Vikan


Vikan - 22.09.1983, Page 42

Vikan - 22.09.1983, Page 42
Stöku sinnum leit ég inn í menntaskólana í grenndinni til að vita hvort þar vantaði kennara, en það var aldrei. Árið var 1975. Það varð æ erfiðara að finna vinnu. Ég fór mér hægt, las og hvíldi mig og annaðist litla drenginn minn. Ég kom húsinu í lag og ræktaði nýtt barn innra með mér. Ég var ósköp ánægð. Mér fannst ég vera á nokkurs konar hvíldar- stað, í varanlegu mynstri. Ég vissi að eftir fáein ár færi ég aftur að vinna og kenna, en ég hafði fengið nóg af slíku um hríð. Ég var tilbú- in fyrir börn og býli. Og Charlie elskaði Adam sinn og ég elskaði Charlie enn meira fyrir þaö að hann elskaði son sinn og þarna vorum við, elskuöum öll hvert. annað. Caroline og Cathy komu ekki að skoða Adam meðan hann var ung- barn. Við hringdum í þær af sjúkrahúsinu daginn eftir að Ad- am fæddist til að segja þeim frá honum og þær sögðu báðar það sama: „0.” Engin áberandi tón- tegund, engin önnur orð. Við hugs- uðum: Eru þær ánægöar? Dapr- ar? Leiðist þeim? Charlie skrifaði báðum stúlkunum langt bréf þar sem hann sagði hvorri um sig hve heitt hann elskaði hana, af hverju hún væri sérstök fyrir honum, að hann myndi ávallt elska hana. Og við hringdum nokkrum sinnum, báðum stúlkurnar að koma að heimsækja okkur um vorið, núna bjuggum við svo nærri. En þær höfðu alltaf afsakanir. Ég sakn- aði stúlknanna, saknaði brandara þeirra og slúðurs og bara þess að sjá þær. Þær voru orðnar hluti af lífi mínu og fjarvera þeirra var áberandi. En ég vildi ekki neyöa þær til að koma og sama var að segja um Charlie. Þegar sumarið kom fékk hann kuldaleg bréf frá stúlkunum þar sem þær sögðust heldur vilja sleppa því að koma í heimsókn. Það var í lok desember og Adam var ellefu mánaða gamall þegar Caroline og Cathy sáu hann loks. Þær höfðu á endanum látið svo lít- ið að koma í heimsókn til okkar í lok jólafrísins. Eflaust stafaði sú ákvörðun þeirra af því að Charlie sagðist ætla að gefa þeim bíl. Þetta hafði verið mín hugmynd, með bílinn. Ég hélt að svo stór og dýr gjöf myndi færa þeim sönnur á að Charlie elskaöi þær enn, þrátt fyrir það að hann ætti nýtt barn. Ég hélt líka að þá yröi auðveldara fyrir þær að koma í heimsókn til okkar. Charlie ók til Hadley til að sækja stúlkurnar. Hann ók tilkomumikl- um, nýjum, rauðum Volkswagen og festi stóra slaufu á vélarhlífina að tillögu minni. Seinna sagði hann mér að stúlkurnar hefðu ver- ið viðeigandi hrifnar, á sinn hljóða, þumbaralega hátt. Þær virtust í meira uppnámi yfir því að bíllinn var ekki nema einn og að þær yröu að skiptast á um hann 42 Víkan 38. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.