Vikan - 27.05.1982, Síða 19
Fjölskyldumál
»>
og einmana. Sveinn ásakar
hins vegar Jónu fyrir aö
gera allt of mikið úr hlutun-
um. Hann skilur ekki sjálf-
ur af hverju sambúðin hef-
ur versnað svona en finnst
líklegt aö það sé vegna þess
að þau hafi of mikið að gera
og að þau séu í fjárhags-
basli út af íbúðarkaupun-
um. Honum er líka illa við
vinkonur Jónu sem honum
finnst ýta undir óánægju
hjá henni. Sveinn finnur
líka fyrir vanlíðan og ein-
manaleika og langar oft til
að stinga af frá öllu saman,
sem hann á til að gera um
helgar. Þau hafa æ oftar
talað um skilnað sem
lausn.
Aðdragandi skilnaðar
byrjar mjög oft með ósætti
og rifrildi á þann hátt sem
dæmið af Sveini og Jónu
sýnir. En hann getur líka
byrjað með spennuhlöön-
um tímabilum þar sem
hjónin yrða ekki hvort á
annað og gera sér far um
að hafa sem minnst af-
skipti hvort af öðru.
Þegar skilnaðurinn er
staðreynd
Þegar fólk byrjar sam-
búð hefur það von og trú á
að það komi til með að búa
saman og deila lífinu um
alla fyrirsjáanlega fram-
tíð. Það getur verið erfitt
að horfast í augu við þær
brostnu vonir þegar
skilnaðurinn stendur fyrir
dyrum.
Þegar tekin hefur verið
ákvörðun um skilnað má
oft sjá ákveðin viðbrögð
hjá þeim fráskildu. í fyrstu
verður ákvörðun um
skilnað oft slíkt áfall fyrir
fólk að líkja má við lömun
eða sjokkviðbrögð. Þaö
verður altekið af vonleysi,
getur ekki sótt um vinnu
eða tekið sér neitt fyrir
hendur. Þessi viðbrögð
eiga sérstaklega við um
þann aðila sem sættir sig
illa við skilnaðinn.
Því næst koma yfirleitt
ýmis sálræn viðbrögð við
skilnaðinum, einkum þung-
lyndi, kvíöaköst og sjálfs-
ásakanir. Einnig má nefna
svefnleysi, einbeitingar-
örðugleika og ýmis líkam-
leg einkenni sem stafa af of
miklu sálrænu álagi. Þessi
viðbrögð má yfirleitt sjá
hjá báðum aðilum sem
finna til óöryggis gagnvart
því tímabili sem í hönd fer.
Þegar fram líða stundir
átta báðir aðilar sig smám
saman og fara aö semja sig
aö breytingunni. Það tíma-
bil sem í hönd fer má kalla
úrvinnslu. Þá gera báðir
aðilar upp fortíðina og
prófa sig áfram á nýjum
grunni. Þetta tímabil getur
tekið mjög langan tíma og í
besta falli fá einstakling-
arnir sem í hlut eiga nýjan
kraft og þroska til að takast
á viö lífið. En oft festist fólk
í ósætti og ósamlyndi sem
getur þróast yfir í bitur-
leika, hatur og baráttu ef
ekkert er að gert.
Skilnaðarmeðferð
Eftir skilnaðinn þarf að
takast á við margt: Um-
gengni viö börnin ef þau
eru til staðar, viðbrögð ætt-
ingja og vina við skilnaðin-
um, skiptingu eigna og
e.t.v. leit aö húsnæði svo
eitthvaö sé nefnt. Það helst
oft í hendur að ráða þarf
fram úr öllu þessu á sama
tíma og innra álag er sem
mest. Þá getur verið erfitt
að hafa yfirlit yfir aðstöðu
sína og sjá mögulegar
lausnir. Það er á þessum
tíma sem flestir hafa þörf
fyrir hjálp.
Þegar fólk kemur í skiln-
aðarmeðferð gerir það
grein fyrir hvernig málum
þess er háttað en síðan er
það hlutverk þeirra sér-
fræðinga sem leitað er til
að hjálpa fólki að skilja af
hverju einmitt þess sam-
búð hefur þróast á þennan
veg. Þá eru eftirfarandi
atriði gjarnan höfð til hlið-
sjónar:
1. Mótun einstaklinganna á
uppvaxtarárum.
2. Sjálfstæði þeirra á full-
orðinsárum.
3. Samskipti þeirra í sam-
búðinni.
I dæminu um Svein og
Jónu kom í ljós að sambúð-
arerfiðleikar þeirra stöf-
uðu aðallega af því aö þau
höfðu hvort í sínu lagi mjög
ólíkar hugmyndir um
hvernig hitt ætti að
vera, skoöanir sem mótuð-
ust af því hvaö þau höfðu
reynt í uppvexti. Eftir að
hafa öölast þennan skilning
þurfa þau síðan að ákveða
hvort þau vilja og hvort
þau treysta sér til að tak-
ast á við þessa erfiöleika og
reyna að breyta samband-
inu. Það getur tekið á kraft-
ana en reynslan sýnir að
sambúð getur gjörbreyst ef
hjón eru tilbúin að fara í
slíka meðferð.
Þó svo að sambúðarerfið-
leikar endi í skilnaði er
engu að síður mikilvægt að
fólk geri sér grein fyrir því
af hverju sambúðin gekk
ekki. Slíkt innsæi og skiln-
ingur hefur áhrif á það sem
á eftir kemur, svo sem
hvernig tengsl við börnin
verða eftir skilnað og
hvernig sambandið verður
í framtíöinni.
Reynslan hefur einnig
sýnt að þegar fólk hefur
farið í gegnum skilnaðar-
meöferð sættir það sig bet-
ur við skilnaðinn og ef það
byrjar sambúð að nýju eru
mun meiri líkur á að hún
gangi vel.
21. tbl. Vikan 19