Vikan - 27.05.1982, Qupperneq 6
Leif Wigholm, Svíþjód, Víkingur 1982, Igftir 190 kg einhendis.
1 ■ k \ 'Ir'
yg MÍ: wh
tim <
Allir voru keppendurnir ofurmenni
aö buröum og heföi vafalaust verið lýst
sem tröllum eöa hálftröllum í Islend-
ingasögunum, enda flestir milli 100 og
200 kg aö þyngd og tveir þeirra yfir 2 m
á hæð, Svíarnir Ekström og Ricky
Bruch.
Lyfti yfir besta
heimsárangri
Eyrsta keppnisgreinin var réttstööu-
lyfta meö annarri hendi, aflraun þar
sem fingurstyrkur skiptir mestu máli.
80 kg voru fyrst sett á stöngina og byrj-
aöi Jón ekki fyrr en þyngdin var komin
upp í 170 kg. Þá voru einir eftir Kivir-
anta og Svíinn Wigholm sem lyftu síö-
an báöir 190 kg mest. Jón lyfti þeirri
þyngd og síöan 210 kg. Þaö var ákaf-
lega auöveld lyfta, svo mjög aö Jón var
hvattur til aö reyna aö lyfta yfir besta
heimsárangri í þessari grein. 230,5 kg
voru sett á stöngina og lyfti Jón þvi létti-
lega viö mikil fagnaöarlæti. Höföu
menn á oröi aö ekki væri fýsilegt aö
lenda í krók viö þennan Sigmarsson.
Þá var næst tveggja handa lyfta meö
upphandleggsvööva (krull). Þar átti
keppandinn aö standa upp viö fjöl (lóö-
rétta) og lyfta þannig aö líkaminn færi
aldrei frá fjölinni. Jón byrjaöi á 75 kg,
sömu þyngd og Víkingur 81 endaði á.
Voru þá einungis eftir Bruch og Ek-
ström. Ekström endaði á 80 kg, jafnt
mótsmetinu. Bruch og Jón Páll báöu
báöir um 85 kg og lyfti Bruch þvi en Jón
ekki. Hann átti eina tilraun eftir og
lyfti nú í henni 85 kg en fékk ógilt. Var
Jón Páll því í 3. til 4. sæti í þessari
lyftu.
Reiptogiö var mikil þrekraun og end-
uöu flestir á aö toga upp 90 kg. Er
þyngdin var 120 kg voru einungis eftir
Ricky Bruch, Kiviranta og Jón Páll.
Bruch var búinn meö eina tilraun en
Jón og Kiviranta voru ekki byrjaöir.
Svíinn Wigholm og Norömaðurinn
Saxegaard voru efstir meö 110 kg.
Kiviranta byrjaði á 120 kg og togaði og
togaöi en hvernig sem hann reyndi og
rembdist náöi hann ekki aö toga
þyngdina nægilega langt. Sýndi hann
hörku og þrautseigju sem hver víking-
ur heföi veriö fullsæmdur af. Allt fór á
sömu lund í annarri tilraun hans svo
hann fékk ekkert inn í sinn saman-
lagöa árangur út úr þessari lyftu. Jón
togaði létt 125 kg í sinni fyrstuog Ricky
Bruch endaöi á 130 kg. Jón átti tvær
tilraunir eftir og lyfti 135 kg fyrst og
síöan 142,5 kg, sem var mótsmet.
Gamla metið átti aflraunamaöurinn
Ravndal, Noregi, 140 kg.
Eftir sex greinar var Jón Páll búinn
aö vinna fjórar og meö örugga forustu,
175 kg forustu yfir Finnann Nevenpaa,
185 kg yfir Svíann Wigholm og yfir 200
kg forustu yfir aöra. Ricky Bruch hafði
tognaö í læri í hnébeygjunni og tók
enga þyngd þar og treysti sér ekki í síö-
ustu greinina vegna meiöslanna. Sú
grein var víkingalyftan, gömul afl-
raunaþraut í Skandinavíu.
Míkið mál
fyrir Jón Pál
Þar voru þaö ekki tugir kílóa, sem
skiptu máli, heldur hundruö kílóa. I
fyrra vannst þessi lyfta á 1100 kg. Hún
er þannig aö palli er stillt upp á tvo
búkka og á hverju horni pallsins er
næmt mælitæki, tengt ljósi fyrir fram-
an keppandann. Hvert ljós kviknar
þegar viökomandi horn lyftist. Þau
þurfa aö sjálfsögöu aö lyftast öll í einu
svo pallurinn sé á lofti. Þá kemur
grænt ljós og dómarar dæma lyftu
gilda. Keppendur fara undir pallinn og
lyfta meö bakinu. Hæðinni undir pall-
inum réöu keppendur sjálfir og höföu
þeir 2 mínútur til aö lyfta.
Flestir byrjuöu á 700 kg eða 800 kg
og byrjaöi Jón Páll á því síðara. Vissi
6 Vikan ZI. tbl.