Vikan - 29.05.1980, Blaðsíða 28
Jónas Kristjánsson skrifar um íslensk veitingahús
Aiuistyggilegustu matstofur landsins
eru við þjóðveginn. Viðast hvar er þar
hægt að fá ótrúlega vondan mat fyrir
ótrúlega hátt verð. Tilvera þeirra virðist
byggjast á glorsoltnum ferðamönnum,
sem eiga ekki i annað hús að venda.
Af þjóðvegarstöðum hefur Staðar-
skáli i Hrútafirði einna best orð á sér.
Hann er sagður eina matreiðsluvinin frá
Akranesi til Akureyrar. Hann er líka
opinn árið um kring og sleikir ekki bara
rjómann af hávertíðinni.
Staðarskáli er rúmgóður og snyrti-
legur. Hann er ekki óþægilega annríkis-
legur. Teppi á gólfi dregur úr hávaða.
Borð og stólar eru skemmtileg og laus
við að vera þreytuleg. Reynt er að hýrga
staðinn með blómum og misheppnuðu
rauðu og grænu veggfóðri.
Ferðamenn geta þvi hvílt sig í Staðar
skála I sæmilega rólegu umhverfi. Hitt
er undarlegra, að svona fjölsóttur staður
með mikla bensínsölu skyldi ekki geta
útvegað loft í bíldekk. Enn fráleitara er.
að sælgætissölustúlka þurfi að hafa
sigurhrós í röddinni, þegar hún lilkynnir
bensinkaupanda, að ekki sé hægt að fá
þetta loft.
Einkenni matreiðslunnar í Staðar-
skála var skipulögð eyðilegging alls
matar með fruntalegri ofnotkun á salti.
Annað einkenni er, að enginn matur
Boröað salt á nor
Einkunnir
nokkurra veitingahúsa
Marg Loft- Stillholt Staðarskáli
feldi Saga leiðir Holt Naust Hornið Laugaás Versalir (Akranesi) Hótel KEA (Hrútafirðil
Matur X5 8 6 9 4 6 7 7 7 7 4
Þjónusta X2 9 6 7 9 8 6 8 6 7 X
Vinlisti XI 6 6 6 4 X X 7 X 3 X
Umhverfi X2 7 7 7 9 8 7 8 8 7 6
Samtals XIO 78 62 79 60 62 61 74 63 66 32
Vegin meðaleinkunn Meðalverðaðal- oo 6 oo 6 6 6 7 6 7 3
rétta I krónum: 8.500 8.300 8.100 8.000 3.600 3.600 6.900 4.100 6.600 4.900
' Viö emm
heppnir, sitjum
hór þrátt fyrir allt
og veiöuml
28 Vlkan 22. tbl.