Vikan


Vikan - 27.05.1982, Blaðsíða 63

Vikan - 27.05.1982, Blaðsíða 63
Pósturinn Nýir 8iimarbúningar fyrir flugfreyjur og flugþjóna Flugleida voru teknir upp 15. maí. tíúningarnir eru léttir og Ijósir og henta vel yfir sumartímann. í haust klœdast flugfreyjur og flugþjónar sídan aftur8Ömu búningum og í vetur. Á mynd- inni eru þær Sigurlaug Halldórsdóttir og Erna Matthíasdóttir i hinum nýja búningi. Þær linsur sem eru vinsælastar núna og þykja þær bestu á markaðnum eru svokallaðar mjúkar linsur. I gleraugnaverslun Ingólfs Gíslasonar fékk Pósturinn þær upplýsingar að þær kostuðu 2420 kr. Verðið er hið sama hvort sem um er að ræða sterkari eða veikari sjóngler. Allir eiga að geta notað þessar linsur, nema ef til vill fólk með mikla sjónskekkju. Þó eru í náinni framtíð væntanlegar linsur fyrir þannig sjón. Skiptinemasamböndin eru tvö: ICYE- Alþjóðleg kristileg ungmennaskipti, Hallgrímskirkju, sími 24617, og AFS, Hverfls- götu 39, sími 25450. Aldurstakmarkið er á bilinu 16—19 ára. En til þess að fá sem bestar upplýsingar er langbest að hringja á skrifstofur sam- takanna. Flugfreyjustarfið er starf en ekki fegurðarsamkeppni þannig að málakunnátta vegur að sjálfsögðu þyngra en útlit. Ef þú ert vel að þér í fjórum tungumálum og hefur áhuga á starfinu skaltu endilega drífa þig á námskeið þegar þar að kemur. Kreppan í flug- málum þjóðarinnar undan- farin ár leiddi til þess að starfsfólki við flug fækkaði. En allt útlit virðist vera fyrir að flugfélögin séu að rétta úr kútnum og ættu atvinnuhorfur þá að vænkast. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar Kceri dásamlegi Póstur. 1. Er enn kosinn , ,full- trúi ungu kynslóðarinnar ’ ’? 2. Ef svo er, hvert á maöur aö leita ef maöur hefur áhuga á aö taka þátt í keppninni? 3. Ef þaö er enn kosiö, hver eru þá verölaunin? 4. Hvaða eiginleika þarf maður aö hafa? 5. Af hverju hefur Pósturinn ekki meira pláss? 6. Geturöu nefnt eitthvert enskt blaö sem pennavinadálkar eru í? 7. Af hverju er ekki haft ár unglingsins, ár konunnar, ár húsbóndans? Jceja, meö fyrirfram þökk, 711—1 Spurningum 1—4 má svara saman. Keppni þessi hefur ekki verið haldin undanfarin tvö ár og óvíst er með framhaldið. Má segja að módelkeppnin hafi komið í staðinn fyrir þessa keppni í fyrra, en ekki þykir rétt að hafa módelkeppni á hverju ári. Verðlaunin voru oftast utanlandsferð og fataút- tekt. Þátttakendur þurftu að vera á aldrinum 15—17 ára, vera líkamlega vel á sig komnir og búnir ein- hverjum góðum kostum, oftast gátu þeir sungið og dansað og því um líkt. Plássið sem Pósturinn hefur til umráða er nokkurn veginn í samræmi við afkastagetuna á viku hverri. Stundum þegar auglýsingaflóðið verður mikið verður að skella auglýsingum á Póstsíðuna en það er fremur sjaldgæft. Einnig hefur stundum verið reynt að lífga upp á síðurnar með skrítlum og myndum og það tekur sitt pláss svo og lukkuplata og pennavinir. Ekki er víst að allir lesendur blaðsins yrðu jafnhrifnir ef Pósturinn fengi fleiri síður til umráða. Pósturinn man í svipinn eftir einu ensku blaði sem birtir pennavini. En blað þetta er sérrit um popptón- list og þeir sem það lesa eru því einkum áhuga- menn um þess konar tón- list. En ef þú hefur áhuga, skrifaðu þá til: RSVP, Smash Hits, 52—55 Carnaby Street, London WIV IPF, England. Þeir sem óska eftir pennavinum í þessu blaði taka yfirleitt fram hvaða tónlistarmenn eru í uppá- haldi hjá þeim. í seinni tíð hafa ýmis ár verið helguð ýmsum mál- efnum og þá einkum og sérílagi málefnum þeirra sem minna mega sín í sam- félaginu. Með þessu er reynt að vekja athygli al- mennings á málefninu sem fyrsta skrefið í átt til úr- bóta. Árið 1979 var ár barnsins og var hugtakið barn þá mjög víðtækt og náði yfirleitt yfir börn og unglinga, það er að segja yngstu og valdaminnstu þegna samfélagsins. Kvennaár var haldið 1975 en ár húsbóndans verður sennilega seint haldið vegna þess að húsbændur geta varla sem hópur talist útundan í samfélaginu. Sjálfsagt eru sumir hús- bændur verr staddir en aðrir en það réttlætir varla alþjóðlegt ár helgað mál- efnum þeirra. Hvað finnst þér sjálfri ef þú hugsar málið? Skop ==] Ml 5^ v 1 7 V U. V \V l/l iTQ-'-'-VL Wi i * L ■ - 0 m"' 2l.tbl. ViKn 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.