Vikan - 12.11.1981, Qupperneq 7
Athugið: samanburðartaflan heldur áfram á blaðsíðum 10, 11 og 14, 15.
r
í næstu línu á eftir bensín-
eyðslu er alltaf getið fjölda gíra
áfram á beinskiptum gírkössum
og ekki tekið sérstaklega fram
hvort sjálfskipting er fáanleg.
Þarnæsta lína fyrir neðan
„Gírar áfram” sýnir „lægsta
punkt” bílsins, eða þann hluta
hans sem næst er jörðu (fyrir
utan hjólbarðana, he, he).
Lægsti punkturinn er gefinn til
kynna með tölustaf: panna eða
biti undir vél = 1, drifkúlan =
2, biti undir gírkassa = 3 og
annað (t.d. gólf eða sílsar) = 4.
í línunni sem merkt er
„Fjöðrun” gefa bókstafir til
kynna tegund fjöðrunar. Oftast
eru það gormar að framan og
blaðfjaðrir að aftan (= G/F) eða
gormar á öllum hjólum (= G).
Talsvert ber einnig á svo-
nefndri McPherson-gormafjöðr-
un (= Mg). Eitthvað er um
þverfaðrir (= ÞF), loft- og
vökvafjöðrun á Citroen ( =
LVF) og loks er í sumum
bílum vindifjöðrun (= V/F).
Bremsur eru gefnar til
kynna í þriðju neðstu línunni.
Það geta verið diskahemlar á
öllum hjólum ( = D), skála-
hemlar á öllum (= S) eða
diskahemlar að framan og
skálahemlar að aftan (= D/S).
Neðsta linan á milli feitu
strikanna gefur til kynna
áhættuflokkun vegna ábyrgðar-
tryggingar. Sú flokkun skiptir
máli vegna þess að lægsti taxti
er 1510 krónur en sá hæsti
3300 krónur frá 1. október
síðastliðnum. Munurinn á efsta
og neðsta flokki er hvorki
meira né minna en 1790
krónur! í næstu opnu er tafla
sem sýnir nánar þessa skiptingu
milli flokka og áhættusvæða.
Bilar fara í áhættuflokka A, B
eða C eftir þessari formúlu:
eigin þyngd bílsins margfölduð
með rúmtaki vélarinnar. Sé út-
koman 1.200.000 eða lægri, þá
fer bíllinn í áhættuflokk A. í
þeim flokki eru sem sé léttir og
kraftminni bilar. Sé útkoman
1.201.000 til 2.300.000, þá fer
bíllinn í áhættuflokk B. í C-
flokki eru þyngstu og kraft-
mestu bílarnir.
Lada 1600 Canada Polonez 1500 Fiat Ritmo 60 GL Citroen Visa Club Datsun Cherry GL Mazda 323 Toyota Starlet Daihatsu Charade XTE Renault 5TL Mitsubishi Colt 1200 GL Honda Civic
Fjöldi sæta/dyra 5/4 5/5 5/5 4/5 5/3 5/5 5/3-5 5/3-5 5/5 5/5 5/5
Rúmtak farangursrýmis, lítrar 400 - - - - - 170/000 - - - 195
Lengd, m 4,11 4,27 3,94 3,98 3,96 3,96 3,71 3,53 3,52 3,89 3,83
Breidd, m 1,61 1,65 1,65 1,51 1,62 1,63 1,52 1,52 1,53 1,59 1,58
Hæð, m 1,44 1,38 1,40 1,41 1,36 1,38 1,38 1,35 1,40 1,35 1,35
Eigin þyngd, kg 1050 1100 870 735 800 830 700 660 785 855 795
Beygjuradíus, m 4,50 - - - 5,4 4,6 4,6 4,6 4,9 5,15 4,9
Strokkafjöldi/rúmtak, cm3 4/1570 4/1481 1/1301 2/652 4/1171 4/1300 4/1166 3/993 4/1108 4/1244 4/1335
Hestöfl, DIN 86 75 65 35 52 68 56 52 45 55 60
Auglýst bensineyðsla i lítrum á 100 km 8 9 7 5,8* - 5,5-8,5 - 5-6,5 4,9 - -
Gírar áfram 4 4 5 4 4 4 5 5 4 5 5
Hæð undir lægsta punkt, cm 18 18 17 13,3 18 17 16,5 18 13 17 16,5
Lægsti punktur 2 2 1 - 3 4 2 4 1 - 4
Drrf (framan/aftan) A A F F F F A F F F F
Fjöðrun G G/f Mg/Mg Mg/G G G G Mg/G VF G Mg/G
Hembr D/S D D/S D/S D/S D/S D/S D/S D/g D/S D/S
Verð kr. 75.000 79.000 82.000 83.000 83.700 87.500 89.700 90.000 93.000 93.500 94.000
Ahættuffokkur ábyrgðartryggingar B B A A A A A A A A A
46. tbl. Vikan 7