Vikan - 27.05.1982, Page 18
Sálræn viðbrögð í skilnaði
Sambúðarslit eru að
verða æ algengari á Is-
landi. Allir þekkja það af
sjálfum sér, vinum eða ætt-
ingjum. Við verðum að
horfast í augu við að skiln-
aður er ekki afbrigðilegur
lengur. Við verðum einnig
aö horfast í augu við að
stöðugt fjölgar þeim börn-
um sem annaðhvort um
tíma eða mestallan upp-
vöxt sinn alast upp með
einstæðum foreldrum eða
með stjúpforeldrum vegna
nýrrar sambúðar foreldra
þeirra.
Fyrir foreldra og börn
er skilnaður fyrst og
fremst tilfinningalegs eðlis
og þess vegna eru viss
atriði í sambandi við skiln-
að sem þarf að taka tillit
til. Nefnum tvö atriði í
þessu sambandi: I fyrsta
lagi er skilnaður ekki ein-
stakur atburður heldur er
yfirleitt um langvarandi
tímabil aö ræða sem oft er
skipt niður í aðdraganda að
skilnaði, skilnaðinn sjálfan
og tímabilið á eftir. Þannig
er skilnaður ekki einungis
það að sambandi hjóna sé
lokið og fjölskyldan leysist
upp. Skilnaður er endur-
skipulagning á öllum inn-
byrðis samskiptum fjöl-
skyldumeðlimanna.
Aðdragandi að
skilnaði
Tökum dæmi um hjón
sem eru í skilnaðarhugleið-
ingum, við getum nefnt þau
Svein og Jónu. Þau eru
bæði 27 ára og hafa búið
saman í 6 ár. Sveinn og
Jóna eiga tvo drengi, 5 og
3ja ára gamla. Þau eru
bæði útivinnandi en auk
þess er Sveinn í kvöldnámi.
Samband Sveins og Jónu
hefur lengi verið erfitt.
Rifrildi, spenna og jafnvel
líkamleg átök verða æ al-
gengari. Þau rífast um
margt; fjármál, uppeldi
barnanna, tengdafólkið og
heimilisverkin. Um kvöld-
matarleytið er andrúms-
loftið yfirleitt orðið spennu-
þrungið og oft líður allt
kvöldið án þess að hjónin
yrði hvort á annað.
Það er aðallega Jóna
sem hefur reynt að tala um
sambandið við Svein og
hvernig henni líður. Hún er
svekkt yfir því hvernig
hann bregst við því Sveinn
segir að ekki þýði að ræða
þetta mál, fer oft inn í
svefnherbergi að sofa eða
jafnvel út í fússi. Jóna hef-
ur á tilfinningunni að
Sveini sé alveg sama um
sig og hún er niðurdregin
18 Vikan ZI. tbl.