Vikan


Vikan - 22.09.1983, Page 15

Vikan - 22.09.1983, Page 15
BRAGGATIMABILIÐ I SÖGU REYKJAVÍKUR III hluti texti: fríða björnsdóttir Hér hlúir faðir að barni sinu i vagni utan við bragga í mars 1947. Hefur þetta barn goldið þess í umtali og áiiti að borgin var þess vanbúin að taka við öll- um þeim fjölda fólks sem flutti ,,á mölina" eftir striðið? ÞAD FER ALLTAF SLÆMT ORÐ AF FÁTÆKRAHVERFUM Þeir sem sökina eiga þvo hendur sínar og klína skömminni á fórnarlambið - RÆTT VIÐ ÞÓRUNNI MAGNÚSDÓTTUR, FORMANN SAMTAKA HERSKÁLABÚA, OG GUÐRÚNU JÖNSDÓTTUR, RITARA SAMTAKANNA Næsta sunnudag á eftir, 28. nóvember, var aftur haldinn fund- ur og þá í húsakynnum Fæöis- kaupendafélags Reykjavíkur í Camp Knox. Þá voru mættir full- trúar úr öðrum braggahverfum og á þessum fundi litu dagsins ljós Samtök herskálabúa sem störfuöu af miklum krafti allt fram til 6. apríl 1960 þegar félaginu var formlega slitið. En til hvers var verið aö stofna þessi samtök? Var einhver þörf fyrir þau og geröu þau eitthvert gagn þann tíma sem þau störf- uðu? Um þetta spurðum við Þór- unni Magnúsdóttur, formann sam- takanna, og Guðrúnu Jónsdóttur, sem var ritari þeirra og gjaldkeri um skeið, en báðar þessar konur Sunnudag einn seint í nóvember árið 1953 komu tíu manns saman til fundar í bragga í Camp Knox í Reykjavík. Fundarmenn bjuggu allir í her- skálahverfum en til fundarins hafði boðað Þórunn Magnúsdóttir og var hann haldinn á heimili henn- ar. Umræðuefnið var möguleiki á stofnun samtaka sem hefðu það markmið að berjast fyrir byggingu mannsæmandi íbúða handa þeim sem byggju í bröggum og bættri aðbúð fólks þar á meðan þeir enn væru við lýði. bjuggu mörg ár í bröggum og geta því vel lýst lífinu þar og afstöðu fólks til braggabúanna. Fólk hafði ekki mikla trú á að sam- staða næðist — Áttir þú hugmyndina að stofnun samtakanna? spyrjum við Þórunni. „Ætli megi ekki segja það. Það var þó satt að segja ekki mikil trú á því hjá neinum að hægt væri að ná samstöðu um þetta, en mér fannst um talsvert mikið vanda- mál að ræöa og óhjákvæmilegt annað en reyna að skapa ein- hverja samstöðu og efna til sam- eiginlegs átaks til að vekja áhuga 38. tbl. Vikan 15

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.