Vikan - 17.10.1985, Blaðsíða 23
18.
OKTÓBER
Skapferli
Þeir sem eru fæddir þennan dag
eru yfirleitt mjúkir í lund, fremur
viðkvæmir, listrænir og afburða
notalegir í umgengni. Þeir forðast
stælur og sækjast eftir vingjarn-
legum kunningsskap við sem
flesta. Vinirnir eru ekki sérlega
margir en kunningjarnir þeim
mun fleiri.
Lífsstarf
Ekki er ósennilegt að þann sem
afmæli á þennan dag sé að finna
við störf einhvers staðar í opin-
bera geiranum, gjarnan við ein-
hvers konar þjónustustarf sem
gerir kröfur til mannþekkingar og
lipurðar en er ekki of erilsamt.
Heppni í alls kyns viðskiptum
fylgir gjarnan þeim sem eru fædd-
ir þennan dag.
Ástalíf
Ekki er öruggt að sá sem afmæli
á þennan dag verði ánægöur í
hjónabandi. Ekki þarf að kvarta
um hylli hins kynsins en þegar
kemur að því að velja sér lífsföru-
naut vandast málið og sumir sem
fæddir eru þennan dag eru ekki of
sælir íhjónabandi.
Heilsufar
Heilsan er ákaflega góð. Helst
er það bakið og maginn sem
angrar þegar líða tekur á ævina.
19.
OKTÓBER
Skapferli
Geð þeirra sem fæddir eru
þennan dag er vægast sagt
misjafnt. Þeir eiga það til að vera
ljúfmenni, stimamjúkir og nánast
undirgefnir. Á köflum glittir þó í
aðra drætti. Þá geta þeir rokið
upp, verið harðfylgnir og óvægnir,
eigingjarnir og jafnvel hættulegir.
Lífsstarf
Þá sem fæddir eru þennan dag
er að finna í nánast öllum störfum.
Algengt er að þeir fáist við störf
sem tengjast viðskiptum en þeir
geta einnig orðið góðir læknar og
iðnaðarmenn svo eitthvað sé
nefnt.
Ástalíf
Vegna hins misjafna skapferlis
er ekki óalgengt að þeir sem
fæddir eru þennan dag standi í
nokkrum stórræðum í ástamálum.
Oftast endar það með því að réttur
maki finnst og eru þaö þá með
hamíngjusömustu hjónaböndum
sem um getur.
Heilsufar
Þeir sem afmæli eiga þennan
dag eru ekkert sérlega hraust-
byggðir og heilsufar þeirra mótast
mjög af hvað verður ofan á í skap-
geröinni.
20.
OKTÓBER
Skapferli
Þeir sem fæddir eru þennan dag
eru undir áhrifum frá mörgum
stjörnum. Þeir eru alúðlegir, vilja
halda friðinn og háttvísir eins og
gjarnt er um vatnsbera. Djörfung-
in kemur frá stjörnunni Mars. tJt-
haldið er yfirleitt ekki sérlega
mikið í því sem þeir taka sér fyrir
hendur en hæfileikarnir eru
margvíslegir og beinast í ýmsar
áttir.
Lífsstarf
Ef valið stendur milli starfs í
opinbera geiranum og til dæmis
viðskipta á afmælisbarnið hik-
laust að velja embættisstarf í
opinbera geiranum. Þó geta þeir
sem fæddir eru þennan dag náð
langt á nánast hvaða sviði sem er.
Eini galdurinn er að beita sjálfan
sig ögun.
Ástalíf
Það er líflegt og margbreyti-
legt. Þeir sem afmæli eiga þennan
dag giftast yfirleitt mjög seint eða
mjög snemma. Sambandið verður
yfirleitt hamingjusamt hvort sem
er.
Heilsufar
Taugarnar eru veikastar.
21.
OKTÓBER
Skapferli
Hófsemi og dómgreind einkenna
þá sem fæddir eru þennan dag.
Þeir eru yfirleitt rólyndismenn
sem fátt fær haggað. Vegna skap-
ferlis þeirra er mjög gjarnan leit-
að til þeirra um álit á öllu milli
himins og jaröar. Það verður
gjarnan til þess að þeir þroskast
snemma og vel. Kímnin er annar
ríkúr þáttur í fari þeirra og það
veldur því aö þeir eru afar vinsæl-
ir.
Lífsstarf
Þeir sem fæddir eru þennan dag
velja sér oft störf þar sem mann-
margt er, við ferðamál, f jölmiðlun
og margs konar verslun. Ölíklegt
er að finna þá í störfum þar sem
menn taka beinar ákvarðanir og
áhættu en þeir eru oft í einhvers
konar ráðgjafarþjónustu.
Ástalíf
Þeir sem afmæli eiga þennan
dag halda nær undantekningar-
laust tryggð við maka sem þeir
finna snemma á lífsleiðinni og er
sambúðin að sjálfsögðu til fyrir-
myndar.
Heilsufar
Ef afmælisbamið forðast slark-
liferni er heilsan góð.
22.
OKTÓBER
Skapferli
Afmælisbarnið er rökfast og
hefur skoðanir á flestum hlutum.
Þetta er manngerðin sem er „allt-
af með kjaftinn opinn” sem kallað
er en fáir eru þeir líka sem ná að
stinga upp í þetta fólk. Ekki bætir
það úr skák fyrir ófullkomna sam-
ferðamenn að þeir sem eiga af-
mæli þennan dag eru yfirleitt
mjög oröheppnir og skjótir í til-
svörum. Undir yfirborði sjálfs-
öryggis glittir þó stundum í
óöryggi hjá sumum þeim sem af-
mæli eiga þennan dag.
Lífsstarf
Það er algengt að afmælisbarn-
ið sé í tryggri atvinnu sem það
leggur fremur lítið í en láti þess í
stað til sín taka á sviði félags-
mála. Einnig er ekki sjaldgæft að
finna stjórnmálamenn meðal
þeirra sem fæddir eru þennan
dag.
Ástalíf
Algengt er að þeir sem afmæli
eiga þennan dag séu nokkuð fyrir
aö ráðskast með maka sinn. Sam-
búðin byggist því nokkuð mikið á
því að maki afmælisbarnsins nái
að sigla á milli skers og báru og
sætti sig viö að hlusta á glósur og
aðfinnslur.
Heilsufar
Heilsan er yfirleitt góð hjá þeim
sem afmæli eiga þennan dag
nema hvað sjónin daprast oft með
aldrinum.
23.
OKTÓBER
Skapferli
Afmælisbarn þessa dags er
skapfastur eldhugi sem hefur
gaman af að ráðast á hindranir og
ryðja þeim úr vegi. Það hefur
sterka löngun til að vernda og
styðja þá sem minna mega sín.
Rík réttlætiskennd er það sem ein-
kennir það helst. Þeir sem afmæli
eiga þennan dag eru oftast já-
kvæðir og glaölyndir.
Lífsstarf
Þeir sem fæddir eru þennan dag
eru sjálfstæðir og vilja gjarnan
vera eigin herrar. Þeir fara því oft
út í einkarekstur en finna sér far-
veg um leið þar sem þeir geta látið
gott af sér leiða. Einnig má finna
fóstrur, hjúkrunarkonur, lækna,
kennara og fleiri sem gegna
ábyrgðarmiklum og verndandi
störfum meðal þeirra sem fæddir
eru þennan dag.
Ástalíf
Tilfinningarnar eru vel tamdar
hjá afmælisbarninu. Það giftist
yfirleitt seint, gerir miklar kröfur
til maka síns en tekst yfirleitt svo
vel í makavalinu að makinn stenst
kröfurnar. Þegar svo er verða
hjónaböndin löng og farsæl.
Heilsufar
Heilsan er fremur góð nema
hvað smákvillar eins og ofnæmi
og kvef gera sumum lífiö leitt.
42. tbl. Vikan 23