Vikan


Vikan - 22.09.1983, Side 37

Vikan - 22.09.1983, Side 37
Mynd mánaðarins Jón T. Guömundsson sendi' okkur nokkrar svarthvítar myndir sem hann hefur stækk- aö sjálfur. Þessi mynd er tekin á Minolta XD 7 með 100-200 mm linsu, hraði 1000, Ijósop 8 og filman er TRI-X. Mótífið er skemmtilegt og myndin góð að öðru leyti en því að hún hefði mátt vera meira lýst (betri teikning). Það fæst fram með lengri lýsingu eöa annarri gráðu af pappír (mýkri). Samt veljum við myndina MYND MÁNAÐARINS að þessu sinni. Fanney Gunnarsdóttir, Borgarbraut 22, Grundarfirði, sendi okkur þrjár ágætis myndir fyrir alllöngu. Við birtum hér mynd sem var tekin fyrir rúmu ári uppi á Langhrygg í Grundarfirði. Á myndinni eru þau Aggi, Raggi, Sjonni, Árni og Linda. Fanney segir um myndina: „Þau horfa hugs- andi sitt í hvora áttina og Sjonni kemur vel út f gulum fötum í miðjum hópnum. Uppstillingin var ekki svona viljandi. í rauninni horfa þeir Aggi, Raggi og Sjonni í átt til Kirkjufeils en Árni og Linda í átt til Helgrinda. Svo ekki er furða þótt myndin verði svolítið hugræn. Myndina má kalla Spáð i framtíðina . . ." Myndin er tekin á Olympus OM 2. Gfsli Tryggvason, Þórunnarstræti 81, Akureyri, er enn einn sem á Olympus OM 2 vél. Við veljum úr myndum hans þessa mynd af full- orðinni konu sem er Ifklega að lesa. Myndin er ekki gallalaus, hún er tekin of nærri og bakgrunnur er órólegur og fullsterk birta frá glugga. En þetta er dæmigert fyrir myndir sem maður stækkar ekki sjálfur. Langflestar myndir sem við fáum koma beint úr stækkunarvélum stóru verkstæðanna, þar sem enn eru alltof fáir sem stækka sjálfir lit- myndir sínar. Gísli spyr þriggja spurninga: 1. Getur maður fengið ráðleggingar varðandi Ijósmyndun, linsukaup og svo framvegis? Svar: Já, þær ættirðu að fá f Ijósmyndavöruverslun- um á Akureyri og aðrar ráðleggingar ættirðu aðfá hjá áhugaljósmynd- urum sem eru lengra á veg komnir. Bestu ráðleggingarnar eru per- sónulegar og svo hefur maður mikið gagn af að skoða og ræða myndir góðra Ijósmyndara. 2. Hvað kemur Ijósmyndablaðið oft út? Svar: Einu sinni f mánuði, að minnsta kosti út þetta ár. 3. Skoðið þið ekki allar myndir sem koma? Svar: Jú. 38. tbl. Vlkan 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.