Vikan - 29.05.1980, Blaðsíða 31
Popp
I tilefni af sjómannadeginum, sem er á
sunnudaginn kemur. 1. júní, er miðju-
myndin að þessu sinni af hinni söng-
glöðu áhöfn Halastjörnunnar sem aflað
hefur vel undanfarnar vikur á miðum
skemmtanalífsins. Plata þeirra, Meira
salt. hefur fallið í góðan jarðveg og á
létt dægurmúsík með textum um
sjómennsku greinilega miklu fylgi að
fagna hjá landanum. Það kemur reyndar
ekki á óvart því það sem öðru fremur
einkennir íslenska dægurmúsík eru
söngvar um sjómannslif, ástir og
ævintýr því tengd.
Flestallir um borð i aflaskipinu
Halastjörnunni eru vel sjóaðir i íslensku
skemmtanalifi og skal fyrstan telja
skipstjórann, Rúnar Júliusson, sem gerði
garðinn frægan hér á árum áður með
Hljómum frá Keflavík. Hann hefur
aldrei gefið spilamennskuna upp á
bátinn, þótt stundum hafi ekki viðrað
sem skyldi. og hefur af seiglu starfrækt
hljómsveitina Geimstein undanfarin ár.
Gylfi Ægisson, sjóarinn og lagasmiður-
inn góðkunni, er aftasti maður á bátnum
og er siglingafræðingurinn um borð.
Hann gefur tóninn og hefur samið öll
lög og texta á plötunni. Annar hásetinn
er Ari Jónsson, sem heldur er enginn
aukvisi. Hann lék i mörg ár með hinni
geysivinsælu hljómsveit Roof Tops —
var þar trommari og aðalsöngvari.
Hann hefur siðan sú hljómsveit lagði
upp laupana haldið kunnáttunni við í
ýmsum smærri danshljómsveitum og
hefur auðheyrilega engu gleymt. Hinn
ÁHÖFNIN Á HALASTJÖRNUNNI:
Allir vel sjóaðir
í íslensku
skemmtanalífi
hásetinn er Viðar Jónsson og er þetta
ekki í fyrsta sinn sem hann rær á svona
mið. Hann gaf út plötu fyrir nokkrunt
árum með sjómannalögum eftir sjálfan
sig og er því fær í flestan sjó á þessu
sviði. Loftskeytamaðurinn er F.ngilbert
Jensen. Hann lék. eins og Rúnar
skipstjóri, með Hljómunum frægu og
söng mörg þeirra bestu lög. Kokkurinn
er enginn annar en Grettir Björnsson,
snjallasti harmóníkuleikari landsins, og
er ekki dónalegt að hafa slíkan mann um
borð með nikkuna við höndina þegar vel
liggur á mannskapnum. Þá eru ótaldar
kvensurnar um borð. Þær eru ekki
margar áhafnirnar sem hafa á að skipa
tveimur valinkunnum söngkonum.
Kona skipstjórans, María Baldursdóttir,
hefur um margra ára skeið sungið með
hljómsveitum, nú með Geimsteini, og
hefur sungið inn á fjölmargar hljóm-
plötur. Hún er háseti um borð. Óreynd-
asti bátsverjinn er María Helena og
aðstoðar hún kokkinn við matseldina,
sérstaklega ef kjötsúpa er á boðstólum.
Hún hefur í vetur sungið með hljóm-
sveit Ragnars Bjarnasonar en kom fyrst
fram á sjónarsviðið i veigamiklu hlut
verki á plötunni Íslensk kjötsúpa.
Áhöfn Halastjörnunnar er þar með
upptalin og greinilegt að þar er valinn
maður í hverju rúmi. Skipshundurinn
Kobbi tilheyrir einnig áhöfninni en hann
fæst ekki til að syngja á mannanna visu
og lætur sér nægja að halla spekings-
lega undir flatt og hlusta af andakt þegar
mannskapurinn tekur lagið — reyndar
með tilheyrandi athugasemdum.
Gömlu góðu Skuggamir komnir aftur á kreik. Fré vinstri: Hank
Marvin gitariaikarinn netti, trommarinn Brian Bennett og Bruce Welch
gitarleikari.
SHADOWS:
Gömlu mennirnir slá í gegn á ný
Þeir byrjuðu að leika saman fyrir 22
árum og kölluðu sig Drifters — gitar
kvartett sem seinna átti mikið eftir að
láta að sér kveða í dægurtónlistinni
undir nafninu Shadows eða Skugg-
arnir. Þeir stóðu framan af í skugg-
anum af söngvaranum Cliff Richard,
á árunum kringum 1960 — voru
undirleikarar hans en sköpuðu sér þó
brátt nafn því leikur þeirra þótti sér-
lega skemmtilegur Þeir hlutu skjótan
frama, eignuðust aðdáendur um heim
allan og urðu fjölmörgum
hljómsveitum til eftirbreytni. Metsölu-
plöturnar frá áratugnum '60-70 skipta
tugum, bæði með og án Cliff Richard.
En frægðin er fallvölt og slitu þeir
samskiptum á tónlistarsviðinu að
mestu áður en áratugurinn 70 '80
gekk í garð.
Síðustu árin hafa þeir þó af og til
komið saman til að leika inn á
hljómplötur en hafa þess utan haft
ærinn starfa sem hljóðfæraleikarar
með hinum og þessum og eru eftir-
sóttir sem slíkir, svo ekki sé meira sagt.
Siðasta plata Shadows, String of hits,
en hún hefur hlotið sérlega góðar
viðtökur, hefur orðið til þess að gömlu
mennirnir hafa sameinað krafta sína á
ný og fara nú hljómleikaferðir víða
um lönd. I bigerðer svo ný hljómplata
sem ætti að sjá dagsins ljós með
sumrinu.
**. tbl. Vikan 31