Vikan


Vikan - 13.08.1981, Síða 12

Vikan - 13.08.1981, Síða 12
verður líka til þess að maður pælir meira í því hvernig maður er sjálfur. Ég velti fyrir mér hvernig kringumstæðurnar voru og af hverju ég gerði þetta. Hvað um Shakespeare? Ég lít ekki á Shakespeare sem neinn guð, eins og Bretar hafa tilhneigingu til að gera. Sumt af því sem hann hefur skrifað finnst mér vitleysa og leiðinlegt en annað sem hann hefur skrifað er mjög gott og mér finnst voðalega gaman að leika Shakespeare. Hann hefur alveg einstakt lag á enskri tungu, — samt sem áður má maður ekki lesa hann með þvf hugarfari að þetta sé þungur háfleygur texti. Leikrit hans krefjast þess að vísu að maður sé stór í því sem maður gerir. En þetta er allt bundið við að vera einlægur í sinni túlkun á hlutverkinu. Það sem mér fannst erfitt meðal annars við Shakespeare er að þótt maður hafi tilfinningu fyrir nútíma-enskunni þá gegnir öðru máli með þetta gamla mál. En þar stóð ég svo sem ekkert ver að vígi en sumir breskir skólafélagar mínir, að ég tali nú ekki um þá sem höfðu talað cockney-ensku frá blautu barnsbeini. Við sýndum leikritið Kaupmaðurinn l Feneyjum eftir Shakespeare og þar lék ég Jessicu dóttur gyðingsins. Það var ekki stórt hlutverk en mér fannst gaman að leika það. í raun finnst mér gaman að öllu í leikhúsinu, mér finnst gaman að kynnast leikritum af öllum gerðum og stefnum. Leikhús er pólitískt En þótt ég sé hrifin af leikhúsi almennt þá hef ég sérstakan áhuga á leikhúsi í líkingu við Alþýðuleikhúsið. Allt leikhús er pólitískt en mér er sérstaklega hugað um þá stefnu að leikhús sé bæði skemmtilegt og uppfræð- andi. Við unnum meðal annars meö barna- leikhúsi sem nefnist Theater Center. í Bretlandi styrkir ríkið litla leikhópa sem setja upp frumsamin eða önnur verk og sýna í skólunum. Við settum upp leikrit með slíkum leikhópi og sýndum 1 skólunum. Það heitir Drink the Mercury og er eftir einn úr þessum leikhóp, David Holmann, og fjallaði um kvikasilfurs-; eitrunina sem varð i Japan fyrir nokkrum árum. Það gaf manni eitthvað aukalega að finna að maður var að flytja fólkinu eitthvað sem var lifandi, áþreifanlegt — eitthvað sem fólk þarf að vera meðvitað 12 Vikan 33. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.