Vikan


Vikan - 27.05.1982, Síða 37

Vikan - 27.05.1982, Síða 37
Hann vildi aldrei viöurkenna þaö á meðan hann var lítill,” hélt William áfram meö sársaukafullu brosi á vör. „Tíu ára gamall drengur er stoltur. En hann bætti sér þaö upp á hestbaki. Enginn var jafnsnjall reiömaður og hann. Hestar voru hans líf og yndi. Þú vissir þaö kannski ekki heldur?” bætti hann viö hikandi. Eg hrísti höfuöiö og fann aö William horföi rannsakandi á mig. „Mér finnst nú ansi margt sem þú ekki veist umRoss.” Eg komst hjá því aö svara honum vegna þess aö á sömu stundu nam bíll- inn staðar fyrir framan gult tígul- steinahús. ,Jdér þætti vænt um «f þú talaöir ekki um Ross viö mömmu og létir hana ekki einu sinni vita hver þú ert,” sagöi hánn hraðmæltur um leiö og hann hjálpaði mér út úr bílnum., .Læknirinn hefur varað okkur viö þvi að láta hana verða fyrir óþarfa áföllum. Ef þú hefur ekkert á móti því hafði ég hugsað mér aö kynna þig meö höfundarnafninu þínu.” Það skrjáfaöi í þurrum laufblööun- umvið fætur mér. „Og hvað um bréfin? ” spuröi ég ráö- þrota. „Þú mátt síst af öllu segja nokkuð um bréfin,” svaraöi hann stuttur í spuna. FRO MANVILLE stóö fyrir innan girðinguna og beiö eftir okkur þegar viö komum. Þetta var fíngerö kona í svartri kápu, meö langan ljósrauöan siffonhálsklút sem flögraöi umhverfis hana í vindin- um og varö til þess aö andlit hennar virtist enn fölara en það í raun var. William sagði eitthvaö viö hana og hún leit hálfhrædd í áttina til mín. Þegar þau gengu hægt og rólega til mín sá ég að hún var yngri en ég hafði búist viö og aö hún hlaut aö hafa verið mjög lag- leg þegar hún var ung. Nú var eins og allt líf væri horfið úr andliti hennar. „Mamma, þetta er Kristy, ágæt vin- kona min,” sagði William og horföi hlýlega til mín. Skamma stund fannst mér eins og glampi kæmi í augu hennar en mér hlýtur aö hafa missýnst vegna þess aö hún svaraði áhugalaust: „Þaö er alltaf skemmtilegt aö hitta vini Williams.” Orðin hljómuöu eins ogmeiningarlaust raus ímunni hennar. Viö sögöum ekki eitt einasta orö á leiöinni til Waynewater. Við vorum öll niðursokkin í okkar eigin hugsanir og ég hugleiddi hvort þeirra hugsanir væru eins mikiö svartnætti og mínar voru. Mér var kalt og ég vaföi kápuna þéttar utan um mig. Rúöurnar voru hálfuppdregnar og vindstrókurinn stóö í aftursætið og með honum barst sterk ilmvatnslykt svo við lá aö mér yröi illt í höfðinu. Ég velti því fyrir mér hve langt viö ættum enn ófariö. Sólin var farin að lækka á lofti yfir trjátoppun- um. I þessari birtu var sólbrenndur háls Williams eins og steyptur úr bronsi og það brá meira aö segja mjúkum bjarma á svipbrigðalausan vangann á frú Manville. Löngu áöur en viö komum að húsinu sá ég því bregða fyrir handan við gras- lendiö sem vegurinn teygði sig í kringum. Húsiö stóö á hæð og tum- amir gnæföu hátt og vom eins og skuggamyndir á himninum sem logaði bak viö þá. Aftansólin speglaðist í gluggunum og trjágöngin upp að húsinu voru líkust dimmum göngum. Svo þetta var Waynewater, heimili Ross. Einn góöan veöurdag heföi það getaö oröiö mitt. Mér féll ekki sú tilhugsun. Hátt jámgrindahliöiö stóö upp á gátt og viö renndum okkur inn undir risa- stórar trjákrónumar. Trjágöngin enduöu fyrir framan húsiö á kringlóttu opnu svæði. Allt var þetta enn dmnga- legra þegar nær var komiö. Steinstólp- ar, súlur og tvær risastórar marmara- styttur sem þögular stóðu vörö sitt til hvorrar handar við innganginn. Og 21. tbl. Vikan 37

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.