Vikan - 17.02.1983, Blaðsíða 6
»,Ég er
listamaöur
— sá mesti”
Rétt fyrir hádegi þann þrettánda
maí áriö 1904 tilkynnti Don Salvador
Dalí Y Cusí fæðingu sonar síns til
réttra yfirvalda í Figueras í Gerona
á Spáni. Sagöi hann fæddan þann
ellefta þess sama mánaöar og nefndi
drenginn Salvador Felipe Jacinto
Dalí. Þá hefur hann örugglega ekki
rennt grun í hvílík framtíð biöi
barnsins, þótt síðar yrði faðirinn
bæði beint og óbeint til þess að beina
syninum inn á myndlistarbrautina.
Um bernsku Dalís hafa verið
skrifaðar bækur, þar sem hann er
aö sjálfsögðu sjálfur heimildar-
maöurinn, en oft er erfitt að greina
þar á milli draums og veruleika.
Reyndar segir listamaðurinn sjálfur
að þannig hafi hann alltaf verið og
myndir hans bera meö sér að sá
eiginleiki hefur fylgt honum alla
ævi.
Fáir listamenn í heiminum hafa
veriö jafnumdeildir og Dalí, bæði
sem persónuleikar og listamenn.
Hann er talinn snillingur í að
auglýsa sjálfan sig og mörg uppá-
tæki hans hafa orðið heimsfræg ekki
síður en listaverkin. Sem listamaður
er hann talinn til súrrealista, einn
leiðtoganna á því sviði. Samt verður
að segja að þar einskorðar hann sig
ekki við eitthvað eitt fremur en í
einkalifinu og oftar en ekki blandar
hann öllu saman, hreintrúarmönn-
um til mikils angurs.
Myndlistin er hluti af honum
sjálfum en ef Dalí ber á góma fer
ekki hjá því að kona hans, Gala,
verði ofarlega í huga margra. Hún
var honum alla ævi mikils virði og í
málverkum hans sést að hún virðist
sem hluti af hans eigin
persónuleika. Og listamaðurinn Dalí
átti sin blómaár, varö nánast
átrúnaðargoð. En síðar missti hann
tiltrú margra þegar upp komst um
misnotkun hans fræga nafns á
grafíkverkum sem reyndust nánast
verðlaust pappírsrusl. Við nánari
eftirgrennslan kom í ljós að þarna
hafði hann verið verkfæri misvit-
urra ráðgjafa í peningamálum og
virðist eÚii einleikið hversu vel
slíkum mönnum hefur tekist að villa
honum sýn. Enrique Sabater var
ráðgjafi hans um árabil og reyndist
óvandaður í meira lagi. Honum tókst
að verða forríkur á því einu að
notfæra sér Dalí og sjá um fjármál