Vikan - 17.02.1983, Side 63
Pósturinn
ast undir að gegna þeim
störfum heima og erlendis
sem þeim eru falin (af
utanríkisráðherra).
Fólk með mikla starfs-
reynslu að baki í utanríkis-
þjónustunni er yfirleitt
skipað í sendiherrastöður,
en dæmi eru þó til um að
fyrrverandi stjórnmála-
menn stökkvi inn í sendi-
herraembætti alskapaðir,
ef svo má segja.
Ef þér er fullkomin
alvara skaltu því byrja á aö
taka stúdentspróf og há-
skólapróf og fylgjast síðan
vel meö hvenær auglýst er
eftir fólki til starfa í utan-
ríkisþjónustunni. Þaö er án
efa vænlegri leið en hin
ótrygga leiö stjórnmál-
anna.
Um myndir
og efni
í Vikunni
Gamlagóda Vika.
Alltaf les ég þig og kaupi
þótt ég hafi nú aldrei beini
afráöiö að gerast fastur
áskrifandi, að minnsta kosti
ekki ennþá. Ég er oftast
nokkuð ánœgð meö þig en þó
kemur fgrir að mér þykir þú
svona heldur þunnleit. Samt
hefur það nú skánað í seinni
tíð. Það eru ekki mörg viðtöl
sem hefur verið verulega
gaman að lesa fyrr en í síð-
ustu Viku, en þá voru tvö
glimrandi viðtöl. Sérstak-
lega þótti mér gaman að við-
talinu við hana Bergþóru
Árnadóttur, hún er svo
einstaklega skemmtilegur
persónuleiki. Eg var ein af
þeim sem keyptu gömlu plöt-
una hennar og mér þykir
hún alltaf jafngóð. Ég hef
líka fylgst með henni í gegn-
um árin og er alveg stórhrif-
in af nýju plötunni hennar.
Mér þótti hins vegar leiðin-
legt að hún skyldi ekki vera
með félögum sínum úr Hálft
í hvoru á miðopnumyndinni
í Vikunni á undan. Þótt hún
sé hœtt að spila með þeim
hefði nú verið í lagi að hafa
hana með á myndinni, svona
fyrir okkur sem höfum fylgst
með þeim og hlustað á þau
syngja. Þið hefðuð að
minnsta kosti getað haft lit-
mynd í opnunni af Bergþóru
í stað þessarar svarthvítu, þó
hún vœri nú annars alveg
ágœt. En þetta er nú bara
smánöldur, ég var nokkuð
ánœgð með hana og viðtalið
við Bergþóru var bara nokkuð
liressilegt eins og við var að
búast. Vonandi heldur Vik-
an áfram á sömu braut eftir-
leiðis.
Bestu kveðjur til alls
starfsfólks.
,,Ein sem fylgist með þótt
gömul sé. ”
Pósturinn þakkar bréfið
og nöldrið, og kveðjurnar
til starfsfólksins. Þaö er
alltaf gott að heyra álit les-
enda á efni blaðsins.
Plakötin eru alltaf stórt
mál og þaö var í samráði
viö Hálft í hvoru og Berg-
þóru aö plakatiö var haft af
þeim sem skipuðu flokkinn
þegar blaðið kom út. En
það voru fleiri en þú sem
söknuöu Bergþóru, því hún
er greinilega vinsæl víða.
Svo er það þetta meö lit-
myndir og svarthvítar.
Pósturinn hefur áður fjall-
að um það því þaö er mikiö
matsatriði hvort eitthvað
er unnið við að fá litmynd
og í þessu tilfelli varð
svarthvít mynd fyrir valinu
af því hún þótti koma best
út. En þaö er alltaf hollt að
fá ábendingar frá lesend-
um og því þökkum við einni
sem fylgist með fyrir að
fylgjast svona vel með og
vonum að blaðið verði sem
allra sjaldnast þunnleitt að
hennar mati.
Út úr heiminum
Kœra Vika.
Ég er hér ein sem er út úr
heiminum og langar að fá að
vita hvernig hœgt er að kom-
ast inn í hann aftur. Sko, ég
er hrifin af strák og ég held
hann elski mig líka. Hann er
einu ári eldri en ég. Hann er
ofsalega sœtur og skemmti-
legur en ég er svolítið feimin
við hann því að hann lœtur
stundum svo bjánalega.
Kannski er það af því að
hann er feiminn líka. Við
erum saman. Ætti ég að
hœtta við hann eða halda
áfram ? Hvað á ég að gera til
að vera ekki svona feimin við
alla? Hvernig losnar maður
við stóran RASS og FEIT
lœri? Hvað lestu úr skrift-
inni? Hvað heldur þú að ég
sé gömul?Hvernigpassa vog
(stelpa) og hrútur (strákur)
saman? En vog (stelpa) og
vatnsberi (strákur)?
Bœ, bœ.
P.S. Helga hefur ekki gott af
þessu bréfi.
Ein sem vonast
eftir góðu ráði.
Pósturinn telur aö vanda-
mál þitt, og ef til vill ykkar
beggja, sé feimni og hún sé
hugsanlega hreinlega bara
af því aö þið séuð reglulega
skotin hvort í öðru. Ekkert,
í bréfinu minnsta kosti,
bendir til þess að samband
ykkar sé í hættu fremur en
önnur sambönd. Þú hefur
áhyggjur af því að þú sért
út úr heiminum en þaö er
algengur fylgikvilli þegar
maður er ástfanginn. Þú
þarft varla að hafa
áhyggjur þó strákurinn láti
bjánalega, það er stundum
erfitt að vita hvaö maður á
af sér aö gera þegar byrjað
er að vera saman. Því
miður er ekkert algilt ráð
til viö feimni en gott getur
verið að spyrja sjálfan sig
hvort fólkiö í kringum
mann sé nokkuö öruggara
meö sig. Meira aö segja
þeir sem virðast hressastir
eiga oft á tíðum viö mikla
feimni að stríöa. Svo er
prýðilegt aö hressa upp á
sjálfan sig meö því að rifja
upp skemmtilegar minn-
ingar þegar feimnin hvarf
um stund, því að allir losna
við feimni stund og stund.
Hvað er þaö sem gerði þig
ófeimna þá og er ekki hægt
aö endurtaka það? Annars
líst Póstinum bara vel a
sambandið sem stendur, en
auðvitað geta öll sambönd
tekið enda og ÞAÐ getur
stundum veriö erfitt. Þá er
um að gera aö einangra sig
ekki heldur fara út meö
félögunum. Þeir eru oftast
dauöfegnir og jafnfeimnir
og þú.
Feitan rass og feit læri
getur verið strembið að
losna viö og fyrst er að
huga að mataræðinu, borða
ekki sælgæti og sætar
kökur og reyna síöan
leikfimiæfingar sem eru
góðar fyrir rassinn og lær-
in. Hlaup og boltaleikir
geta líka hjálpaö. Póstur-
inn les ekki úr skrift og er
ekkert sérlega stjörnu-
fróður, en þú ert sjálfsagt á
besta unglingsaldri og öll
merki eiga meira eða
minna saman ef fólk er
reiðubúið að meta hvort
annaö með kostum og göll-
um.
HEFUR ÞU
LESIÐ
VANDAD MANAÐARRIT
SEMER
íSÉRFLOKKIÁ ÍSLANDI
7. tbl. Vikan 63