Vikan - 12.11.1981, Page 23
Litið í barm Bryndísar Schram
„Krabbar
og
önnur sæskrímsl”
Bryndís Schram
svarar nokkrum spurningum Vikunnar
1. Hver er eftirlætisrithöfundur þinn?
Doris Lessing.
2. Hvaða ljóöskáldi hefur þú mest dálæti á?
Jóhanni Jónssyni.
3. Hvaða myndlistarmann metur þú mest?
Marc Chagall.
4. Hvað heitir uppáhaldstónskáld þitt?
Amadeus Mozart.
5. Hvaða tónlistarmaður er í mestum met-
um hjá þér?
Itzhak Perlman.
6. Hvaða kvikmynd, sem þú hefur séð,
finnst þér best?
Blechtrommel (Tintromman) eftir sögu
Gunthers Grass.
7. Hvaða sjónvarpsþáttur er þér helst að
skapi?
Stundin okkar, hvernig spyrðu?
}
8. Hvaða útvarpsefni hefur þér þótt best?
Viðtöl Björns Th. við nokkra samferða-
menn Einars Ben.
9. Hvaða þekkt persóna er i mestum metum
hjá þér?
Fyrrverandi biskup, Sigurbjörn Einarsson.
10. Hvaða stjórnmálamaður er þér mest að
skapi?
Maðurinn minn, auðvitað!
11. Ef þú ættir að velja þér nýtt starf núna,
hvað myndir þú helst vilja gera?
Vera smiður, nú í augnablikinu.
12. Hvað myndir þú gera við milljón ef þú
eignaðist hana?
Borga skuldir, kaupa Lífshlaupið og gefa
borginni.
13. Ef þú ættir að fara með eina bók, eitt
dýr og eina plötu á eyðiey í þrjú ár, hvað yrði
fyrir valinu?
Biblían til að halda sálarstyrknum. Hundur
til að vera ekki vinalaus. Sleppa plötunni, ég
gæti aldrei gert upp á milli.
14. Hvaða hæfileika vildir þú helst vera
gædd?
Hæfileikanum ti! aðelska.
15. Hvaða eiginleiki finnst þér æskilegastur
í fari sjálfrar þín og annarra?
Skopskynið.
16. Hvaða eiginleikar eru þér síst að skapi?
Að taka sjálfan sig of hátíðlega.
17. Getur þú rifjað upp (skemmtilega)
bernskuminningu?
Yfirleitt man ég bara það versta. Þegar ég
var tveggja ára varð ég til dæmis hrædd í
fyrsta sinn. Það var af þvi að bíllinn hans
pabba bilaði og hann varð að aka aftur á bak
upp alla Kamba, sem þóttu mjög hrikalegir í
den tid. Svo man ég líka þegar ég var rassskellt
í fyrsta sinn. Það var því ég stal tikalli og
keypti konfekt handa öllum krökkunum I göt-
unni. Konfektið var svo gott en skellurinn
vondur. Merkilegasta minningin er samt sú.
þegar ég horfði á Bjögga bróður koma í heim-
inn. Þá var ég reyndar orðin sjö ára.
18. Hver er uppáhaldsbrandarinn þinn?
Bínnabrandari.
19. Hvaða matur finnst þér bestur?
Krabbar og önnur sæskrímsl.
20. Hver er eftirlætisdrykkur þinn?
Hvítvín.
21. Hver er besta sjónvarpsauglýsing sein
þú manst?
Innheimtuauglýsingin fræga.
22. Hvernig og hvert vildir þú helst ferðast?
Á seglbát til stranda ítaliu.
23. Hvernig myndir þú kjósa þér
ævikvöldið?
Búa einhvers staðar í Suður-Evrópu, helst
nálægt sjó, og vinna við þýðingar eða önnur
ritstörf.
24. Lífsmótto:
Ræktaðu hæfileikann til að elska.
46. tbl.Vlkan 23