Vikan


Vikan - 17.02.1983, Blaðsíða 31

Vikan - 17.02.1983, Blaðsíða 31
Þegar ég sá í fyrsta skipti mynd af ABC sagöi ég viö sjálfa mig: „Guö, hvað þetta er ljótur maöur,” og meinti Martin Fry sem var í forgrunni myndarinnar, stórskorinn og bólu- grafinn, í einhverjum gulum glansgalla. Nokkrum mánuöum seinna var ég tilbúin aö viðurkenna aö þetta væri gasalega myndar- legur maður, svona líka vel dressaður, í silki- fötum og ég veit ekki hvað. En það breytist nú líka margt á styttri tíma og aldrei heföi ég neitað því að Martin Fry heföi eitthvaö viö sig. Þetta eitthvað, sem menn veröa að hafa við sig til þess aö geta orðið poppstjörnur, er vandskilgreint. Tónlistarhæfileikar skaða oft ekki en hugmyndaflug, dirfska og rétt utlit a réttum tíma er venjulega vænlegra til árang- urs. Það einkenndi að mörgu leyti síðasta poppár í Bretlandi, þar sem allt byrjar, að umbúðir tónlistarinnar voru fjölbreytilegri en oft áður. Þeir tónlistarmenn sem hvað mest bar á voru í útliti og klæðaburði jafnólíkir og landbúnaðarverkamennirnir hans Kevin Rowland í Dexy’s og silki- og kjólfataklæddu piltarnir í ABC. Arið 1982 verður að teljast harla gott ár fyr- ir ABC. Ef við færum áramótin til um einn mánuð eða þar um bil má segja að ABC hafi sent frá sér fjórar smáplötur sem allar seld- ust mjög vel og breiðskífu sem seldist enn bet- ur og vermdi efsta sæti breska vinsældalist- ans um nokkurt skeið. Lögin á smáplötunum voru Tears Are Not Enough, Poison Arrow, The Look of Love og All of My Heart, en öll þessi lög eru á breiðskífunni The Lexicon of Love. ABC er nokkuð umdeild hljómsveit. Marg- ir, og þar á meöal sú sem þetta skrifar, eru á því að ABC sé mjög svo áheyrileg popphljóm- sveit. Tónlist hennar sé, eins og útlit og fram- koma hljómsveitarmanna, vönduð og fáguö. Hvorki tónlist né textar eru líkleg til að koma róti á hugi manna eða valda straumhvörfum í lífi einstaklinga eða þjóðfélagsins í heild, en fyllilega þess virði að hlýtt sé á. Þeir sem ekki þola ABC segja tónlistina vera innantóma, stolna og stælda. Martin Fry neitar ekki aö lög, textar, útlit og vídeómynd- ir sveitarinnar séu yfirfull af tilvísunum í all- ar áttir, textarnir eru dramatískir eins og framhaldsþættir í sjónvarpi eða sakamála- mynd frá árinu 1946. ABC er frá Sheffield i Norður-Englandi (þaðan ér Human League einnig). Fyrir um tveimur árum breytti hljómsveitin um nafn, haföi áður heitið Vice Versa. Hljómsveitin lét þá lítiö yfir sér, var bara ein af þessum elektrónísku popphljómsveitum sem enginn nennti að hlusta á nema einhverjir sérvitring- ar. I ár stefnir hljómsveitin að því aö sigra heiminn. Eftir að hafa lagt Bretaveldi aö fótum sér hélt hún til meginlands Evrópu og varð vel ágengt í Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu og Hollandi. En Bandaríkin eru fyrir- heitna landið sem forðum. Þar eru hausarnir flestir og plötusalan mest mæld í peningum. ABC hefur orðið nokkuð ágengt í Ameríku og plötur hennar komist á lista. Það er eins og risinn sé aðeins aö taka viö sér og átta sig á aö það eru til fleiri hljómsveitir en Foreigner og félagar. Söngvarinn Martin Fry er forsprakki ABC, talsmaður hljómsveitarinnar og sá sem best er þekktur. Mark White er gítarleikari hljóm- sveitarinnar, David Palmer leikur á trommur og Steve Singleton blæs í saxófón. L3 7. tbl. Vikan 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.