Vikan


Vikan - 22.09.1983, Side 13

Vikan - 22.09.1983, Side 13
Litla stelpan hans Ryan O'Neal er orðin stór - ekkert ofboðslega stór en nógu stór til að vera talin kona með mönnum. Þegar hún lætur mynda sig með „konuhatt" er haft á orði að hún sé ekk- ert ósvipuð Fassbinder- stjörnunni Hönnu Schygulla. En sjálf hefur hún eitt og annað um sjálfa sig að segja: „Ég hef áhuga á að koma til Evrópu, ferðast þar um í fríinu, en í eðli minu er ég fyrst og fremst Kaliforníubúi. Ég er ekkert hrifin af lofts laginu þarna í Evrópu, þar er allt of kalt og hrá- slagalegt. (Hvað skyldi hún segja um ísland, blessuð stelpan?) Ég lifi og dafna í sóiinni. Sólin er ein af meginástæðunum fyrir því hvað ég þrífst vel í Kaliforníu." Tatum er umhugað um aó vera ekki talin litla stelpan úr Paper Moon lengur og ekki sættir hún sig heldur við þann orðróm að hún búi núna hjá mömmu sinni. Sagan hefur sjáifsagt orðið vin sæl af því að hún þótti hugljúf, sagan af litlu stúlkunni hans pabba síns sem skammaði flest- ar vinkonur hans og fór seinast heim til mömmu. Tatum leiðréttir söguna og segist búa ein með sjálfri sér. Hún stundar Jane Fonda leikfimi af miklum móð eftir videospólu og er einlægur aðdáandi Diönu Bretaprinsessu. „Ég vonast til þess að fá fleiri fullorðinshlut- verk í framtíðinni. Mig langar að vinna með góð- um leikstjórum og ég ætla að reyna að blanda námi og vinnu hæfilega saman á næstunni." 19 ára og rétt að verða tvítug dama afneitar Tatum æringjanum í sér, en kannski verður hún einhvern tíma nógu gömul til að finna hann aftur. 38. tbl. Vlkan 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.