa. Gervibrjóstið sjálft er fyllt
með Medical Glycerin og hefur
þá eiginleika að við hreyfingu
koma eðlilegar hreyfingar fram í
því líka. Með hverju gervibrjósti
er hlíf sem svampur er í og me
því að breyta honum í þunna
og þykkan er hægt að máta þa
eftir þvi sem hentar og jafnfran-
eftir því hvað aðgerðin er mikil.
Allir brjóstahaldarar er
hannaðir með vösum og þeir er
til í tveim litum, hvítir og húðli
aðir.
Konur geta auðveldleg
stundað sólböð og sund því t
eru sérhannaðir sundbolir me
vösum og sérstöku bandi undi
brjóstunum, bandi sem liggu
alveg aftur á bak og eru þessi
sundbolir einkar hentugii
Þessar vörur fást að Haman
höfða 1. Síminn er 31500.
6 Vikan 22. tbl.