Vikan


Vikan - 31.07.1980, Blaðsíða 45

Vikan - 31.07.1980, Blaðsíða 45
Máltíðin þetta kvöld var sú dapurleg- asta sem ég man eftir. Alltaf sama umræðuefni. Hvers vegna fórum við ekki 1933? Eða a.m.k. þegar Karl hafði kvænst? Aumingja paþþi. Hann bar svo mikla virðingu fyrir mömmu. Hún var fögur kona, hefðar- kona. Hann sagði að hún væri há-þýsk. Forfeður hennar voru vinir prinsa og preláta. Og Jósef Weiss frá Varsjá? Faðir hans hafði átt litla lyfjabúð sem Móses frændi rak nú. Þeir höfðu velt hverjum eyri og fengið fé að láni svo að faðir minn gæti farið I læknisnám. Foreldrar mömmu höfðu hjálpað honum að koma á fót lækningastofu sinni þótt þau væru því mótfallin að mamma ætti pólskan gyðing. Inga og Karl voru komin til kvöld- verðar. Þau töluðu um manninn á járn- brautarstöðinni sem gæti hjálpað okkur að komast burt. Karl var alltaf ofurlítið dapurlegur á svip. Hann var grennri og hljóðari en áður og hristi nú höfuðið. „Það er hvergi hægt að fara,” sagði hann. „Til Frakklands kannski,” sagði pabbi, „eða Sviss." „Gyðingum er snúið frá,” sagði Karl. „Enginn vill okkur.” sagði ég. Karl brosti beisklega. „Maður sem starfar á bandarísku ræðismannsskrif stofunni sagði mér að Bandarikjamenn tækju nú ekki við þeim fjölda þýskra gyðinga sem mætti flytjast þangað. Þeir geta tekið við fleirum en gera það ekki.” Anna tók til máls. Hún vaj‘‘ævinlega huguð. „Það má einu gilda. Við eigum hvert annað að, er það ekki, mamma? Það eitt skiptir máli.” Mamma kinkaði kolli. „Hárrétt.” „Hreyfingin sem sér um að koma börnum til Englands,” sagði pabbi. „Við gætum talað... ” Hann þagnaði. „Það er búið að loka,” svaraði Karl. „Við Inga spurðumst fyrir.” „Við gætum falið okkur úti I skógi,” sagði Anna. Mamma sagði okkur Önnu að taka af borðinu. Við bárum diskana fram. Enginn virtist hafa haft matarlyst. „Ég veit ekkert lengur með vissu,” sagði pabbi. „Kannski Pólland. Ég er enn pólskur ríkisborgari.” „Ég hlusta ekki á þetta,” sagði mamma. „Ástandið er víst litlu betra þar.” Frammi I eldhúsi sagði ég við Önnu: „Mamma fær alltaf að ráða.” „Kannski hefur hún alltaf á réttu að standa.” Þegar við komum aftur inn leiddi mamma samræðurnar. Hún var sannfærð um gð Hitler myndi ekki bregðast okkur. Hann réði nú yfir Austurríki og Tékkóslóvakíu og hvers gæti hann frekar óskað sér? Hann væri eins og hver annar stjórnmálamaður og hefði notað gyðinga til að sameina þjóðina. Nú gæti hann látið okkur i friði. Karl hristi höfuðið en þrætti ekki við hana. Pabbi reyndi að sýnast hug- hraustur. Ég hef aldrei vitað til þess að hann hafi sært mömmu. Hann sýndi fjölskyldu sinni sömu alúð og sjúklingum sinum, jafnt hinum fátækustu og aumustu. Ég minnist þess ekki að hann hafi nokkru sinni slegið börn sín. Það veit hamingjan að það hefði ég nokkrum sinnum verðskuldað. Móðir mín bað mig að kveikja á út- varpinu. Þulurinn sagði frá ódæði sem framið hafði verið í Paris. Gyðingur hafði skotið þýska sendiráðsfulltrúann vom Rath. Þulurinn hélt áfram og við sátum sem frosin I sætum okkar. Sá sem skaut var sautján ára unglingur, Grynszpan að nafni. Foreldrar hans voru pólskir gyðingar sem nýlega hafði verið vísað frá Þýskalandi. „Þessar grimmilegu blóðsúthellingar eru afleiðing af alþjóðlegu samsæri gyðinga og þeirra verður hefnt,” sagði TASSOvegg striginn fráokkurer auðveldur \ J ]. 1 í .f|‘. I f § ' S i uppsetningu 31-tbl. Vikan 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.