Vikan


Vikan - 31.07.1980, Síða 27

Vikan - 31.07.1980, Síða 27
óttu göngulagi sínu næstum alla leiðina að brennandi veggjum hússins. Áður en þeir ná til hennar, snýr hún sér aftur og virðist taka mið af steikjandi hitanum frá brennandi innviðum hússins. Hún á ekki i neinum vandræðum með að finna opnar dyrnar. Bílarnir tveir nema staðar, því hitinn er allt að því óbæri- legur í fjörutíu metra fjarlægð, en hún gengur hiklaust inn I eldhafið mitt. Hún nemur loks staðar inni í húsinu og lyftir höndum eins og hún fagni ein- hverju. Þá kviknar I henni, hún fuðrar upp i eldhafinu og hrynur loks i ókenni- legan öskuhrauk I rústum þess, sem hefði átt að vera heimili hennar. Elizabeth Ritzell, dóttir Hans Stiebel og eiginkona niunda barónettsins, hefur- lokið því verki. sem hún hóf fyrir rúm- um átján árum. EFTIRMÁLI Ian Wall er eins og maður nýskriðinn upp úr djúpum helvitis. Fölur og titrandi skoðar hann ímynd sína I glerkistunni og Reg Collins segir: „Strákarnir i bakher- berginu mæla með því. að ekkert verði gert. Ritzell er enn á lífi. þrátt fyrir hnífsstunguna. en lungu hans eru full af gasinu og það getur brugðið til beggja vona. hvort hann lifir eða deyr. Ef hann deyr er hægt að eyðileggja ímyndina án þess að það skaði þig. Ef hann lifir." hann yppti öxlum. „verðum við að reyna að tala liann til." Mike Benson er eftir sig og skjálfandi. þar sem hann horfir niður á tvö eins rúm, á tvær eins Júlíur i litlu herbergi á þriðju hæð. Hann biður óþolinmóður eftir læknin um. Þegar hann loks kemur' er settur skermur fyrir rúm þeirra beggja. Skoðunin er stutt. Læknirinn birtist á ný framundan skerminum þrem minútum siðar. Úrskurðurinn er lika stuttur. „Hvorug stúlkan er hrein mey.” Clive Ritzell er i gjörgæslu á sama spítala. Hnifsstungan er ekki alvarleg. en gasið i lungum hans hefur gert hann að flaki. sem berst um til að ná andan- um. Hann er dauða nær. en meðan hann er á lífi er lan Wall I hættu og Júliurnar (vær verða aldrei frjálsar. „Það hefði átt að láta hann drukkna." segir RegCollins meðfyrirlitningu. En hann drukknaði ekki. Og nú er fylgst með honum dag og nótt og hann fær þá læknismeðferð. sem liann þarf á aðhalda. Sextán af þeim tuttugu og fimm. sem voru i hvelfingunni. þegar sprengjurnar sprungu. hafa komist af. Þar með taldir Linckelmann og Wilm. Anton og Lukas Kroll. Ranieri og Campari. sonur Clive Ritzell og óþekktu konurnar tvær. sem tóku þátt i særingunum. Leven er særður. fékk kúlu I bakið. Hún hlýtur að hafa komið frá hinum skotglaða Hend rick. Cairol héfur fengið höfuðhögg. Mike Benson komst auðvitað af og Júliurnar tvær líka. Af einhentu mönn- unum tveim. sem þá eru ótaldir. er ann ardáinnen hinn lifir. Papagos er dáinn. skegg hans eins og þangflóki umhverfis prestlegt andlitiðog líkami hans illa þefjandi af vatninu. Hinar Júliurnar eru lika dauðar. sömu leiðis Larsen. Gércault. Hans Kroll og Paul Sorel. I myrkrinu rétt fyrir dögun er spítal inn jafnnærri því að sofa og hann verður nokkru sinni. 1 snyrtilegum rúmaröðum. einkaherbergjum eða í köldum skúffum likhússins liggja likamir i lyfjadái eða þegar dánir. Það vakir enginn nema næturvaktin. Hér brenna myrkvaðir náttlampar og á milli þeirra eru dimmir skuggar. Skyndilega fer vindhviða um mót tökusalinn. rífur upp hurðir, þeytir skjöl um á loft. rekur starfsliðið ringlað á fætur. Hún fer inn I aðalbygginguna og skilur eftir sig stybbu af úldnu vatni og rotnandi vatnagróðri og einhverju öðru. einhverju óskýranlegu en óumræðilega ónotalegu. Þegar hún fer um gangana deyja Ijósin og gluggatjöld bylgjast sem væru þau óttaslegin. Bjöllum er hringt til að kalla á hjálp. En hjálp við hverju? Við óþekktum hryllingi. sem grípur alla í húsinu. Vindurinn þýtur um sofandi deildirn ar. rífur ábreiður af rúmum. hvin við veggi og loft og skilur eftir sig slóð af brotnu gleri og dreifðu rusli. Og þegar bjöllurnar I turninum yfir aðalbygging unni hringja. nær hann takmarki sinu. Dyrnar að gjörgæsludeildinni þeylast upp. og fúl stybba hins illa fyllir hcrberg ið. Risavængir berja loftið og hljóðið i vængbroddunum er drynjandi I nætur kyrrðinni. ;Framhald í næsta blabi. Þjonusta Landsbankans er í alfamleió Neskaupstaður ESkit|()fðilf Landsbankinn hefur yfir 30 afgreiðslustaði í flestum byggðum landsins. Þjálfaó starfslið bankans leitast vió að uppfylla hinar margvíslegu þarfir viðskiptavina hans. í næstu afgreióslu aðstoöar starfsfólk Landsbankans yöur — jafnt viö innlend sem erlend vióskipti. Þannig getið þér sparað yður bæði tíma og fyrirhöfn. Kynniö yóur þjónustu Landsbankans. LANDSBANKINN Banki allm landsmanna 3I.tbl. Vifcan 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.