Vikan - 27.05.1982, Side 31
Opnuplakat
Ungfrú Útsýn 1982
Einu sinni var lítil stúlka. Hún var
ljóshærð og litfríö og létt undir brún.
Samt var hún ekki látin heita Sigrún
heldur var hún vatni ausin og gefið
nafnið Elísabet. Björnsdóttir var hún.
Þetta gerðist í Álaborg í Danmörku
fyrir um sautján árum. Samt er Elísa-
bet ekki dönsk heldur íslensk. Hins
vegar dvaldi hún eins og börnum er títt
með foreldrum sínum og systkinum
(og gerir reyndar enn), sem um þetta
leyti dvöldu langdvölum í Danmörku.
Þar hóf Elísabet líka skólagöngu sína,
nánar tiltekið í Gladsaxeskole í Her-
lev. Hún var orðin tíu ára þegar hún
fluttist endanlega til Islands og hóf
nám í Breiðholtsskóla. Þá varö hún aö
byrja á því að læra aö lesa íslensku.
Hún gleymir sennilega aldrei hvaö það
var erfitt að læra íslensku hljóðin sem
táknuð eru meö samstöfunum „au” og
„ei”. Því þótt fjölskyldan talaöi is-
lensku heima fyrir varð danskan samt
yfirsterkari í félagahópnum og skólan-
um, og það er vissulega eitt að lesa
dönsku og kveða að henni og annað aö
gera hið sama við íslenskuna.
Svona liðu árin og segir nú ekki af
högum Elísabetar fyrr en á vordögum
árið sem hún varð sextán ára. Þá efndi
Vikan til keppni um efnilegt fólk til
módelstarfa — Vikan velur módel.
Eétt í þann mund sem skilafrestur
þátttökutilkynninga var aö renna út
var nafni Elísabetar rennt inn á borö
ritstjórnar — og var Elísabet þó á báð-
um áttum um hvort hún ætti erindi í
þessa keppni.
En aörir voru á öðru máli. Elísabet
Björnsdóttir var umsvifalaust valin í
þrjátíu manna hópinn sem tíu manna
úrvalslið var síðan valiö úr. Og auðvit-
aö var hún líka í því.
Þar með tóku hjólin að snúast. Þessi
tíu manna úrvalshópur fékk sérstakt
námskeiö fyrir sýningarfólk hjá
Módelsamtökunum. Og Elísabet fékk
nóg að gera við sýningarstörf og sem
ljósmyndafyrirsæta. Svo kom að
keppninni um titilinn ungfrú Utsýn.
Hjá því gat ekki farið eftir allt þetta að
Elísabet væri þar meðal keppenda.
Utsýnarkeppnin er eina stóra
fegurðarsamkeppnin sem upp á síð-
kastið hefur veriö haldin reglulega á
Islandi. Mörgum hefur reynst hún
stökkbretti til nýrra sigra og eftirsókn-
arverðra starfa. Á hverju ári hefur
mikill kvennablómi valist í þessa
keppni og baráttan um úrslitin hefur
verið hörð.
„Þaö komst einhvern veginn á kreik
að ákveðin stúlka hefði veriö valin ung-
frú Utsýn og við trúðum því,” sagði
Elísabet á eftir. En að þessu sinni var
ekki aðeins valin ungfrú Utsýn heldur
fengu allar stúlkumar ellefu, sem tóku
þátt í lokakeppninni, hver sinn titil.
Titlarnir báru nöfn helstu áfangastaða
í ferðum Utsýnar. Þannig varð ein sól-
arstúlka Utsýnar í Marbella, önnur á
Lignano og svo framvegis. Áður en úr-
slitin voru kunngerö sagðist Elísabet í
gríni búast viö að veröa útnefnd sólar-
stúlka Utsýnar í Hafnarfirði.
„Viö bjuggumst við að verða allar
kallaðar upp og útnefndar sólarstúlkur
og síðan yrði ungfrú Utsýn kölluð fram
úr hópnum sérstaklega,” sagöi Elísa-
bet. „Svo voru hinar tíu komnar upp og
þá fór Baldvin (Baldvin Jónsson, for-
maður dómnefndar keppninnar) eitt-
hvaö aö tala um Hafnarfjarðarstrætó.
Þá fór ég alveg í steik. Eg heyrði ekki
meir. Skynjaði bara einhvern veginn
að hann nefndi nafniö mitt og fór upp.
Ég held ég hafi ekki skilið hvaða titil
ég hafði fyrr en boröinn var hengdur á
mig.”
Og hvað er þá næst? Ungfrú Utsýn
hefur að sjálfsögðu í ýmsu að snúast í
sambandi við þennan vegsauka. En
frekari keppni er ekki fyrirsjáanleg
eins og er. Hins vegar er ákveðið hvaö
Elísabet Bjömsdóttir ætlar að hafa
fyrir stafni næsta vetur: „Eg fer í Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti. Þaö er
ákveðið og því verður ekki breytt.”
Elísabet er ekki alveg ókunnug augum lesenda Vikunnar. Síðan módelkeppninni
lauk hefur hún verið ljósmyndafyrirsæta hjá okkur, svo sem á þessari forsíðu og
nú síðast í 20. tölublaði, 20. maí, þegar hún var eitt módelanna í tískuþætti
Vikan velur módel — tíu manna úrvalshópurinn fagnar átanha • M",lvwood.
21. tbl. Víkan 3X