Vikan - 17.02.1983, Blaðsíða 46
/tiaikm yn ddstjs&ms
/þrjátíu ár ,
Það er ekki svo fráleitt að tala
um að Audrey Hepburn sé í tísku
um þessar mundir. Fatahönnuðir
leita gjarnan á vit gamalla tíma
eftir hugmyndum að fatnaði og út-
litstísku komandi tíma. Gamlar
kvikmyndastjörnur verða þá oft
fyrirmyndir að tískunni sem
glæsilegustu fulltrúar ákveðinna
tímabila. Nú er komið að Audrey
Hepburn og tískunni frá árunum
kringum 1955—60. Þá klæddist
Audrey Hepburn samkvæmt nýj-
ustu tísku i víð, efnismikil pils eöa
stuttar, níðþröngar síöbuxur, ta-
mjóa skó, víöar, síöar peysur, bar
slæður og kisusólgleraugu. Fata-
hönnuður sá sem hannaði Audrey
Hepburn og „skapaöi” meö þvi
Audrey-stílinn er Hubert de
Givency. Audrey Hepburn
stjórnaöi nýverið tískusýningu í
Fashion Institute of Technology í
New York til heiöurs Givency a 30
ara afmæli tiskuhuss hans.
Audrey Hepbum er 53 ára, fædd
í Belgíu, dóttir ensks bankamanns
og hollenskrar barónsfrúar. Rétt
nafn hennar er Edda Hepburn.
Vegna þess hve hún var há, grönn
og limafögur vakti hún athygli
tískuljósmyndara strax á
unglingsárum. Hún lærði ballett
og stundaði leiklistarnám af
kappi. Hún fékk smáhlutverk í
ýmsum breskum kvikmyndum og
þegar verið var aö kvikmynda
eina slíka, Monte Carlo Baby, á
frönsku Rivierunni kynntist hún
franska rithöfundinum Col-
ette. Colette fór þess a leit við
Audrey aö hún tæki aö sér aðalhlut-
verk í leikgerð eftir metsölubók
hennar, Gigi, sem átti að fara að
setja upp á Broadway í New York.
Audrey Hepburn líktist mjög
dæmigeröum söguhetjum Colette.
Hún var aðlaðandi og fögur,
viðkvæm, barnsleg og kvenleg í
senn. I raun og veru var Audrey
Hepburn þó engin brothætt dúkka
eða aukvisi. Hún var ákveðin og
bjó yfir skapgerðarstyrk sem fólki
sem ætlar sér að komast áfram á
framabrautinni er nauðsynlegur.
46 Vikan 7. tbl.