Vikan


Vikan - 27.05.1982, Side 51

Vikan - 27.05.1982, Side 51
Draumar Kríuegg í skál Kæri draumráðandi! Þann X.X. sl. ól ég mitt fjórða barn og var það drengur, fyrir átti ég þrjár stúlkur. Morguninn sem ég fór heim af sjúkrahúsinu dreymdi mig draum sem er sífellt að koma upp í huga minn og œtla ég að biðja þig að reyna að gefa mér ráðningu á honum. Þennan morgun var komið inn með börnin að venju kl. 6 til þess að gefa þeim. Þegar því var lokið sofnaði ég aftur og þá dreymdi mig þennan draum: Mér fannst ég og konan sem lá með mér á stofu, Ó„ liggja í stórum sal sem minnti helst á samkomusal með súlum, sverum og miklum, svona hingað og þangað. Mér fannst þessi salur vera jarðhæðin á sjúkrahúsinu. Salurinn var með ópússaða veggi, svo mótaði fyrir uppslætti mótatimburs, en læknastofa var smáherbergi, sem tekið var af einu horni salarins. Mér fannst ýmist að væri verið að svæfa fólk þar, fyrir aðgerðir, eða deyfa það. Eina fólkið sem ég bar kennsl á var kona að nafni A. oglá hún í rúmi, nakin að ofan, og eigin- maður hennar var að strjúka á henni bakið. Hann heitir X. Það var undirbúningur undir aðgerð. í þessum sal miðjum fannst mér ég og Ó. liggja með börnin okkar í vöggunum, við fótagaflana á rúmunum. Mér fannst síðan gangastúlka vera að færa okkur morgunverð. Morgunverður Ó. var á bakka, þunnur sveskjugrautur sem sullaðist til þegar hann var borinn til hennar og út í grautnum voru kríuegg. Á miðjum bakkanum ofan á grautnum stóð kúfuð skál af flysjuðum kríueggjum. Morgunverðurinn sem ég fékk var sams konar grautur og Ó. fékk en skálin sem var I miðjum grautnum hjá mér var full af ferskum ávöxtum. Nokkur kríuegg, óflysjuð, voru ígrautnum mínum. Þegar þetta er borið fyrir okkur segir Ó.: „Ég borða þetta ekki því mér finnast kríuegg svo vond. ” „Það er allt í lagi, ” segi ég, „ég skal skipta við þig því mér finnast kríuegg svo góð. ” í því að við erum að skipta kemur gangastúlkan og vekur mig með morgunverðinum svo draumurinn varð ekki lengri. Með fyrirfram þakklæti. J.H. Þetta er þér alveg ágætur draumur og ekki ólíklegt að fjár- hagurinn sé (eða verði) með rýmra móti á næstunni, auk þess sem flest í daglegu lífi ætti að ganga þér í haginn á einn eða annan hátt. Lítinn skugga mun á þessa heillatíð bera. Ef þú manst hvað eggin í skálinni þinni voru mörg gætu þau táknað hve mörg börn þú munt eignast. Sennilegt er einnig að þú munir taka einhvern barnahóp að þér um lengri eða skemmri tíma eða hafa mikil samskipti við börn (gegnum starf eða annað). Það eina sem gæti angrað þig væru tíðar og hvimleiðar gestakomur (ef til vill eftir barneignir) en þú virðist taka því vel. Flest í þessum draumi bendir til að þú sért það sem kallað er gæfumanneskja hvort sem lífið er þér með - eða mótdrægt. Sami strákurinn Kœri draumráðandi. Mig langar til að leggja fyrir þig þrjá stutta drauma. Þeir eru allir um sama strákinn sem ég er mjög hrifin af. Fyrsti draumurinn var þannig: Mér fannst ég vera með stráknum á föstu. Við vorum stödd ásamt tveim elstu systrum hans fyrir ofan fjöru. Hann var að tala við síðhærða Ijóshærða stelpu. Ég var mjög afbrýðisöm. Mér fannst hann vera með henni. Síðan vaknaði ég. Miðdrauminn dreymdi mig svona viku seinna. Mér fannst ég vera stödd með bræðrum mínum úti á túni hjá kindum. Mér fannst strákurinn koma þarna. Við vorum eitthvað að tala saman og gengum síðan saman út á veginn og brœður mínir fylgdust að. Ég var mjög ánœgð. Síðan vaknaði ég. Seinasti draumurinn var þannig: Ég var heima hjá mér. Ég sá strákinn koma á traktor. Ég var ánœgð, hélt að hann ætlaði að hitta mig. Þegar ég opnaði dyrnar spurði hann eftir pabba og var kaldranalegur við mig. Mig minnir að þeir hafi verið að tala saman en ég man ekki hvað. Síðan vaknaði ég. Með fyrirfram þökk. Sú sama. Þú mátt búast við einhverjum árekstrum á heimilinu, eða milli þín og skyldmenna þinna á næstunni. Peningamálin fara batnandi á næstunni og ef þú ert í einhverjum ástahugleiðingum, þá hefurðu ákveðinn meðbyr, en ættir þó að reyna að kanna hug þinn og festa þig ekki í einu sambandi. Svo virðist sem þú þurfir nokkurn tíma til að átta þig því kostirnir eru fleiri en einn og hafðu augun vel opin án þess að hrekja neinn beinlínis frá þér. Nöfnin sem þú getur um í eftirskrift með bréfinu eru mjög ólík að merkingu til og ýmist mjög góð eða óþægileg drauma- nöfn en breyta í sjálfu sér ekki því sem þegar er sagt um þau mál. Ef þú hefur áhuga á að vita hvað nöfnin i draumunum merkja þá eru S. og G. góð nöfn í draumi en hin síður. Skop 21. tbl. Vikna 51

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.