Vikan - 07.11.1985, Qupperneq 11
Það er fallegt af þeim sem eru á vel útbúnum bílum að hugsa
upp eitthvað hughreystandi fyrir þá sem þeir geysast fram úr.
Aftan á Audi bílnum hans Úlfars Eysteinssonar stendur ,,Have
a nice day" eða: Hafðu það gott í dag. Vingjarnleg kveðja.
20 ráö
við skapofsa
1. Dragðu djúpt andann.
2. Hugsaðu fyrst, talaðu svo.
3. Sættu þig við að aðrir valdi þér
vonbrigðum eða ergi þig.
4. Fyrirgefðu þeim þvi þeir vita ekki
hvað þeir gjöra.
5. Settu markið hátt en mundu að fall
er fararheill.
6. Settu þig i spor annarra.
7. Mundu að þú ert ekki fórnarlamb
duttlunga annarra.
8. Farðu I göngutúr. Skiptu um um
hverfi.
9. Rifjaðu upp liðnar sælustundir.
10. Þá er menn forðast deilur lætur
óvild ekki á sér bæra.
~
11. Gerðu þér Ijósa rót vandans.
12. Reyndu að ná meira valdi yfir kring
umstæðunum, í stað þess að láta
stjórnast af þeim.
13. Teldu upp að 50.
14. Leitaðu að lausn málsins.
Imyndaðu þér ævintýralegan endi.
15. Finndu 5 aðferðir til að ná settu
marki.
16. Vertu viss, ævintýri gerast enn.
17. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði
nokkuð gott.
18. Vendu þig af því að öskra á fólk,
það hlustar miklu betur ef þú talar á
lægri nótunum.
19. En ef það skyldi samt sem áður
henda, láttu þá hvina hressilega i
þér en biddu afsökunar á eftir.
20. Og mundu að sá vægir sem vitið
hefur meira.
Hótelhúsbúnaður1986 varefni
sýningar hjá íslenskum húsbún
aði hf. á dögunum. Þar gaf að
líta það nýjasta íslenska varð-
andi hótelbúnað. Innréttingar
hótelherbergja, húsgögn og
ýmis búnaður í borðsali og ráð-
stefnusali var meðal þess sem
hægt var að skoða á sýning-
unni. Og hverjir mæta á opnun
slíkrar sýningar nema arkitekt-
ar, hönnuðir, menn úr hús-
gagnaiðnaði, verslunareig-
endur og auðvitað fleiri og
fleiri? Og þeir mættu líka Eyjólf-
ur Pálsson, eigandi verslunar-
innar Epal hf. (E = Eyjólfur,
pal = Pálsson) og Valdimar
Harðarson arkitekt og hönnuð-
ur stolts okkar Íslendinga í hús-
gagnahönnun, fellistólsins Sól-
eyjar.
Náði af sér
þrjátíu kílóum
og engin
töframeöul
Ágústa Baldurs-
dóttir í Hveragerði
tók sig til og grennti
sig um þrjátíu kíló
án þess að grípa til
nokkurra annarra
ráða en að þeita
sjálfa sig aga. Hún
er einnig hætt að
reykja og það hefur
ekki eyðilagt megr-
unaráform hennar.
Ágústa sagði að
læknir fylgdist reglu-
lega með sér og
hún er ekki enn orð-
in ánægð, ætlar að
ná af sér nokkrum
kílóum í viðbót.
45. tbl. Vikan XI