Vikan


Vikan - 27.05.1982, Síða 43

Vikan - 27.05.1982, Síða 43
Framhaldssaga aö sér. „Eg á enn nokkurra daga frí. Ég verö aö vera kominn aftur til Bandaríkjanna eftir viku.” „Þess vegna höfum við Brent ákveðið aö leggja af stað strax í fyrra- málið,” bætti Susan við. „Þið eruð alveg frá ykkur,” hálf- hrópaði William. „Ég þarf að ganga frá ýmsum málum áöur en ég legg af staö.” Susan veifaði hendinni í mótmæla- skyni. „Ekkert sem ekki getur beðiö. Eg er búin að tala um þetta við mömmu og pabba. Ég hef auövitað ekki sagt þeim hvers vegna við erum að fara heldur aðeins að Brent vilji fara til Frakklands og hann hafi ekki nema eina viku til þess og það væri skemmtilegt að geta sýnt honum vín- garðana okkar. Þú ætlaðir þangað hvort eð er fljótlega,” áminnti hún hann. „Hvaö segir þú um þetta, Kristy?” spurði William. „Ekkert fyndist mér betra.” Á morgun ætluðum við til Frakk- lands og hvar svo sem Ross væri skyldi égfinnahann. . . „Hann er kannski að leita sér að gamalli höll handa Kristy,” sagði Sus- an í gamansömum tón, og það var engu líkara en nærvera Brents gerði henni mikið gott. „Hann er alveg vit- laus í gamla franska kastala og jafn- utan við sig og hann getur verið er ekk- ert líklegra en hann hafi gleymt stund og stað.. . Trúlegast er að hann sé á fleygiferð um landið og geri sér engan veginn ljóst allt fjaðrafokið sem hefur orðiöútaf honum.” Kæti Susan smitaði út frá sér og ég reyndi að dylja óánægju mína yfir að hafa nú heyrt enn eitt varðandi Ross sem ég hafði ekki vitaö um áður. Ég velti því fyrir mér hversu miklu fleira væri sem ég vissi ekki um. „Þetta hljómar svo einfalt í þínum munni, Susan,” sagði William þegar við settumst loks við borðið. „En það er það þó alls ekki. Burtséð frá öllu ööru er Ross ekki vanur að tjá sig á jafneinfaldan og leikrænan hátt og hann hefur gert í þessum bréfum.” „Þetta er áreiöanlega gamall hæfi- leiki sem nú er loks kominn fram í dags- ljósiö,” svaraöi hún. „Hann var nú einu sinni í leikskóla endur fyrir löngu.” „Er þaö satt?” sagði Brent undr- andi. „Hvenær varþað?” „Þegar þau Alison voru trúlofuð auö- vitað.” GAFFALUNN FÉLL með miklum hávaöa úr hendinni á mér og Susan leit furðu lost- in á mig. „Segöu ekki að þú hafir ekki vitað það! Alison MacDonald er leik- konaog...” „Eg veit það,” greip ég fram í fyrir henni. „Eghef hitthana.” „Nú, jæja,” sagði Susan hálfrugluö. „Hún upplýsti mig um sitthvaö en hún sagði ekki orð um trúlofunina. Og þú ekki heldur, William,” bætti ég við. „Eg var viss um aö þú vissir nú þeg- arumhana.” En ég hafði ekkert um þetta vitaö, ekki fremur en um f jöldamargt annað, og ég sá aö hann hafði meðaumkun með mér. Þaö var líka eitthvað annaö í svip hans sem ég skildi ekki fullkom- lega. „Um hvað rifust þið þá?” spurði hann lágt. Eg dró við mig að svara vegna þess að ég vissi ekki hversu vel Brent var inni í fjölskyldumálunum hér. „Okkur féll einfaldlega ekki hvorri viö aöra,” sagði ég aö lokum. „Eg get vel skUið að henni hafi ekki líkað við þig,” sagði Susan. „Hún þolir ekki samkeppni.” Eg horfði skilningssljó á hana. „En hún heldur þó að Ross sé dá- inn.” „Eg átti ekki við Ross.” Susan leit í áttina til Williams og ég fann að ég roðnaði. „En hvernig sem í öllu liggur var það hún sem sleit trúlofuninni,” bætti Susan við og rauf með þessum orðum óþægilega þögnina. „Og það var um áramótin,” hrökk út úr mér og nú varð mér allt í einu ljóst samhengið í þessu öllu. Susan og Wilham störðu á mig og það mátti lesa aðvörun úr svip Susan. Brent vissi sem sagt ekki þennan sannleika um Ross og þau vildu heldur ekki að hann frétti meira þessa stund- ina. Eftir þetta var eins og samtalið fjar- aði út. Okkur kom saman um að við værum öll þreytt og ákváðum aö leggja af staö um níuleytið morguninn eftir. Framhald i næsia bladi. BMW520Í Úr f lokki 500 - Fákanna BMW 520i hefur til að bera alla þá kosti sem prýtt geta glæstan gæðing. BMW 520i er traustur, þoigóður og þægilegur og það jafnt þó svo að sprett sé úr spori. BMW 520i lætur vel að stjórn og þú getur treyst honum fyrir þeim sem eru þér kærastir. Góðir gæðingar hafa löngum þótt konungs- gersemar og því mun verðið koma þér á óvart. Enginn kaupir gæðing óséðan og því bjóðum við þér að koma og reynsluaka BMW. BMW þolir að hann sé vel skoðaður. Þér mun þykja vænt um 500 - fákinn þinn. KRISTINN GUÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 Í ' 21. tbl. Vikan 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.