Vikan


Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 18

Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 18
en það fékk varanlegt húsnæði. Þannig varö þetta nánast píslar- ganga hjá fólkinu. Og þaö sem meira var, það sem olli því aö braggarnir lögðust af og voru rifn- ir var kannski ekki áhugi af hálfu borgaryfirvalda á að útrýma heilsuspillandi húsnæði heldur ásókn byggingaraðila í lóöir innan bæjarins, en eins og viö vitum voru flestir kamparnir innanbæj- ar. Það var hagsmunamál borgar- innar að nýta betur bæjarlandiö. Augljóst dæmi um þetta eru blokk- irnar sem risu þar sem Camp Knox stóö og hin eftirsóttu bygg- ingarsvæði þar sem Þórodds- staöakampurinn var, einnig lóð- irnar viö Háteigsveginn og iðn- aöarlóðirnar þar sem Múlakamp- ur og Herskólakampur voru.” Þórunn Magnúsdóttir sagði í framsöguræðunni, sem hún hélt á ráðstefnunni um útrýmingu braggahverfanna í borginni, að ís- lendingar hefðu áður sýnt að þeir gætu lyft grettistökum ef þeir stæðu saman, um það bæri vitni útrýming holdsveikinnar, sig- urinn yfir berklaveikinni og slysa- varnarstarfiö. Næsta stórátak væri að útrýma braggaíbúðunum. Það mál væri ekki sérmál her- skálabúanna sjáifra heldur mál allrar þjóðarinnar. Bröggunum og braggahverfun- um hefur verið útrýmt en ekki eru allir sammála um hvort dvölin í þessum íbúöum, ef íbúöir skyldi kalla, hafi ekki skilið eftir sig ein- hver sár sem tíminn einn getur læknað. Þeir sem þekktu vel til fólksins í braggahverfunum vita þó að foreldrar lögðu hart aö sér til þess aö börnin sem ólust upp í bröggunum fengju ekki síöri menntun en jafnaldrar þeirra. Al- mennur hreyfanleiki á milli stétta og hreyfanleiki í búsetu lands- manna hefur komið í veg fyrir aö börnin úr bröggunum yrðu varan- lega merktur hópur. Fannst ég hafa „pottbotn fyrir himin" - SEGIR ÞÓRUNN MAGNÚSDÓTTIR SAGNFRÆÐINGUR SEM VAR FOR- MAÐUR SAMTAKA HERSKÁLABÚA OG FRUMKVÖÐULL AÐ STOFNUN SAMTAK- ANNA Og Þórunn heldur áfram: „Okk- ur sem fluttum inn í þessa bragga fljótlega eftir að hermenn höföu verið í þeim var dálítið fast í huga að þetta voru ekki íbúðir fyrir Is- lendinga — ekki fjölskylduíbúðir — heldur herbúðir. Þetta hafði sín áhrif. Braggarnir minntu á allt mögulegt annað en venjulegt íbúðarhúsnæöi. Margir þeirra voru ákaflega dimmir enda glugg- arnir litlir. Ég man að þegar ég flutti þarna inn sumarið 1951 var ákaflega sólrík tíð. Það var glampandi sóJ þegar veriö var að bera húsgögnin inn en þegar inn var komið í þetta gímald var eins og maöur væri kominn ofan í jörð- ina. Þetta voru ákaflega erfiöar stundir. Ég bjó í heilum bragga, mjög stórum og rúmgóöum, en venju- legast voru tvær íbúðir í hverjum bragga. Fyrir framan minn bragga og tvo aðra var timbur- skáli og var þar gengiö inn í þá alla. Ég man vel hvernig fyrstu dagarnir og næturnar voru og það hefur áreiðanlega veriö svipað hjá mörgum öörum. Mér féllust alveg hendur við að búa um mig þarna. Veggirnir voru engir, heldur bog- ar niður í gólf, nema reyndar í fremri stofunni. Þar voru viðar- þiljur sem höföu verið þar frá upp- hafi. Einhvern veginn var það svo aö manni fannst ekki hægt að koma húsgögnum neinn veginn upp frásögn ömmu minnar sem tengdist því aö ótrú hafði veriö á því að beygja sig yfir pott eða súpa af pottbarmi á þeim tíma sem mjólk var flóuð í pottum og fólk lítt haldið af mat. Amma inlega vera í sporum þessarar konu, sem potturinn hafði verið borinn yfir, og að ég hefði „pott- botn fyrir himin”. Maður bjó þarna leigufrítt en kyndingarkostnaöurinn var svo gífurlegur að það var á borö viö leigu á venjulegri íbúð. Oft á tíð- um var kyndingin enn dýrari en þótt búið hefði verið í leiguíbúð. Og svo var þetta alltaf þvingun,” segir Þórunn. „Ég innritaði mig í byggingafé- lag en þar losnuðu aðeins tveggja herbergja íbúðir og það nægði mér ekki með fjögur börn, og það fimmta átti eftir að bætast viö eft- ir að ég fór úr bragganum. Það var veturinn 1958. Annars finnst mér þaö sem skáld og rithöfundar hafa verið að skrifa um braggabúa mjög svo misvísandi. Og orðróm um að drykkjuskapur hafi verið meiri í bröggum en annars staðar tel ég eiga viö lítil rök að styðjast. Við lifðum þarna fyrir opnum tjöld- um, líkast því að vera á tjaldstæði. Ef einhvers staöar voru læti í stór- um kampi hljómuðu þau út yfir allt. Þá var erfitt að greina hvort heimamenn framleiddu hávaðann ,,Það var tilgangslítið á þessum tíma fyrir fólk með stóran barnahóp að leita sér að leiguhúsnæði. Háar fyrirframgreiðslur voru farnar að tíðkast fyrir 1950 og við þær réð barnafólk ekki, ’ ’ segir Þórunn Magnúsdóttir, sagnfræðingur og kennari, sem eitt sinn var formaður Samtaka herskálabúa. ,,Ég bjó í Camp Knox, í bragga sem áður hafði verið samkomuhús.” fyrir í þessu ólögulega húsnæði. haföi þekkt gamla konu sem háði Ekki var hægt að láta rúm barn- langt dauðastríð og haföi sagt anna standa við útveggi og inn- henni að hún væri hrædd um að veggir voru ekki margir þegar allt hún gæti ekki dáið af því að hún var svona á lengdina. hafði hvolft potti yfir sig. Baö hún Fyrstu nóttina sem ég var þarna ömmu aö sjá til þess að borinn lá ég andvaka og horfði upp í yrði yfir sig pottur ef hún ætti erf- þessa hvelfingu. Þá fór ég að rifja itt dauðastríð. Mér fannst ég eig- 18 Vikan 38. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.