Vikan


Vikan - 22.09.1983, Page 22

Vikan - 22.09.1983, Page 22
fimm mánuði þegar ákveðið var að hætta við og áttu æfingar þá að hefjast eftir tvær vikur. „Ég hafði óskað eftir að fá að vinna um vikutíma í kirkjunni fyrir sýninguna því að þar er allt annað rými og allt öðruvísi að æfa þar en í æfingasal. Þá kom í ljós að ekki var hægt að hita upp kirkjuna svo að ég gat ekki æft þarna. Fleira kom til en upphit- unin var kannski stærsta ástæðan fyrir að ákveðið var að hætta við sýningarþar.” Arnhem átti 750 ára afmæli í vor. Haldin var stór listahátíð í því tilefni og var Hlíf boðið að semja annað verk til flutnings í leikhúsinu. , ,Ég samdi ballettinn „Duende” við tónlist eftir Gorge Crumb. Þessi tónlist er „inspírasjónir” hans við ljóð Garcia Lorca og tekur verkið hálftíma í flutningi. Ég byrjaði að semja þetta verk í apríl og frumsýningin var 25. maí. Það er mismunandi hvernig fólk vinn- ur, út frá hverju, til dæmis ljós, tónlist og svo framvegis, eitthvað sem verður til hjá hverjum og einum. Ég geng yfirleitt alltaf út frá músík sem er mjög viðkvæm í þessu síðasta verki og líka í ,,Eða”. Ég nota líka ljóðin til að fá fram þá mynd sem ég hef áhuga á. Það getur tekið klukku- stundir áður en eitthvað kemur út úr því. Ég fer þá ein með kass- ettutækið inn í stúdíóið og dansa af stað. Ég vinn núna miklu nán- ara með dönsurunum. Hver ein- staklingur er „inspírasjón” á sinn hátt, ég reyni að ná því besta út úr hverjum og einum. Þó að ég hlusti mikið á músíkina þá tel ég aldrei taktinn heldur sem kannski í algerri þögn og set svo músíkina á. Það er því ekki rytminn í músíkinni sem ræður dansinum heldur andi tónlistar- innar sem dansinn byggir á meir en „strúktúrinn”. Það er ekkert leiðinlegra en ballettar sem hoppa upp í loft á háu tónunum og skríða í gólfinu á lágu tónun- um. Það fer allt eftir því hvernig tónlist unnið er með í hvert skipti hvernig ballettinn er. „Duende” verður tekið aftur upp í haust og sýnt næsta starfsár hjá Intródans og einnig er ætlun- in að sýna „Psappa” aftur í vet- ur. Þeir hafa svo beðið mig um að starfa aftur með þeim að ári og semja þá nýtt verk. Intródans er eini flokkurinn sem fékk með- mæli frá listaráðinu til þess að stækka við sig. Það er verið að skera niður alls staðar en þeir eiga að fjölga dönsurum. ’ ’ 22 Vikan 38. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.