Vikan


Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 21

Vikan - 22.09.1983, Blaðsíða 21
að dansa og að semja dans SVAVARSDÖTTUR Texti: Sigrún Harðardóttir Myndir: Sergio Zaiis una. Það er svo áríðandi alveg frá byrjun að hafa fallega músík, hafa góða músík. Ég lærði að meta músík í gegnum kennsluna en svo veit maður ekki af hverju maður lendir út í hitt og þetta. Hvers vegna valdir þú Holíand? „Ég bara fékk þessa flugu í kollinn þegar ég var að stúdera í London. Þá hafði Nationalball- « ettinn í Amsterdam langstærsta úrvalið á efnisskrá af kompaní- um í Vestur-Evrópu. Það eru klassísk verk, dramatísk og svo módern, frá öllum txmabilum, þannig að það var það sem mig langaði í. Svo ég bara stefndi á Amsterdam. Ég er ógurlega mik- ill Evrópusinni, mér finnst að í Evrópu hafi hlutirnir ennþá sinn kjarna og góðir hlutir eru að ger- ast. í Amsterdam eru góðir hlutir að gerast, í það minnsta í dansin- um, og ekki síður í Haag, þar er Tékki, Jiri Kylian að nafni, hann er kannski að gera það stærsta sem er að gerast í dag, í það minnsta sem ég hef séð árum saman. Þannig að það er alltaf nóg að sjá, og svo líka í Þýska- landi. Það er svo stutt að fara frá Amsterdam, að fara í allar áttir, þetta er svo miðsvæðis, svo þægi- legt.” Síðustu tvö árin sem Hlíf starfaði með Nationalballettin- um stofnaði hún „workshop” ásamt einum af samdönsurum sínum. Tilgangurinn hjá þeim með þessu var að hvetja alla dansarana sem störfuðu við ball- ettinn til þess að semja dansa sjálfir en vera ekki alltaf að dansa verk eftir þrjár—fjórar mann- eskjur. Það voru átta eða níu dansarar sem tóku þátt í því að semja dansa fyrir fyrstu sýning- una. „Við skipulögðum sýninguna og hjálpuðum til í sambandi við lýsingu og hvenær hægt væri að æfa og hvernig hægt væri að koma dönsurunum saman og allt þetta. Það er ógurleg vinna og vesen. Maður vinnur allan dag- inn, til klukkan fimm, og gerir þetta bara í frítímum, skilurðu, og aðallega að tala kjark í fólk. Það er heilmikil vinna í því, fólk er alltaf svo hrætt við að fara af stað og þá lendir maður í því að örva það.” Eftir tveggja ára starf með „workshop” fór Hlíf jafnframt að semja balletta fyrir aðra og var henni þá boðið að semja ballett fyrir dansflokkinn Intródans og var þetta fyrsta launaða verkið hennar. Þessi ballett heitir „Psappha” og var gerð „doku- mentasjón” af þessum ballett á vegum menntamálaráðs Hol- lands vegna 10 ára afmælis Intró- dans. Menntamálaráð vildi fá yfirlit yfxr hvernig ballett verður til, frá fyrstu sporunum til frum- sýningarinnar. Það voru teknar yfir 400 ljósmyndir vegna þessa og hafa þær verið sýndar víðsveg- ar um Holland og stendur til að prenta þær í bók og gefa út. Hlíf hélt síðan heim til íslands og færði upp með íslenska dans- flokknum verk sem hún hafði samið fyrir ,,workshop ”, , ,Fimm söngvar og sjö dansarar”, og einnig samdi hún verkið „Eða” sem flutt var í Þjóðleikhúsinu í desember 1981. Þetta haust starfaði hún með íslenska dans- flokknum um þriggja mánaða skeið. Það var í fyrsta sinn í 16 ár sem hún starfaði heima og stoppaði lengur en í sumarfríi. Hún kom síðan aftur hingað í janúar og aðstoðaði við upp- færslu á ballettinum „Giselle”. Á síðastliðnu ári fékk Hlxf svo stórt verkefni fyrir listahátíð í Arnhem í Hollandi og stóð til að flytja það í dómkirkjunni í Arn- hem. Hlxf fékk Lárus Grímsson tónskáld, sem einnig er búsettur í Hollandi, til þess að vinna að þessu verkefni með sér og höfðu þau unnið að þessu verkefni í 38. tbl. Vikan 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.