Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 3
Stjörnubrúbkaup
Carrie Fisher, sem fræg hefur
orðið fyrir leik sinn í Stjörnu-
stríðs-kvikmyndunum (Leia
prinsessa), gekk nýverið í það
heilaga. Sá hamingjusami er
enginn annar en söngvarinn góð-
kunni Paul Simon en hjúin hafa
verið kærustupar síðastliðin
fimm ár og ráðahagurinn kom
því engum á óvart. Hjónavígslan
var að gyðinglegum sið og fór
fram í íbúð Simon í New York.
Meðal viðstaddra voru foreldrar
brúðarinnar sem skildu þegar
hún var lítil stúlka, Eddie Fisher
og Debbie Reynolds. Þar var
einnig leikstjóri Stjörnustríðs,
George Lucas, söngfélagi brúð-
gumans, Art Garfunkel, og Billy
Joel. Sá síðastnefndi færði brúð-
hjónunum að gjöf gamlan glym-
skratta með plötum frá árunum
’50—’60.
Eftir athöfnina flugu hjónin
til Houston í Texas. Hveiti-
brauðsdögunum ætluðu þau að
eyða á ferðalagi um Bandaríkin
þver og endilöng. Ferðafélagi
hjónanna var enginn annar en
Art Garfunkel, enda brúðkaups-
ferðin ekkert annað en dulbúið
tónleikaferðalag þessara gömlu
félaga.
Fallhlífar-
flugvél
Það nýjasta í loftsiglingum er
þetta undarlega fyrirbæri sem er
sambland af fallhlíf og flugvél.
Fallhlífin er vængur flugvélar-
innar, jafnframt því sem hún
veitir mikið öryggi. Ef eitthvað
kemur fyrir, vélin stöðvast eða
bensínið klárast þá svífur flug-
maðurinn einfaldlega niður í
fallhlífmni.
„Flugvél” þessi er knúin
áfram af tveimur litlum bensín-
hreyflum. Hún er mjög létt og
það er ákaflega einfalt og auðvelt
að stjórna henni. Stjórntækin
eru þrjú: Fótstig fyrir vinstri fót,
fótstig fyrir hægri fót og svo
bensíngjöf. Beygt er með því að
ýta öðru hvoru fótstiginu fram
og fer þá flugvélin hægt en
örugglega í þá átt sem óskað er.
Sagt er að hver sem er geti lært
að fljúga henni á 15 mínútum.
A litlu myndinni sést hönn-
uðurinn, Steve Snyder, ásamt
tilraunaflugmanni frá Popular
Mechanics. Snyder er Banda-
ríkjamaður og framleiðir flugvél-
arnar í fjöldaframleiðslu. Hver
vél mun kosta 13700 dollara eða
nokkuð yfir 100.000 krónur.
Langþráð frí frá sparíklæðnaði
og skyldum, i skátabúðum rétt
hjá Paris.
Karólina hefur lítinn tima til að
leika sér eftir að hún tók við
skyldum móður sinnar.
38. tbl. Vikan 3