Vikan - 17.10.1985, Page 44
gy Stjömuspá
Hrúturinn 21. mars 20. april
Mjög skemmtilegur
tími er fram undan
hjá þér. Það er mikið
um að vera á öllum
vígstöðvum og þú átt
eiginlega í mestu
erfiðleikum með að
njóta þess reglulega
að vera til. Gleymdu
samt ekki að sofa nóg.
Nautið 21. april -21. mai
Þú ert einmana þessa
dagana og eitthvað ó-
nógur sjálfum þér.
Það er engin ástæða
til að örvænta, rétt
bráðum sannfærist
þú um að lífið sé
mjög skemmtilegt og
fullt af tækifærum.
Tvíburarnir 22. mai-21. júni
Þú leggur hart aö þér
við verkefni sem þú
hefur tekiö að þér og
reynir að skila því
eins vel og þér er
unnt. Það veldur þér
því vonbrigðum þeg-
ar þú færð ekki það
hrós sem þér finnst
þú eiga skilið.
Krabbinn 22. júni 23. júlí
Áttu eitthvað bágt
núna? Tilfinningarn-
ar virðast vera í ótta-
legri flækju. Hugsaðu
þig um. Ef þú brýtur
odd af oflæti þínu og
stígur fyrsta skrefið
raknarfljótlega úr
hnútnum.
Ljónið 24. júli 23. ágúst
Þú ferð á stefnumót
og á það eftir að hafa
töluverö áhrif á
framtíð þína. Þú
sætir ámæli fyrir af-
skipti þín af máli
sem ýmsum finnst
þér ekki koma við.
Láttu þetta sem vind
um eyru þjóta.
Meyjan 24. ágúst 23. sept.
Þér þykir næsta vika
heldur daufleg.
Notaðu hana til að
hvíia þig því að á
næstunni eiga sér
stað átök sem gott er
að vera vel búinn
undir og þá þarftu
hvorki að kvíða til-
breytingarleysi né
lognmollu.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Þú lendir í tímaþröng
með verkefni sem þú
tókst að þér fyrir
löngu og hefur
trassað að ljúka. Þú
þarft að læra aö
skipuleggja tíma þinn
betur því aö svona
nokkuð spillir fyrir
þér.
Sporðdrekinn 24. okt. - 23. nóv.
Þú heldur oftast að
grasið sé grænna
hinum megin viö
girðinguna. Svipastu
um í kringum þig. Þú
hefur það tiltölulega
gott miðað við marga
sem þú þekkir.
Talaðu við vin þinn
um vandamálin.
Bogmaðurinn 24. nóv. 21. des.
Skemmtiferð væri
ákjósanleg fyrir þig í
næstu viku. Þú skalt
ekki búast viö að fá
allt upp í hendurnar
og fyrir alla muni
treystu því ekki að
aðrir taki ákvarðanir
fyrir þig. Það verður
þú að annast á eigin
spýtur.
Steingeitin 22. des. - 20. jan.
Þér bregður við að
hafa ekki eins mikið
að gera og að undan-
förnu. Gættu þess
samt að leggjast ekki
í leti, það er afar á-
ríðandi fyrir þig að
geta gripið þau
tækifæri sem gefast.
Gættu þín í um-
ferðinni.
Vatnsberinn 21. jan. - 19. fehr.
Það er slæmur ávani
að koma yfir á aðra
því sem þér þykir
leiðinlegt. Með sama
áframhaldi fer aö
þynnast vinahópurinn
í kringum þig. Nú
skaltu leita að hlut
sem þú ert búinn að
týna.
Fiskarnir 20. febr. 20. mars
Þú hefur sýnt nánum
ættingjum ótuktar-
skap og fyrir það
verður þú að bæta.
Viðurkenndu mis-
tökin, jafnvel þótt þú
verðir að fórna ein-
hverju. Það á eftir að
skila sér þótt síðar
verði.
44 Vikan42. tbl.