Vikan


Vikan - 27.05.1982, Síða 5

Vikan - 27.05.1982, Síða 5
Lyftingar Jón Páll í hvíld fyrir seinni hluta aflraunanna. ■ ■ . kg, annar var Nevenpaa, Finnlandi, með 365 kg. Jón varð í þriðja sæti á eft- irFinnunum. I bekkpressunni sigraöi Jón örugg- lega á nýju Islandsmeti, 230 kg. Annar varð Ekström, Svíþjóð, Evrópumeist- arinn í kraftlyftingum, með 220 kg og þriðji Mellberg, Finnlandi, meö 215 kg. Eins og klipptur úr íslendingasögum Réttstöðulyftan var síöust á dagskrá um morguninn, mikil aflraun og lýsti þulurinn því að í þessari grein kæmi fram munurinn á karlmönnum og drengjum. Var skoplegt eftir á aö þaö skyldi vera langyngsti keppandinn sem vann réttstöðulyftuna með mikl- um yfirburðum. Var það Jón Páll með nýtt glæsilegt Norðurlandamet, 367,5 kg. Þulurinn átti ekki til orð til að lýsa þessu afreki en sagði Jón eins og klipptan út úr Islendingasögunum og verðugan fulltrúa gamla víkingalands- ins Islands. Annar í réttstööulyftunni var Nevenpaa, Finnlandi, með 332,5 kg og þriðji varð Víkingur 81 og heims- meistari í kraftlyftingum í þungavigt, Kiviranta, Finnlandi, með 330 kg. Samanlagt í kraftlyftingum fékk Jón því 952,5 kg, nýtt Islandsmet og besti árangur í Evrópu á árinu. Næstur í samanlögðu var Nevenpáá með 915 kg og svo Meilberg með 905 kg. Horfur voru nokkuð góöar í hálfleik, sigurvegarinn frá í fyrra um 100 kg á eftir Jóni og atvinnuaflraunamaöurinn frá Noregi ekki mættur til leiks, en hann varö í öðru sæti í fyrra. >ó höfð- um við spurnir af því aö Svíinn Wig- holm, sem nú var í 7. sæti, væri sér- fræðingur í víkingalyftu, en þar hlaupa þyngdirnar á 100 kg og vannst hún í fyrra á 1100 kg. Jón hafði aftur á móti aldrei reynt sig í þessari lyftu og vissi ekkert hvar hann stóð. Seinni hlutinn hófst með mikilli við- höfn aö viöstöddu miklu fjölmenni. Lúðrasveit spilaði þjóösöngva keppendanna sem síöan voru kynntir, og þá sérstaklega Jón, sem var meö forustuna. k Jón Páll við sigurlyftuna í reiptogi. 21. tbl. Vikan 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.