Vikan - 27.05.1982, Page 26
'Z>-,;
Börn látin
rota börn
tslendingar eru ein af fáum þjóðum sem hafa farið að viðvörunum
lækna og bannað hnefaleika. Þessi íþrótt, ef íþrótt skyldi kalla, ógnar
heilsu þeirra sem hana stunda og nú hafa menn tekið upp á því í ýmsum
löndum að senda börn sin til keppni.
í Virginia-fylki í Bandaríkjunum barðist ekki alls fyrir löngu Harlan
Hossier í sínum 28. kappleik við andstæðing sem hann fór tiltölulega létt
með. Þrettán ára gamall varð Harlan þar með barnameistari í hnefa-
leikum. Þegar átti að afhenda Harlan bikarinn féll hann í gólfið meðvit-
undarlaus. Litlu síðar dó hann í sjúkrahúsi og var dánarorsökin heila-
blæðing.
Sumstaðar þar sem menn leyfa enn hnefaleika er ekkert lágmarks-
aldurstakmark. í Sovétríkjunum er aldurstakmarkið 12 ár, þau eru
fremsta land í hnefaleikum. í Vestur-Þýskalandi er ekkert aldurstak-
mark. í Frakklandi er lágmarksaldurinn 16 ár.
Sem betur fer má enginn aldursflokkur stunda hnefaleika hér á landi
og verður svo um allan aldur. Hnefaleikar valda nefnilega heila-
skemmdum og því sjálf sagt að hafa vit fyrir fólki.
Texti: Jón Asgeir
Sjö ára gamall bídur Tony Walker eftir því ad fara inn á hnefaleika-
8vædid í fyrsta skipti. Tony á heima í Bandaríkjunum og hefur œft
þrisvar í viku til ad geta komist í keppni.
Kothögg lenti á höku Dean Baptiste þegar hann var ad sýna hnefaleika
í heimaborg sinni, London. Andstœdingurinn rétti hinum ellefu ára
gamla Dean hœgri handar rothögg, þrátt fyrir ad bádir vœru meö
leöurhlífar á höföinu. Sérhvert högg sem veldur meövitundartruflun
orsakar um leiö heilahristing.
26 Vikan 21. tbl.